Alþýðublaðið - 09.10.1963, Blaðsíða 3
Bandarísk hveiti-
sala til Rússlands
Washington, 8. okt. NTB-Afp.
Kenncdy forseti mun líklega
tilkynna á blaðamannafundi á
niorgun, miðvikudag, að hann hafi
leyft sölu á verulegu magni af
liveiti til Sovétríkjanna. Góðar
heimildir skýrðu frá því, í dag,
að allar líkur bentu til þess, að
ameríska ríkisstjórnin myndi
leyfa kornsölu þessa, rétt eins og
Kanada hefur gert.
Talið er, að hin sovézlcu korn-
kaup muni nema um 250 milljón-
um dollara, en ekki liefur þó
fengizt opinber staðfesting á
þessu í Washington. Ekki er held
ur ljóst við hverju verði kornið
verður selt. Bandaríska innanlands
verðið á skeppu er tveir dollarar
en heimsmarkaðsverðið er 1.40
dollarar. Ymsir þingmenn í Was-
hington vilja að ríkisstjórnin
krefjist hæsta verðs, því að sala
á heimsmarkaðsverði þýði í raun
inni að bandaríski ríkiskassinn
styðji hin sovézku kornkaup.
Blönduósi, 8. okt. — GH-HP.
Tíðarfar er sæmilegt eins og er.
Snjórinn að mestu liorfinn úr út-
sveitum, en inn til dala er þó enn
nokkur snjór.
Margir áttu eftir að taka upp
kartöflur hér um slóðir, þegar ill-
viðriskastið kom, og er viðbúið að
þær hafi þá viða skemmzt í görð-
um í frostinu. Slátrun stendur yf-
ir á Blönduósi.
Stokkhólmi, 8. október. (NTB).
DICK HELANDER BISKUP var í dag yfirheyrður í fjórar
klukkustundir um meðferð hans á ýmsum ritvélum, sem skipta
meginmáli við endurupptöku máls hans við Hæstarétt Svíþjóð-
ar. Biskupinn er orðinn 67 ára gamall og er nú sem fyrr ákærð-
ur fyrir að hafa skrifað níðbréf um keppinauta sína um bisk-
upsstólinn á ritvélar þessar. í fyrri réttarhöldunum gat hann
ekki nægilega gert grein fyrir allri þeirri margbrotnu og dul-
arfullu verzlun og feluleik er hann lék með ritvélar þessar á
sínum tíma. Ekki tókst honum heldur að skýra þessi mál betur
nú, svo nokkru næmi.
Síðastliöinn föstudag varð að fresta réttarhöldunum vegna
iasleika Helanders. I dag hafði hann náð sér nokkuð en var þó
fölur, grár og gugginn. Saksóknari tók verulegt tillit til heilsu-
fars hans og var hann aðeins yfirheyrður 45 mínútur í senn
en fékk að hvíla sig í 15 mínútur á milli. Er réttarhöldunum
lauk í dag, var Helander yfirkominn af þreytu.
New York, 8. okt.
NTB-Reuter.
Paul-Henri Spaak utan
ríkisráðherra Belgíu, hinn
þekkti leiðtogi jafn-
aðarmanna, sagði í ræðu í
dag, að óafsakanlegt væri að
vísa á bug tilboðum Krústj-
ovs um friðsamlega sam-
búð austurs og vesturs.
Ræðu þessa flutti hann á
Allsherjarþingi SÞ og fékk
dunandi lófaklapp fyrir.
-------—. * ----------- '
Belgrad, 8. október.
NTB-Reuter.
Nokkurra sterkra jarð-
skjálfta varð I dag vart í
Skoplje, og eru þeir taldir
liinir mestu síðan jarðskjálft
arnir miklu í sumar lögðu
borgina að mestu í rústir.
Að þessu sinni skemmdust
mörg hús að nýju en fólk
æddi skelfingu lostið út á
götur og burt úr borginni.
London 8. okt. (NTB-Reuter).
Hinn frægi dálkahöfundur
Cassandra í Lundúnablaðinu
Daiiy Mirror skrifar í dag
að hinir öldnu stjórnmálal'eið
togar de Gaulle, Macmilían
og Adenauer hafi ekki lært
að draga sig út úr pólitík
með sæmd. Um de Gaul'le
scgir hann, að hann nálgist
endalokin með hroka er feng
ið gæti sjái'fan Napóleon til
að roðna, Adenauer geri eft
irmanni sínum stórum erf-
iðara fyrir en nauðsynlegt
sé og Macmillan íni sjálfan
sig, félaga sína og þjóð með
því að sitja áfram.
