Alþýðublaðið - 24.10.1963, Qupperneq 4
1 Tónleikar Musica Nova l
MAKGT liefur orðið þess vald-
andi á seinustu árum að áhuga-
mennska virðist vera á góðri
leið með að deyja út á ísiandi.
Musica Nova, áhugafólag nokk-
urra atvinnuhljómlistarmanna,
virðist þó vera eitt af þeim fáu,
sem lifir og er í stöðugum
vexti þótt of hægt fari. Fyrsttt
tónlcikar félagsins voru haldn-
ir í Þjóðleikhúskjiallaranum
síðastliðinn sunnudag og var
aðsókn ágæt. Fyrsta verkið á
efnisskránni var CONSERTXNO
fyrir klarinet og strengjakvart-
ett eftir Cngverjann Matyas
Seiber. Verk þeíta, hvers stíi-
einkenni benda til að hafi ver-
ið skrifað einliverntíma á
milli heimslyrjaldanna, er mjög
aðgengilegt og var ágætlega
flutt. Klarinetthlutverkið er
þrælerfitt og skilaði Gunnar
Egiisson því vel. TVEIR
ÞÆTTIR eftir Hollendinginn
Peter Scliaat, fyrir flautu,
fiðlu. trompet og slagverk,
munu hafa .þótt allnýstárlegir.
Þættir þessir eru ekki rismikl-
ir en nutu sín einkarvel — sem
andstæða fyrsta verksins. Flutn
ingur virtist takast vel. Sann-
færing allmikil var í hinu á-
gæta ADAGIO eftir Alban
Berg. Seinasta verkið, HAUST-
LITIR eftir Þorkel Sigurbjörns
son, sem skrifað er fyrir G
hljóðfæraleikara og söngrödd,
einkennist af vandvirkni og
sparsemi. Ég veit að skýringar
á vinnuaðferðum og efnisnotk-
un tónskáfds geta komið að
miklum notum fyrir suma
hlustendur, en verk, sem eigi
stendur fyrir einhverju án
skýringar, er ekki mikilsvert.
Vinnuskýringar vegna Haust-
lita eru óþarfar, verkið er
þrungið dramatískum krafti og
yndisleik sem auðvelt cr að
meðtaka. Sigurveig Hjaltested
fór með sönghlutverkið og skil-
aði því með sannfæringu, sama
verður að segja um aðra flytj-
endur.
Musica Nove er sannarlega
þarfur félagsskapur og eiga fé-
lagsmenn miklar þakkir skilið'
fyrir störf sín. Félagið hefur I
huga að fá hingað erlenda
hljómlistarmenn í vetur, en
fjárhagur styrkjalausra áhuga-
mannafélaga er ávallt bágbor-
inn og vil ég því eindregið mæl
ast til þess að tónlistaráhuga-
menn gerist styrktarmeðlimir
þcssa félags. Áskriftarlistar
liggja frammi í kaffistofunni
Mokka við Skólavörðustíg.
Jón S. Jónsson.
',‘ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiivuiiiii: MiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiMuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiMiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiMMiMiMiiiaM^'
Lék á sama hljóðfærið
og fyrír átján árum
Reykjavík, 21. okt. — HP.
Rögnvaldur Sigurjónsson, pí-
anóleikari, kom heim 13. þ. m.
-aftir vel licppuaða liljómleikaför
*LÍl Kanaúa og Baudaríkjanna. —
Lagði hann af stað í förina 12.
jseptember og hélt fyrsta konsert-
iinn í Wtnnipeg 18. september. —
Annan konsertinn hélt hann í
Vancouver 23. sept. og þann 3.
i Seattle tveim dögum síðar. —
tSíðustu tónleikarnir voru haldn-
ir í Washington D.C. 6.-7. þ. m.
Fyrirgreiðsla á öllum þessum stöð-
um var cins góö og bezt verður
á kosið, píanóleikaraniun mjög
vel tekið, og Iuku gagnrýncndur
yfirleitt miklu lofsorði á lcik
Högnvaldar.
