Óðinn - 01.07.1923, Síða 17
OÐINN
65
Jón Einarsson í Hemru
hreppstjóri og dannebrogsmaður.
Hann andaðist að heimili sínu hinn 5. dag maí-
mánaðar 1922 og skorti þá að eins örfáa daga á sjö-
tugt; var þrotinn að heilsu síðustu árin og lá rúmfastur
og þungt haldinn síðasta missirið. Fæddur var hann í
Hrífunesi í Skaftártungu 10. maí 1852, sonur Einars
(d. 1888) bónda í Hrífunesi, Bjarnasonar (d. 1852)
á Þykkvabæjarklaustri, jónssonar, og Guðrúnar jjóns-
dóttur frá Bakka í Landeyjum. Voru þeir bræður
Bjarni á Klaustri afi
]óns og ]ón faðir Ei-
ríks hreppstjóra í Hlíð.
Þeir voru því þremenn-
ingar ]ón í Hemru
og Hoffellsbræður, sem
Oðinn hefur áður flutt
myndir af. Voru þau
Hrífunessystkini mörg,
og eru þeir nafnkend-
astir ]ón í Hemru
og sjera Bjarni, fyrr-
um prestur að Mýr-
um í Alftaveri, kvæntur
Guðrúnu Runólfsdótt-
ur dannebrogsmanns í
Holti á Síðu, eru þau nú til heimilis í Reykja-
vík. í Hrífunesi ólst ]ón upp og var þar til 27
ára aldurs; kvæntist þar árið 1877 Hildi Vigfús-
dóttur hreppstjóra á Flögu í sömu sveit, Bótólfs-
sonar, en fluttist 1879 að Hemru þar í sveit og reisti
þar bú; keypti hann jörðina og bjó þar blómabúi upp
frá því, eða 43 ár. Lifir Hildur húsfreyja enn, mikilhæf
gerðarkona. Varð þeim hjónum 7 barna auðið og
komust 6 upp: 1. Þorgerður húsfreyja í Vestri-Garðs-
vika í Rangárvallasýslu, gift Einari hreppstjóra Einars-
syni þar, 2. Sigrún, ógift á Skúmsstöðum í Landeyjum;
3. Guðrún, ógift í föðurgarði; 4. ]óhanna, ekkja Ein-
ars Bergssonar á Mýrum, 5. Þorvaldur bóndi á Skúms-
stöðum, kvæntur Ólöfu ]ónsdóttur frá Hlíð í Skaft-
ártungu og eru þau hjón fjórmenningar, 6. Valdimar
bóndi og hreppstjóri í Hemru. — ]ón Einarsson var
atkvæðamaður í hjeraði og ljet sig miklu skifta opin-
ber mál. Voru þeir hreppstjórarnir Runólfur ]ónsson
í Holti og Ingimundur Eiríksson á Rofabæ í Meðal-
landi helst nefndir til almennra mála, þegar ]ón kom
til sögunnar, en ekki leið á löngu, áður hann kæmi
þar einnig til skjalanna. Allir voru þeir merkir á marga
lund og miklir skýrleiksmenn, en mentunar nutu þeir
ekki, eða annarar fræðslu en þeir gátu sjer sjálfir
veitt; sómdu sjer þó vel með mentuðum mönnum og
voru allir sæmdir heiðursmerki dannebrogsmanna. ]óni
var að vísu komið kafla úr vetri til sjera Páls Pálsson-
ar að Kálfafelli, síðar að Þingmúla, ásamt Gísla bróður
sínum, er síðar fór til Vesturheims, og mun þeim hafa
verið ætlað að ganga skólaveginn; en það rjeðist á
annan veg og gerðist ]ón bóndi sem fyr er sagt.
Varð hann, áður langt um leið, einhver kunnasti mað-
urinn í sinni sveit og jafnvel innan sýslunnar; gegndi
flestum þeim trúnaðarstörfum, er fyrir koma í hjeraði og
jafnan var hann kvaddur til hinna vandasömustu verka.
Hreppsnefndaroddviti Skaftártunguhrepps var hann
30—40 ár, eða frá því að hreppaskifting varð þar og
jafnframt um tíma oddviti Leiðvallarhrepps hins forna,
sýslunefndarmaður um langt skeið og amtsráðsmaður,
safnaðarfulltrúi, fræðslunefndarmaður og loks hreppstj.
síðustu 10 árin. I kjöri til þingmensku var hann nokk-
rum sinnum og kosinn varaþingmaður Heimastjórnar-
manna við fyrstu lartdskjörskosningar 1916. ]ón var
maður hjeraðsríkur og skoðanafastur; ljet ekki sinn
hlut fyr en í fulla hnefana og þótti einatt harður í
horn að taka. íhaldssamur var hann og fáskiftinn um
nýbreytni þá, er hvarvetna var farið að bóla á í kring
um hann; fornbýll að gömlum sið og kunni manna
best að setja á hey sín, gestrisinn og höfðingi heim að
sækja, skemtinn í viðræðum og vel að sjer ger, tryggur
og frændrækinn. Hann var mikill maður vexti og ekki
flysjungslegur, dökkur á brún og brá, harður og þraut-
seigur.
Þegar ]ón í Hemru er nú fallinn frá, er mjög farinn
að þynnast flokkur hinna eldri bænda í Skaftártungu.
Og þó að einatt vildi svo til, að hann væri öllum
þorra manna andvígur í skoðunum, ekki síst þeim, er
framarlega stóðu, munu nú flestir, er þektu. hann best,
fúslega játa, að mikið hafi verið í mianninn spunnið
og margt stórvel um hann.
-; ■; ' P.
0
Vetrarlokin. (1921)
Sveljanda vetur er svifinn á braut
og sokkinn í tímans hyl. —
Svona mun fara um sjerhverja þraut,
að senn er hún ekki til.
Fnjóskuv.
0
Jón Einarsson.