Óðinn - 01.07.1923, Page 38

Óðinn - 01.07.1923, Page 38
86 ÓÐINN frá 1898, en var fyrst um tíma norðanlands og aust- an eftir að hann kom úr utanförinni. Hann var þá um hálffertugur, er hann hóf hjer starfsemi sína, fædd- ur 4. ágúst 1862 í Fremraseli í Hróarstungu, og voru foreldrar hans Eiríkur Einarsson og Katrín Hannes- dóttir. I æsku dvaldist hann þó á ýmsum stöðum austan- lands og norðan, uns hann fór utan. A þeim tíma, sem Stefán Eiríksson hefur verið hjer, hafa lært hjá honum myndskurð 8 lærlingar, þar á meðal ein dætra hans, Soffía. En börn hefur hann annars átt ellefu og eru níu þeirra nú á lífi, 7 dætur og 2 synir. Kona hans er Sigrún Gestsdóttir frá Fossi í Vopnafirði. Auk þessara 8 lærlinga, sem nú voru nefndir, hefur hann kent mörgum teikningu og smíðar í skólum. Hafði hann lengi kvöldskóla sjálfur, og hefur enn, og hefur hann stundum verið sóttur af 60—70 teikni-nemend- um. Þess utan hefur hann kent í ýmsum skólum, mentaskólanum, iðnskólanum, barnaskólanum og lýð- skólanum. Hafði hann um eitt skeið, alllengi, 8—10 tíma kenslu á dag, auk heimavinnu sinnar. Hann hef- ur Iíka ávalt verið verkmaður mikill og vinnusamur, og mikið ljett þar undir með honum, að hann hefur ávalt verið fjörmaður, Ijettlyndur og bjartsýnn. Vmsar íþróttir hefur hann einnig stundað sjer til tilbreytingar, einkum hefur hann mikla unun af veiðum, var hann áður fyr hreindýra- og selaskytta góð, og fæst nú mikið við laxveiðar, á stöng, á sumrum. Hann hefur einnig verið bókamaður allmikill, og las talsvert af skáldritum, einkum á yngri árum sínum. Þá bar hann það einnig við að yrkja sjálfur kvæði og stökur, og þótti sjálfum harla gott á þeim árum, en aldrei skar hann þá list sína neinstaðar svo, að hún mætti geym- ast, en einn góðan veðurdag tók hann alla syrpuna og kastaði henni í eldinn logandi, »svo að þetta helvíti sæist ekki eftir sig«. Af skurðverkum Stefáns Eiríkssonar má auk þeirra, sem áður eru talin, nefna tvær altarisbríkur, nokkra beinlára, skrifborðsáhöld handa Stefáni G. Stefáns- syni og Geir rektor, brjefapressu handa Stein- grími Thorsteinsson, ask handa Fejlberg, nokkrar bókahliðar o. fl. Auk þess sem verk Stefáns Eiríkssonar hafa verið vinsæl og eftirsótt, hefur hann sjálfur per- sór.ulega verið mjög vel látinn og hefur líka kynst mjög mörgum. A Hafnar- árum sínum var hann t. d. allvel kunnugur Sind- ing myndhöggvara. Af öðrum kunningjum hans þar má t. d. nefna Dahle- rup húsameistara og Kock prófast og fólk hans, sem hann segir að alt af hafi verið sjer mjög gott. Hjer heima var sjera Sig. Gunnarsson á Valþjófsstað honum mjög innan handar á fyrstu námsárum hans og prófessor Finnur Jónsson útvegaði honum einu sinni 400 kr. ferðastyrk í Danmörku. Annan opinber- an styrk fjekk hann ekki. Einn af kunningjum Stefáns Eiríkssonar, Guðm. Hannesson prófessor, hefur Iýst honum svo (í Lögrjettu, þegar hann varð sex- tugur): »Margt var það sem aflaði Stefáni vinsælda. Fyrst og fremst held jeg að það hafi verið góða skapið, sem oft var beinlínis smitandi, og það var samfara óvenju hvatleik og fjöri. Hvar sem maður hitti Stefán, brosti hann glaðlega, eða öllu heldur hló hjartanlega. Um víl og vol, barlóm yfir fátæktinni eða kvíða fyrir framtiðinni var aldrei að tala. Og svo iðaði hann allur í skinninu af fjöri og hvatleik, bar óðan á, er hann talaði, og var fljótari í öllum snún- ingum en flestir aðrir, þó engin dauðýfli væru. Stefán Eiríksson, kona hans og börn.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.