Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 29
ÓÐINN
77
prestaskólann. En síðan hætti hann námi og gaf sig
fyrst að skrifstofustörfum og verslun og svo að blaða-
mensku og bókaútgáfu, eins og fyr segir. Keypti svo
jörðina Gröf í Breiðuvík undir Jökli og fór að búa
þar, en var þó öðru hvoru við skrifstofustörf hjer í
Reykjavík. Hann andaðist úr lungnabólgu 23. nóvem-
ber 1922, þá nýkominn heim til sín úr ferð hjeðan
að sunnan.
Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Anna
Hafliðadóttir, Guðmundssonar skipasmiðs, Pjeturssonar
úr Engey. Misti hann hana eftir fárra ára sambúð.
Eignuðust þau eina dóttur, sem Anna heitir. Síðar
kvæntist hann Margrjeti Hjartardóttur Líndal frá Núpi
í Miðfirði og lifir hún mann sinn ásamt tveimur börn-
um þeirra, sem heita Hjörtur og Ragnheiður.
Einar fjekst við margt. Hann var orðlagður reikn-
ingsmaður. Og altaf var hann hlaðinn hugmyndum um
stofnanir nýrra og nýrra fyrirtækja og hafði gaman
af að koma þeim á fót. Hann ritaði lítið í blöð sín
sjálfur, en honum var vel sýnt um að afla þeim út-
breiðslu og um allan rekstur þeirra.
Sl
Vilhjálmur Finsen ritstjóri.
Það er Einar heitinn Gunnarsson, sem fyrstur kom
á stað dagblaðaútgáfu hjer í bænum, með stofnun
»Vísis« í árslokin 1910. En næsti maðurinn, sem
ræðst í það starf, er Vilhjálmur Finsen. Hann er
stofnandi »Morgunblaðsins«, og byrjaði það að koma
út 2. nóvember 1913. Bæði voru þá þessi blöð í
þeirri stærð, sem »Vísir« heldur enn. En það reynd-
ist svo, að »Morgunblaðið« náði skjótt mikilli út-
breiðslu í bænum, og smátt og sifiátt einnig úti um
land, einkum í kaupstöðunum. Vilhjálmur Finsen var
ritstjóri þess frá byrjun og fram til ársloka 1921. Um
tíma 1919 var Einar prófessor Arnórsson við ritstjórn-
ina með honum, og frá 1. júní 1921 Þorsteinn Gísla-
son, ritstjóri þessa blaðs, og tók hann við ritstjórninni
af V. F. á nýári 1922. Þá hófst útgáfusamband milli
»Morgunblaðsins« og »Lögrjettu«, blaðs Þorst. Gísla-
sonar, og er »Morgunblaðið« síðan sjerstaklega ætlað
Reykjavíkurbæ og umhverfi hans, en »Lögrjetta« land-
inu þar fyrir utan.
Vilhjálmur Finsen er fæddur í Reykjavík 6. nóv. 1883,
sonur Óla Finsen, sem lengi var póstmeistari í Reykjavík,
af hinni frægu Finsens-ætt, sem kennir sig við nafn
Finns Jónssonar Skálholtsbiskups. Þegar V. F. stofn-
aði »Mrg.bl.« hafði hann dvalið erlendis frá því, er
hann tók hjer stúdentspróf, 1902, og hin síðari árin
kynst mikið blaðamensku. Hann las nokkur ár hag-
fræði við háskólann í Kaupmannahöfn, en tók ekki
próf, og var það fyrir áeggjan H. Cavlings, ritstjóra
»Politiken«, að hann gaf sig að blaðamenskunni, enda
hefur hann oft síðan verið að einhverju leyti við það blað
riðinn, stundum sem fastur starfsmaður eða frjettaritari.
Finsen rjeðst til Marconifjelagsins 1906 og tók próf
í loftskeytafræði við
skóla þess í Liver-
pool í apríl 1907.
Var svo lengi í
ferðum fyrir fje-
lagið, og um tíma
kennari við skóla
þess í Hamborg
og síðar í Rotter-
dam. Fór hann á
þessum árum víða
um heim, m. a. 72
ferðir yfir Atlants-
haf. Var sagt frá
því 1911 í blaði
fjelagsins, að hann
hefði þá ferðast
fyrir það vega- Vilhjálmur Finsen.
lengd, sem svaraði
13 ferðum kringum hnöttinn. A þessum ferðum sínum
skrifaði Finsen oft greinar í dönsk blöð, »Politiken«
o. fl., og einnig í norsk blöð, og meðal þeirra greina
eru viðtöl við heimsfræga menn, svo sem Edison og
Marconi. Fyrstu grein sína segist Finsen hafa skrifað
í bekkjarblað, sem stofnað var þegar hann var í 1. bekk
latínuskólans, haustið 1897. Voru þeir Ólafur heitinn
Ðjörnsson ritstjórar þess. En undir eins og hann kom
til háskólans í Kaupmannahöfn fór hann að skrifa
frjettagreinar í »Politiken« undir nafninu Finco, og
várð það upphaf að sambandi hans við það blað.
Síðar notaði hann oft í erlendum blöðum gervinafnið
»Vagabundus«.
Altaf segir hann að það hafi verið hugsun sín á
ferðalögunum, að koma heim hingað og stofna hjer blað.
Varð loks úr því 1913. Hann kom hingað í septem-
ber það ár og fjekk Ólaf heitinn Björnsson í fjelag
með sjer um stofnun »Morgunblaðsins«. En 1. júlí
1919 seldi hann blaðið hlutafjelaginu, sem enn gefur
það út.
í ársbyrjun 1922 fluttist Finsen búferlum til Krist-