Óðinn - 01.07.1923, Síða 34

Óðinn - 01.07.1923, Síða 34
82 ÓÐINN skinnið, hann var si-svona. — Guðmundur kveykti. »Haldið þjer á kertinu, Nikulás« segir læknirinn, og svo fer hann að bogra yfir Sigurði, og losa frá hon- um fötin, eitthvað. Það gekk góð stund í það. Sigurð- ur emjaði og röflaði, eins og hann væri milli svefns og vöku. »Ætlarðu að drepa mig, Nikulás?« sagði hann einu sinni, svo sem hann kvað á. »Það er ekki jeg, það er læknirinn«, sagði Nikulás. Og — sjáið þið til, þá segir Guðmundur gamli og lítur á Andrjes: »Onei, það verður einhver annar en hann Nikulás þarna sem drepur þig«, segir Guðmundur gamli og hlær við, og Andrjes hristi höfuðið. — Ekki var að sjá að læknirinn tæki eftir þessu. En við skildum, nema kannske Nikulás, sem ekkert skildi«. — — Loksins var læknirinn búinn að athuga Sigurð, hann tók þá við kertinu af Nikulási og sagði honum að fara út og sækja hnakktöskuna sína. — Á meðan Nikulás var að sækja töskuna var jeg við dyrnar, jeg horfði á lækninn, sem stóð þarna, þegjandi með kertið logandi í hendinni. Hann horfði niður í gólfið, húfunni hafði hann skotið aftur í hnakkann, svo jeg sá vel andlitið. Satt að segja átti jeg þá bágt með að trúa því, að þetta væri manndráparaandlit, enda þótt hann væri ári þungbrýnn og alvarlegur. Það var eins og hann tæki ekkert eftir því, að við allir störðum á hann. — Sjáið þjer til, jeg var eins og hver annar ómentaður unglingur þá, um þrítugt reyndar að árun- um til. En ímugustur sá, sem saga Guðmundar hafði vakið hjá mjer á lækninum, hvarf smátt og smátt þegar jeg horfði á hann — jeg veit ekki af hverju. Nei, sei-sei-nei, blíðlegur var hann ekki á svipinn. jeg veit ekki hvaðan það kom, eða hvernig mjer gat dottið það í hug, en jeg fór alt í einu að hugsa um það, ef það væri nú jeg sem stæði þarna í sporunum hans! Nei, jeg öfundaði hann ekki, það segi jeg satt«, »Nú kemur Nikulás inn með töskuna og snjóhnaus, sem læknirinn hafði sagt honum að koma með líka. ]eg flýtti mjer upp á bálkinn á undan Nikulási, hann gat búið um hurðina sjálfur í það sinnið, enda fjekk læknirinn mjer kertið, og sagði mjer að halda á því, þegar hann var búinn að kveykja á því aftur, því það drapst á því þegar Lási opnaði hurðina. Hann var svo lengi að paufast inn, karluglan, veri guð honum náðugur, og var ekki sjerlega liðugur þá stundina. ]æja, jeg sit nú þarna uppi á bálkinum og held á kertinu, en læknirinn opnar töskuna. Og upp úr henni tekur hann aðra tösku eða kassa og í honum sje jeg er ýmislegt, bæði glös og verkfæri. Þar upp úr tekur hann lítið meðalaglas, með einhverju svörtu í, og fær mjer, og segir mjer að halda á því á meðan. Svo tekur hann bauk eða bikar úr pjátri, lætur í hann snjó, treður hann fullan, og á meðan hann er að þessu sje jeg og heyri, að þeir eru að hvíslast á Guðmundur og hinir, nema Nikulás, sem verður að húka frammi við dyr, bak við lækninn, því taskan liggur, sjáið þið, þar sem hann lá áður. Svo tekur læknirinn af mjer kertið og fer að bræða snjóinn, yfir því. En jeg sit og held á glasinu og segi ekki orð, en margt datt mjer í hug. — Svo fær hann mjer kertið aftur, hellir mestöllu krapinu úr bikarnum, tekur glasið og fer að telja dropa úr því í bikarinn«. »Sjáið þið til, á meðan hann er að telja dropana fara þeir Guðmundur og Andrjes fram af bálkinum, Guðmundur stóð framar, rjett hjá lækninum, Andrjes fyrir aftan hann. Þeir Árni og Páll þokuðu sjer framar á bálkinn. Læknirinn tók víst ekkert eftir þessu, fyr en Guðmundur segir, rjett við eyrað á honum: »Hvað er þetta, sem þjer ætlið að gefa honum inn?« Þá leit læknir á hann, og hvesti á hann augun þegar hann sá svipinn á karli. — Því sjáið þjer til, jeg skal segja yður það, að Guðmundur var mikilúðlegur maður þegar skap var í honum. — ]eg skammast mín ekki fyrir að segja það, að jeg skalf og nötraði þar sem jeg lá eða sat og hjelt á kertinu, það var svo sem eins og glímuskjálfti, og sló út um mig svita. Allir steinþögðu stundarkorn, nema hann Kári, hann buldi á sæluhússþekjunni. Sigurður þagði líka, hvort sem það var af því, að hann var fallinn í mók, eða þá að hann var að hlusta á hvað fram fór«. — »Farið þið frá«, sagði læknirinn, »svo jeg geti kom- ist að manninum, og gefið honum inn«, segir hann, snýr sjer að mjer og segir: »Komdu með ljósið«. En Guðmundur stendur kyr. »Það er þó víst ekki það sama«, segir hann, »sem þjer gáfuð honum Olafi sáluga inn?« — »01afi sáluga?« segir læknirinn. Þá glottir Guðmundur og segir: »0, verið þjer ekki með nein ólíkindalæti, karl minn, þjer munið víst eftir því þegar jeg sótti yður til hans Ólafs sáluga á Hamri í haust*. »0g hvað um það?« spurði læknirinn. »Það um það«, segir Guðmundur, »að Sigurður hjerna er alt of góð- ur maður til þess að þjer gefið honum sömu dropana og þjer gáfuð Ólafi*. »Eruð þjer vitlaus, maður?« sagði læknirinn, rjett svona orðaði hann það, en ekki sá jeg að hann reiddist eða að honum brygði vitund; »jeg ætla að reyna að gefa manninum þetta inn, það er það eina, sem jeg hefi hjer við hendina sem eitt- hvað gæti hjálpað*, segir hann, »frá með ykkur nú«, segir hann, og ætlar að ýta Guðmundi frá með ann- ari hendinni. »Nei«, segir Guðmundur, og var nú í byrstara lagi, sópaði að honum, »að mjer heilum og

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.