Jöfnun heimsgæða
stærsta verkefnið
New York, 8. okt. (NTB).
„Við krefjumst ekki í dag hehn
boða af ríkisstjórn Suður-Afríku
til að rannsaka ríkjandi ástand,
sem er vel þekkt, heldur stjórn-
málalegs fráhvarfs frá kynþátta-
aðskilnaðinum,” sagði Halvard
Lange, utanríkisráðherra Norð-
manna í stjórnmálaumræðum Alls
herjarþingsins í dag. ,,Suður-
Afríka verður að hverfa frá þving
MACMILLAN
London, 8. okt. (NTB-Reuter).
Harold Macmillan forsætisráð-
herra var í dag lagður inn á sjúkra
hús, þar sem gerður verður á hon-
um uppskurður.
Fregnir um þetta komu mjög á
óvænt í Bretlandi. Nú stendur yf-
ir í Blackpool flokksþing íhalds-
manna og átti forsætisráðherr-
ann að halda þar ræðu á laugar-
dag, en af því getur nú ekki orð-
I unarkenndri fyrirætlan sinni um
! stofnun Bantustan (einangruð af-
■ rísk svæði), skiptingu landsins,
j til virðingar fyrir mannréttindum
og grundvallandi frelsi. Ef teikn
! eru á lofti um slíka stefnubreyt-
ingu yrði lieimboði vel tekið og
fagnað, og ég er viss um að sér-
hverri sanngjarnri beiðni urn að-
stoð vegna erfiðleika breytinga-
i tímans, annað hvort frá SÞ eða
Á SPÍTALA
ið. í þeirri ræðu mun hann hafa
ætlað að gefa yfirlýsingu um það
hvort hann héldi áfram að vera
höfuðleiðtogi brezka íhaldsmanna
eður ei.
Macmillan er nú 69 ára gamall.
Hann þjáist af sjúkdómi í blöðru-
hálskirtlinum og verður væntan-^
lega skorinn upp á fimmtudag. í
forföllum hans gegnir Butler vara-
forsætisráðherra embættisstörf-
um Macmillans.
einstöku aðildarríki, yrði vel tek
ið,” sagði Lange.
Hann hóf máls með því að segja
að afstaða Noregs til kynþáttaað-
greiningar og nýlendustefnu væri
vel þekkt. Á síðustu mánuðum
höfum við lagt fram sjónarmið
okkar í Suður-Ródesíu-málinu í
Öryggisráði SÞ og jafnframt höf-
um við tekið þátt í samþykkt á-
lyktana um hinar portúgölsku ný-
lendur í Afríku og kynþáttastefnu
Suður-Afríkustjórnar.
Við hljótum að vona, sagði H.
Lange ennfremur, að ríkisstjórn
Suður-Afríku geri það í eigin
þágu að taka tillit til þeirra al-
varlegu aðvarana, sem Öryggisráð-
ið beindi til hennar vegna þessa
máls í ágúst í ár. Við biðjum
þessa ríkisstjórn eindregið að
að breyta stefnu sinní í átt til
frjáls, lýðræðislegs þjóðfélags er
veitir öllum íbúum Suður-Afríku
sambærileg lífskjör og rétt til gð
búa saman í friði og hamingju
án' tillits til kynþáttar og trúar-
bragða, sagði hann. En lialdi rík-
isstjórnin áfram að framfylgja
Framh. á 15. síðu.
Per Hækkerup, utanríkis
ráðherra Dana, fékk mörgr
mikilVæg loforð af hálfu-
Efnahagsbandalagsnefndar-
innar á fundi, sem stóð
í fimm klukkustundir, í
dag.
Nefndin viðurkenndi að
Danir ættu í alvarlegum
drfiðleiikum hvað sner'jjr
úijflutnjng á landbúnaðar-
vöru. Hún kvað sig fúsa til
þess að íhuga hvaö hægt
væri að gera tif þess að
hjálpa Dönuni.
Bæði Hækkerup utanrík
isráðhenra og fulltrúar
nefndarinnar kváðu viðræð
ur hafa verið mjög jákvæð-
arl. Dan(r voru mjög á-
nægðir með viðræðurnar.
Hækkerup vildi ekki skýra
frá efni dönsku tillögunar
til lausnar vandamálum
Dana að svo komnu máli.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. okt. 1963 3