Óðinn - 01.07.1923, Síða 19

Óðinn - 01.07.1923, Síða 19
ÓÐINtí 67 Á rjettadaginn. Flestir kannast við Kirknasveit. Hún liggur fyrir norðan svo nefnd Trúarfjöll, sem er fjallgarður mikill. Er talið, að fjöll þessi sjeu ógreið yfirferðar og að víða sje á þeim villugjarnt. Sagt er, að þau sjeu enn þá lítt könnuð. — Það var komið fram í tuttugustu og fyrstu viku sumars. Veðrátta hafði verið fremur stormasöm undan- furnar vikur. Snjóað hafði í fjöll og sumstaðar ofan í miðjar hlíðar. Voru menn í Kirknasveit orðnir hálf- hræddir um, að fje mundi fenna, það sem lengst var inni á afrjettum. En nú voru menn farnir að búa sig af stað í göngur. Hreppsnefndin hafði skipað fjallkóng. Reyndar hafði það ekki ætlað að ganga greitt. Vmsir mikilsmetnir bændur voru taldir þeirri vegsemd vaxnir að gerast leitarforingjar. Seinast stóð þó rimman aðalega um tvo búendur. Þóttu þeir flestum betur til foringja fallnir. Annar þeirra var gildur bóndi, er Kristinn hjet. Bjó hann þar sem heitir að Aski. Hinn hjet Kristján. Hafði hann flutst í sveitina fyrir nokkrum árum og bjó nú þar sem heitir í Seli. Þótti hann bú- höldur góður. Þeir Kristján og Kristinn voru nágrannar og mestu mátar. Hafði Kristján stundum lagt granna sín- um lið þegar hann þurfti þess vio, eins og oft getur orðið, þar sem bændum verður fátt til hjúa. Kristján hafði verið settur til menta, þegar hann var ungur. Var hann því talinn öllu tignari en nágranni hans, enda var hann meiri atkvæðamaður. Þau urðu og leikslokin, að hann var skipaður fjallkongur. Bændur þeir, er búa í Kirknasveit, eru all-fjár- margir. Þykir það mesta furða, hve vel þeim hefur búnast, þegar þess er gætt, hve litla rækt þeir hafa lagt við jarðir sínar. Flestir þeirra hafa verið andvígir öllum jarðarbótum. Segja þeir, sem og er, að þeim farist illa að vera að róta við þeim þúfum, sem »guð hefur skapað*. Fyrir því hafa þeir og aldrei gengið í búnaðarfjelag, enda hafa flestir þeirra mestu óbeit á samtökum öllum og fjelagsskap. Segja þeir, að for- feður þeirra, er voru mestu menn, hafi komist af, án þess að vera í fjelögum. Og sjálfir segjast þeir ekki hugsa sjer að þokast lengra í framfaraáttina, en kom- ast þangað með tærnar, sem feður þeirra höfðu hælana. Fyrsti leitardagur rann upp. Var þá lagt af stað. Þoka var yfir fjöllunum, en ekki mátti fresta göngum. Leitarmenn voru vel ríðandi. Ljetu þeir því spretta úr spori, uns þeir komu upp á fjall, þar sem venja var að á og skifta mönnum í flokka. Fjallkongur steig þá fyrstur áf baki og svo hver af öðrum. Skipaði hann mönnum í flokka og sagði hverj- um flokki, hverja leið hann skyldi halda. Einn flokkur átti að ganga alla Rjetttrúnaðardali, annar átti að fara upp um Andatrúarbrúnir, þriðji átti að leita Guðspekihæðir, fjórði að smala Nýguðfræði- hlíðar og hinn fimti að reka ofan af Vantrúarheiði. Var þá talið, að ekki þyrfti að leita víðar. Segir ekki af ferðum leitarmanna, fyr en þeir komu aftur. Hafði þeim smalast fremur vel, svona í fyrstu göngum. Safnið var geysimikið. Var fögur sjón að sjá það renna ofan Kristnikleif. Það var líkast því sem þar rynni ofan fjallið straumhörð móða og flæddi síðan út um allar eyrar, þar sem rjettin stóð. Margraddaður kliður steig upp í loftið og var að heyra í fjarlægð sem þungur árniður. Þetta var síðla dags, að safnið kom ofan, daginn fyrir lögskipaðan rjettardag. Veður var hið fegursta. Rjettin stóð á eyrum, eins og þegar er sagt. Var hún hlaðin öll úr trúarjátningartorfi. Þótti hún allvel hlaðin, enda höfðu margir að henni unnið, áður hún var fullger. Hamrabrún var vestanvert við Kristnikleif. Þar rann foss fram af brúninni. Klettur var í fossinum efst og klauf hann sundur eftir endilöngu. Hjet því fossinn Klofningur. Stundum ljet svo hátt í fossi þessum, að furðu gegndi. Sögðu sumir, að það vissi á illviðri, en aðrir, að það væri fyrirboði illinda eða annara stór- tíðinda og þóttust hvorirtveggja hafa við reynslu að styðjast. Skjótt skipast veður í lofti. Rjettadaginn var veður fremur ilt, norðan krapa- hryðjur öðru hvoru og kalsi. Konur og karlar og unglingar komu þó til rjettarinnar hvaðanæva úr sveit- inni. Flestir voru ríðandi, nema nokkrir drengir af næstu bæjum. Urðu menn mjög fyrir vonbrigðum, er veðrið var svo ilt. Rjettagleðin átti því í höggi við illviðrið og veitti ýmsum betur. Hátt ljet í Klofningi. Var nú farið að reka inn. Gekk það treglega í fyrstu. Varla heyrðist mannsins mál fyrir jarmi, hói og hundgá. Fjölmenni var mikið við rjettina og reyndu menn að duga sem best. Hundar voru margir og sumir af kaupstaðakyni. Þóttu þeir duga öllu ver en hinir. Var það sökum þess, að þeir voru ekki eins vanir við fje og geltu stundum, þegar verst gegndi

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.