Óðinn - 01.07.1923, Síða 6

Óðinn - 01.07.1923, Síða 6
54 ÓÐINN gamla í Ási í Kelduhverfi, Jónssonar pr. langs í Hjarð- arholti, Ormssonar lögm. og hirðstj. á Skarði. Er þá auðrakið upp til ýmisra landnema, svo sem Ingólfs Arnarsonar, Skalla-Gríms og Höfða-Þórðar, en rúms- ins vegna skal því slept hjer. Móðir Guðnýjar ömmu ]ónasar var Guðfinna Hjálmsdóttir bónda á Keldulandi (f. 1680, d. 2. mai 1757), Stefánssonar lögrjettum. á Silfrastöðum, Hrafns- sonar lögrjettum. í Bjarnastaðahlíð í Goðdölum, ]óns- sonar lögrjettum. þar, Arnfinnss., Guðmundssonar á Stað í Hrútafirði, Oddssonar á Bakka í Oxnadal, Arnfinnssonar sýslum. á Laugalandi ]ónssonar bónda á Ðöggvisstöðum br. Halls, sem fyr getur. — Kona ]óns í Hróarsdal og móðir Jónasar var Sæunn (f. 22. júlí 1806) Sæmundsdóttir bónda á Litlu-Seylu á Lang- holti, ]ónssonar og konu hans Valgerðar (f. 1778) Magnúsdóttur á Skörðugili (f. 1733, d. 1792) Þórleifs- sonar bónda í Sólheimum í Sæmundarhlíð, ‘Sæmunds- sonar og konu hans Engilráðar dóttur ]óns Árnasonar og Guðrúnar Þórleifsdóttur pr. í Sölvatungu, Ólafs- sonar bónda í Finnstungu, Guðmundssonar og konu hans Steinunnar Þórleifsdóttur á Fellsenda í Dalas., Bjarnasonar og konu hans Kristínar Árnadóttur á Sauðafelli, Björnssonar pr. á Melstað, ]ónssonar bisk- ups Arasonar. Er hægðarleikur að rekja ætt þessa til fornmanna, en nú skal staðar nema. —j ]ónas byrjaði búskap í Hróarsdal og giftist fyrstu konu sinni árið 1863. Naut hann hennar skamma en ástríka stund, og áttu þau eigi börn saman. Hún hjet Sigurbjörg og var dóttir hjónanna Sveins Bjarnasonar í Rugludal og Ólafar Oddsdóttur bónda á Marðar- núpi, Ólafssonar úr Árnesþingi. ]ónas giftist í annað sinn Elisabetu Gísladóttur bónda á Lóni í Viðvíkursveit, Ingimundssonar og konu hans Onnu dóttur Halldórs Kláusar Brynjúlfs- sonar Halldórssonar biskups Brynjúlfssonar. Eignuð- ust þau (]. og E.) 12 börn og eru 9 þeirra á lífi, þar á meðal Sigurlaug kona Theodórs Friðrikssonar skálds í Húsavík, Sigurbjörg ekkja á Kárastöðum, Sæmundur í Vatnskoti, Hróbjartur ferjumaðar á Hellu- landi, Gísli kennari í Rvík og Benjamín Franklín vjela- smiður á Seyðisfirði. — Eru þessi börn eigi talin eftir aldri. — Elísabet andaðist 17. ágúst 1894. Hann giftist í þriðja sinn núlifandi konu sinni Lilju (f. 6. ágúst 1872) ]ónsdóttur bónda á Syðstu-Grund, ]ónssonar í Fram- nesi, ]ónssonar hreppstjóra á Silfrastöðum Erlends- sonar (Siglunessætt). Kona ]óns á Syðstu-Grund og móðir Lilju er Björg (f. 6. júní 1845) ]ónsdóttur á Kárastöðum Skúlasonar á Ogmundsstöðum, Þórbergs- sonar bónda í Eyhildarholti Dagssonar bónda í Mið- sitju, Pjeturssonar prentara á Hólum, Einarssonar (er átti Kristínu ]ónsdóttir smiðs, Greipssonar prests á Snæfjöllum í Isafirði, Þorleifssonar) Pjeturssonar bók- bindara á Hólum, Engilbertssonar, Gamlasonar, Hall- grímssonar á Egilsstöðum í Vopnafirði Barna-Svein- bjarnarsonar officialis í Múla, Þórðarsonar. — Verður karlleggur sá trautt rakinn lengra, en gegnum kven- liði er auðvelt að rekja þessa ætt upp til landnáms- manna. — ]ónas og Lilja hafa eignast 13 börn, og eru 11 þeirra á lífi, þar á meðal ]ón Normann búfræðisnemi, ]ónas, Vilhjálmur, Sæunn, Alfreð Hródal, Leó, Páll Hróar og Sigurjón (sem nú er fjögurra ára og yngst- ur barnanna). 011 eru börn ]ónasar vinsæl, myndarleg og vel gefin að því er jeg best veit, enda er eðlilegt að þeim kippi í kynin, því að Hróarsdalshjón hafa ætíð verið vinsæl og vel metin, og svo munu flestir mæla að bæði sjeu þau fyrirmannleg og fríð sýnum, þótt Elli hafi nú sett gleggri merki á bónda en hús- freyju. ]afnvel þó að ]ónas bóndi hafi aldrei skólaveg gengið í venjulegum skilningi, þá hefur hann náð meiri mentun en margur, sem notið hefur skólavistar árum saman. Hann hefir lesið sjer til ómetanlegs gagns fjölmörg og fágæt útlend og innlend vísinda- rit og er meiri tungumálamaður en almennt gerist í hans stjett. Hann hefur löngu náð víðtækri sjerþekk- ingu í ýmsum fræðum, og þó, að jeg ætla, sjerstaklega í læknisfræði. Að henni hneigðist hann snemmendis og undir hennar merkjum hefur hann barist hraust- lega um langa æfi, og margoft unnið frægan sigur. Osjerplægni hans og dugnaður í lækningastarfinu er aðdáunarverður þegar þess er gætt, að hann setti mönnum í sjálfsvald, hvað þeir borguðu honum fyrir ferðir hans og meðul. Má nærri geta, að oftlega hafa launin sem hann fjekk verið klipin við neglur. — Það er trú mín, að þekking ]ónasar í læknisfræði sje meiri og merkilegri en allur þorri manna gerir sjer ljóst, og væntir mig að margir hinir háskólalærðu læknar okkar gætu ýmislegt lært af honum, sem hald- kvæmt væri og nauðsynlegt fyrir þá að vita og fer þó fjarri að jeg vilji neitt rýra þá í augum alþýðu. Þess ber að geta að ]ónas uppgötvaði meðal við kíg- hósta eða krampahósta, sem talið er óbrigðult, sje það notað í tíma; og yfirleitt hefur hann verið talinn einkar heppinn læknir. Eru þess mörg dæmi, að hann hefur læknað að fullu illkynjaða sjúkdóma, sem öðr- um læknum hefur verið ofvaxið að fást við. Notaði hann á tímabili homöopaþiskar lækninga-aðferðir, en lengst af hefur hann stundað alopaþa lækningar. Hann er manna grasafróðastur, og hefur einnig oft

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.