Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 36

Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 36
84 ÓÐINN Guðm. Magnússon prófessor sextugur 26. sept. 1923. Varaðu þig á manninum, sem blasir við þjer þarna í blaðinu. Það sjest á augnaráðinu og dráttunum í andlitinu, að hann er fullur af gáska og enginn veit, hvenær gosið kemur. Vertu viðbúinn, þá mun ekki saka, því gáskinn er græskulaus. Myndin sýnir Guðmund Magnússon prófessor sex- tugan, eins og hann er í raun og veru og eins og hann verður manni minni- stæðastur. Það er til önnur mynd, sem ekki er hjer, mynd- in af »hinum spunastutta Magnússyni«, sem stjett- arbróðir hans, Guðmund- ur Hannesson getur um í formálanum að ritgerð- inni í Læknablaðinu. En mynd sú er af hinum þreytfa og áhyggjufulla lækni. I full 53 ár hefur pró- fessor Guðm. Magnús- son verið læknir, unnið samviskulega og sleitu- laust síðan hann kom hingað heim til landsins frá námstíma sínum er- lendis, fyrst sem hjeraðs- læknir í stóru og erfiðu hjeraði, og svo frá 1894 sem annar aðalkennarinn við læknaskólann og síðan pró- fessor við háskólann. Sú grein læknisfræðinnar, sem prófessor Guðmund- ur Magnússon hefur frá æskuárum tekið ástfóstri við, er handlæknisfræðin. Það kom sjer einkar vel að fá hingað jafn gáfaðan og vel mentaðan lækni til að taka við kenslunni í handlæknisfræði, þegar Schier- beck landlæknir fór hjeðan 1894. Fyrstu tvö árin þegar Guðmundur Magnússon var á Sauðarkróki, sóttu sjúklingar til hans úr öllum átt- um og kynjasögur miklar gengu um landið um skurð- lækningar hans, um fram alt á sjúklingum með sulla- veiki, hinum forna fjanda þessa lands, sem drepið hafði fólk unnvörpum. Guðmundur Magnússon flutti heim með sjer frá út- löndum nýjar aðferðir, skurðlækningar, sem ekki höfðu verið notaðar hjer áður, en urðu miklu affarabetri fyrir sjúklinganá en gömlu lækningaaðferðirnar, þeirra Finsens og Jónassens, sem báðir eiga þó skilið að geymast í sögu íslenskra lækna með þakklæti fyrir vel unnið starf í barátt- unni við sullaveikina. Það er orðin há tala sjúklinga þeirra, sem próf. Guð- mundur Magnússon hefur læknað vegna sullaveikis. Þá ánægju hefur hann jafnframt að sjá það, hve geysilega sjúkdómnum hefur rjenað á þessum áratugum, sem hann hef- ur verið læknir hjer. Guðmundur Magnús- son benti þegar á fyrstu læknisárum sínum á það, hve tíð berklaveiki væri þá orðin hjer á landi, þó læknar til þess tíma hefðu talið hana sjald- gæfa, eða óþekta. Um læknisstarf Guðm. Magnússonar er óþarft að fjölyrða. Hann og hans læknisstarf þekkir almenn- ingur frá fjalli til fjöru, frá instu afdölum þessa lands til ytstu annesja. Það sem líklega einkennir Guðmund Magnússon sem handlækni — og almennan Iækni — er það, að kynna sjer sem nákvæmast eðli sjúkdómsins áður en hann hefst handa, og til þessa notar hann sína víðtæku læknisþekkingu og alkunnu samvitskusemi. Það mun einnig hafa verið þetta, sem hefur gert hann svo vinsælan af lærisveinum sínum: Hann hatar allar þokumollur og hugsanagraut. Hann skýrir hlut- ina ljóst og einfalt og heimtar, að þeir geri sömu kröfur til sjálfra sín, og þreytist eigi að vekja ábyrgð- artilifinningu fyrir framtíðarstarfi þeirra. ]eg hef aldrei heyrt neinn af lærisveinum hans, sem eigi hafa lokið lofsórði á hann sem fyrirmyndarlækni og kennara, Guðmundur Magnússon.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.