Óðinn - 01.07.1923, Page 40

Óðinn - 01.07.1923, Page 40
88 ÓJÐ I N N Reykjavíkur, Stúdentaráðinu og Reykjavíkurdeild nor- ræna stúdentasambandsins og haft forgöngu í ýmsum málum, sem þau hafa beitt sjer fyrir. Við blaðamensku hefur hann einnig fengist og hefur ritað fjölda greina bæði í Lögrjettu og Morgunblaðið, og einnig ritgerðir í Eimreiðina og víðar. Hann hefur og þýtt á íslensku skáldsögur Gunnars Gunnarssonar »Vargur í vjeum« og »Sælir eru einfaldir«, og sömuleiðis eina af bók- um þeim, sem Dansk-íslenska fjelagið hefur sjeð um útgáfu á: »Danmörk eftir 1864«, eftir Einar Munk. M Johan Martin Meulenberg postullegur prefekt á íslandi. Hann er fæddur í Þýskalandi 30. október 1872. Stúdentspróf tók hann árið 1893 í Hollandi og var þar við háskóla í 1 ár, síðan 5 ár við háskóla í Algiers. Arið 1899 tók hann prestvígslu og var í 2 ár docent við mentaskólann í Schimmert í Hollandi. Því næst var hann í 2 ár prestur í Danmörku (Hróarskeldu) og kom ásamt síra Servaes presti hingað til Islands árið 1903 sem sóknarprestur. Alþingi gerði hann árið 1921 að ríkisborgara. Hinn 13. júnímánaðar þessa árs skipaði páfi Pius XI. hann postullegan prefekt hjer á landi. Prefekt Meulenberg hefur gefið út á íslensku kaþólsk fræði og kaþólska bænabók, en hvorug þess- ara bóka var áður til á okkar máli. Meulenberg prestur hefur nú verið hjer 20 ár. Hann hefur staðið fyrir ýmsum framkvæmdum, sem kaþólska kirkjan hefur haft hjer með höndum. Hún á hjer stórar lóðir á hæðunum í vestanverðum bæn- um. Heitir þar í Landakoti og er þar eitthvert hið fegursta útsýni hjer nærlendis. Eign þessa keypti ka- þólska kirkjan nokkru eftir miðja síðastliðna öld og er hún nú mikils virði. Þar hefur verið reist kirkja og skólahús, í einkennilegum stíl, auk íbúðarhúss prestanna. Landakotsspítalinn stendur einnig á lóð kaþólsku kirkjunnar og er reistur af henni, eða fjelagi, sem stendur í sambandi við hana, og hefur hann verið mjög þörf stofnun bænum og landinu, enda aðalspítali þess nú um langt skeið, og verður það þangað til landsspítalinn fyrirhugaði kemst upp. Meulenberg prestur hefur jafnan notið hjer vinsælda og virðingar allra, sem til hans þekkja. Hann talar íslensku nær því sem innfæddur maður og er furðu- fróður í sögu Islands, mjög vel mentaður maður, eins og gerist um kaþólska klerka, og hinn ljúfasti og skemtilegasti í umgengni. J. M. Meulenberg. Kaþólski söfnuðurinn hjer er ekki fjölmennur, en margir sækja oft guðsþjónustur kaþólsku prestanna, ekki síst þegar einhver sjerstök hátíðahöld fara þar fram, svo sem þegar haldnar voru þar minningar- guðsþjónustur um Jón biskup Arason og Jón biskup helga Ogmundsson, og nú síðast er van Rossum kardínáli kom hjer í heimsókn í sumar, sem leið. Bölsynið. Dauði er hjer og dauði er þar, dauðinn ríkir alstaðar. Yfir, undir og alt um kring er illra norna fordæming. Bjartsýnið. Líf er hjer og líf er þar, lífið ríkir alstaðar. Allt sem vekur ama kend er úthverfa á lífsins vend.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.