Óðinn - 01.07.1923, Síða 37

Óðinn - 01.07.1923, Síða 37
ÓÐINN 85 og þannig mun hin íslenska Iæknastjett líta á hann, óskift, og gleðjast yfir Því að halda honum sem lengst við þann skóla, sem hann hefur unnið svo samvitskusamlega við. Medicus. V Stefán Eiríksson myndskeri. Trjeskurður ýmiskonar var allmikið stundaður hjer á Islandi upp til sveita áður fyr. Er allmargt slíkra hluta hjer á þjóðminjasafninu, hús- og búshlutir alls- konar. Stórir hlutir og vandaðir hafa einnig verið gerðir, svo sem kirkjuhurðin á Valþjófsstað, sem nú er á safni erlendis og þykir hinn sjerkennilegasti kjör- gripur. Nokkuð mun þó þessum trjeskurði hafa verið farið að hnigna á síðustu mannsöldrum, bæði þannig, að form hans yrði tilbreytingaminna en áður var og þeir færri, sem legðu stund á hann. Þó lagðist hann aldei af með öllu og hafa t. d. fengist við hann í æsku sinni nokkrir núlifandi menn, sem seinna hafa orðið kunnir á öðrum sviðum. Má þar nefna Einar Jónsson. myndhöggvara, sem fyrst fjekst mikið við trjeskurð og fór í öndverðu utan til þess að leggja stund á hann. Mun enn vera til eitt af hinum fyrstu verkum hans í þeirri grein, kassi allstór, með sofandi manni og ljóni á lokinu. Enn fremur má nefna Þor- stein Gíslason ritstjóra, sem skar t. d. stóra mynd af Gunnari á Hlíðarenda í hertygjum og mun sú mynd seinna hafa komist burt úr landinu (til Englands). Skúli Skúlason hjet einnig íslendingur nokkur, sem um þessar mundir ætlaði að leggja stund á mynd- skurð í Khöfn, en dó skömmu seinna. Um það bil, sem hjer er um að ræða, varð þó einn maður íslenskur, sem þótti hagleiksmaður mikill heima í sveit sinni, til þess að brjótast til útlanda og leggja þar sjerstaka stund á þessa iðn. En það var Stefán Eiríksson frá Fremraseli í Hróarstungu, og átti hann síðan, að námi sínu loknu, eftir að hafa mikil áhrif á þróun þessarar listar hjer heima og á- huga manna á henni. Stefán Eiríksson lærði fyrst á skurðstofu C. B. Hansen, en þar var þá stærsta hús- gagnaverksmiðjan í Danmörku, og síðan í Þýskalandi, og fór auk þess snöggvast til Sviss og Austurríkis til að kynna sjer þessi mál. Úr þessum þáttum öllum saman hefur svo Stefán Eiríksson skapað myndskurð sinn, úr samruna hins gamla íslenska trjeskurðar og erlendra áhrifa úr þýskum og dönskum myndskurði. Þetta hefur að mörgu leyti haft góð og frjósöm áhrif, svo að áhugi manna á trjeskurði og skilningur á hon- um hefur stórum aukist aftur á siðustu tímum og það að mjög miklu leyti fyrir starfsemi Stefáns Eiríksson- ar og þeirrar stefnu, sem að mörgu leyti má segja að hann hafi skapað. Mætti rekja þetta á ýmsan hátt með dæmum úr verkum hans og lærisveina hans. Ahrifin frá gamla skurðinum íslenska koma t. d. fram á mörgum öskum hans, en þeir eru nú mjög mikið notaðir til skrauts og gjafa, og einnig á hvalbeinsstóli Stefán Eiríksson. hans. Áhrif dönsku kenslunnar sjást hinsvegar t. d. í sveinsstykki hans, áhrif frá gamalli, kirkjulegri skurð- list í Ansgar-töflu hans o. s. frv. Á öllu þessu er þó sjerkennilegt, og oft persónulegt handbragð og blær Stefáns Eiríkssonar sjálfs. Annars er ekki gott að fá yfirlit um gildi nje áhrif þessa starfs Stefáns Eiríks- sonar, hvorki sem listar nje iðnar, bæði af því að fjöldi verkanna er mjög mikill og af því að þau eru dreifð út um alt innan lands og utan. — Þegar Stefán Eiríksson var að byrja á þessari braut sinni, var ekki auðhlaupið að því, að afla sjer þeirrar mentunar sem hann þá gerði, síst fyrir efna- lausan bóndapilt, enda þótti það ekki sjerlega árenni- legt, að brjótast til útlanda til að læra svo óbúsælt verk sem myndskurð. Stefán Eiríksson dvaldi þó í Kaupmannahöfn í 6 ár og síðan eitt ár í Þýskalandi, en síðan hefur hann stöðugt búið í Reykjavík, eða

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.