Óðinn - 01.07.1923, Side 43

Óðinn - 01.07.1923, Side 43
ÓÐINN 91 að efast um rjettsýni hans, eða saka hann um hlut- drægni eða sjerdrægni. Eins og áður er sagt bjó Árni rausnarbúi á Þverá í 47 ár, en vorið 1907 fluttist hann með Birni syni sínum að Syðri-Ey og þar dvaldi hann úr því til dauðadags. Á Þverá gerði Árni jarðabætur allmiklar, sljettaði meiri hluta túnsins er áður var mest alt þýft, og færði það út um 5—6 dagsláttur. Hann færði peningshúsin suður yfir ána, því þaðan var hægara til beitar, og ræktaði þar upp úr órækt kýrfóðursvöll. Mun töðufall á Þverá hafa aukist um fullan helming við búskap hans þar. Árni var aldrei efnamaður þó bú hefði hann allstórt, því hann hafði lengi ómegð mikla og kostaði miklu til menningar börnum sínum. Hann var forsjáll í búnaði, stjórnsamur eg ástsæll af hjúum sínum, enda spilti þar ekki um kona hans. Luku allir upp um það einum munni, er þar voru í vist, að betri húsbændur gæti varla. Svanlaug kona Árna var þrem vetrum yngri, fædd 7. okt. 1834. Hún var fríð kona sýnum, mesta valkvendi og ástsæl af öllum er nokkur kynni höfðu af henni, örlát og greið- vikin og mátti ekkert aumt sjá. Árni var maður mikill vexti, hár og þrekinn, karl- menni að burðum og harðfylginn sjer, fríður sýnum, eygður mjög vel, og að öllu hinn höfðinglegasti. Hann var raddmikill og gildrómaður, hinn skörulegasti í framkomu og sópaði að honum hvar sem hann fór. Kallaður var hann heldur harðskiftinn og ekki fyrir- látssamur, ef á hluta hans var gert, en ráðhollur var hann og hjálpsamur öllum sem manntak var í, og hann sá að vildu bjargast áfram af sjálfsdáðum, og öllum betri mönnum sem náin kynni höfðu af honum, varð hlýtt til hans. En ónytjungum og letingjum var hann harður í horn að taka og stóð þeim löngum beygur af honum. Ekkert var honum leiðara en óheil- indi og undanbrögð og fanst fátt um þá menn, er í viðskiftum neyttu slíkra bragða. Hann var hinn skemti- legasti heim að sækja, gestrisinn og viðræðugóður, fróður um margt og minnugur og hafði til að vera glettinn og gamansamur. Áhugasamur var hann um landsmál og stefnufastur, en var lítið gefið um gasp- ur alt og »agitationir«, áleit ekki góðan málstað þurfa slíks við til að sigra, en hávaði og gauragangur spilti jafnan fyrir hjá öllum góðum mönnum. Ekki var Árna gjarnt að halda sjer fram til virð- inga eða metorða, nje sækjast eftir vinfengi valda- manna. Sýnir það best framkoma hans er hann fjekk dannebrogs krossinn. Það var sumarið 1896, og stóð þá svo á að kjósa skyldi sóknarprest í Hofspresta- kalli. Kjörfundurinn var haldinn á þingstaðnum Skaga- Þessi mynd á við Strigabátsferðina hjer á undan og sýnir þá Angantý Guðmundsson og Guðm. H. Pjetursson á strigabátnum. strönd. ]óhannes Jóhannesson, er þá var settur sýslu- maður Húnvetninga, reið út eftir til að stjórna fund- inum. Hafði hann þá með sjer dannebrogs krossinn, gerði lykkju á leið sína, fór til Þverár og vildi hafa Árna hreppstjóra með sjer á kjörfundinn til að hengja þar á hann krossinn. Árni tók þvert fyrir það. Tjáðu ekki fortölur sýslumanns, og varð hann að láta sjer nægja að heimafólk eitt á Þverá væri viðstatt, er Árni tók við krossinum. Varla mun það ofmælt, að fáir menn munu hafa farið með sveitarmálefni og notið svo fullkomins trausts sveitunga sinna og Árni. Þótti hverju máli vel borgið í höndum hans, máttu tillögur hans sín jafnan mikils hjá sveitarbúum, og naut hann bæði virðingar þeirra og ástsældar, einkum hin síðari árin. Var hon- um sýndur þess nokkur opinber vottur. Qullbrúð- kaupsdag hans, 16. sept. 1906, hjeldu hreppsbúar þeim hjónum fjölment samsæti. Var það haldið á Skaga- strönd, en þar höfðu þau verið vígð saman fyrir 50 árum. Færðu samsætisgestir honum að gjöf haglega gerðan silfurbikar og í 300 krónur í gulli, en fjarver- andi ættingjar og vinir sendu skrautritað ávarp og vandað skrifborð. Er Árni Ijet af hreppsnefndar og oddvitastörfum vorið 1910 var honum aftur haldið samsæti í kveðju- og þakk.ætisskyni. Þar var honum færður að gjöf vandaður göngustafur. Árni hafði alla æfi verið maður heilsuhraustur, en nú tók kröftum hans mjög að hnigna. Um þessar mundir var honum og mjög tekin að förlast sjón, og fór hann því síðari hluta vetrar 1911 til Reykjavíkur að leita sjer bótar við sjóndeprunni. Tjáði það ekki, og varð hann því sem nær alveg sjónlaus síðustu árin. Svanlaugu konu sína misti hann 6. jan. 1916; höfðu þau þá búið saman í farsælu hjónabandi tæp sextíu ár. Eftir það þverruðu mjög kraftar hans, þó hann hefði lengst af ferlivist. Hann ljest 6. okt. 1918. Þau hjón áttu ellefu börn. Af þeim komust þessi til fullorðinsára: 1. Sigurlaug, dó uppkomin í foreldra-

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.