Washingtonkonsertinn var hald
inn í Ríkislistasafninu þar í borg
en þar hélt Rögnvaldur píanó-
liljómleika 1945. Var það skemmti
leg tilviljun, að hann skyldi nú
leika á saraa hljóðfærið og fyrir
18 árum, en Rögnvaldur sagði, að
fciað væri nákvæmlega jafngott nú
og þa og bezta liljóðfæri, sem
tiann hefði leikið á. Allt frá 1945
tiafa þeir átt bréfaskipti Rögn-
valdur og yfirmaður tónlistar-
deildar Ríkislistasafnsins, Ric-
Siard Bales. Iíafði Bales spurt Rögn
vald, hvort liann vildi ekki koma
vestur og halda þar tónleika aft-
•ur, en vegna kostnaðar og fyrir-
fiafnar viidi liann ekki leggja
■vipp í slíkt ferðalag, nema hann
igæti haldið fleiri konserta í sömu
íerð. Sneri hann sér þá til for-
jmanns Þjóðrækisfélagsdeildar-
iinnar í Reykjavík, Sigurðar Sig-
Turgeirssonar, sem brást mjög
vel við og skrifaði íslendingum
vestan liafs og spurðist fyrir um
það, hvort þeir hefðu áhuga á
vnálinu. Einnig var haft samband
við Thor Thors, ambassador í
Washington af sama tilefni. Virt-
ist alls staðar vera mikill áhugi
á að fá Rögnvald vestur í
iiljómleikaför. í Winnipeg voru
f>að Þjóðræknisfélagið og Colo-
firity Concerts, sem gengust fyr-
4r hljómleikunum í Playhouse
•Theatre. Voru þeir mjög vel sótt-
Sr, sem segja má um alla kon-
I sertana. Einnig lék Rögnvaldur
í útvarp í borginni og var gerður
! að heiðursborgara Winnipeg, og
| er hann fjórði íslendingurinn, er
' þann heiður hlýtur. Rögnvaldur
1 lætur þess getið, að konsertarn-
ir hafi allir verið mjög vel undir-
búnir og auglýstir og nefndi eink-
um í því sambandi Gretti L. Jó-
hannsson, ræðismann í Winnipeg,
Snorra Björnsson, formann þjóð-
j ræknisdeildarinnar „Ströndin” í
Wancouver og Tana Björnsson,
: í Seattle, sem er kunnur maður
í sambandi við tónlistarlíf þar.
í Vancouver voru tónleikarnir
lialdnir í Playhouse Theatre, en
í Seattle í Seattle Center Play-
house, en þar söng um leið ís-
lenzkur karlakór, Icelandic Male
Chore of Seattle. E'ns og fyrr
segir, voru síðustu tónleikarnir
haldnir í Washington D.C. 6. þ.
m. en frá blaðadómum um leik
Rögnvaldar mun verða skýrt síð-
ar í blaðinu. Hann sagði, að ferð-
in hefði verið erfið, en mjög á-
nægjuleg.
Björgvin Vilmundarson
formaður Varðbergs
Reykjavík, 22. okt. — EG.
Á fjölmennum aðalfundi Varð-
bergs, sem haldinn var í gærkvöldi
var kosin stjórn fyrir félagið. Að-
alstjórn þess skipa nú: Björgvin
Vilmundarson, formaður, Ólafur
Egilsson og Jón Arnþórsson vara-
formenn, ritari Hörður Einarsson
og gjaldkeri Ásgeir Sigurðsson. Á
Björgvin Vilmundarson.
fundinum kom þá fram að mik-
ill áhugi er nú fyrir stofnun Varð-
bergsdéilda víða úti á landi, og er
deildastofnun víða I undirbúningi.
Fráfarandi formaður félagsins,
Heimir Hannesson, gaf skýrslu um
starfsemina á.síðastliðnu árL Kom
fram í skýrslunni, að á árinu efndi
stjórnin til fræðslunámskeiðs um
Evrópuráðið, EBE og OECD, fóru
síðan 10 þátttakendur í kynnisför
til höfuðstöðva framangreindra
stofnana. Félagið hefur á árinu
gengizt fyrir fjölda kvikmyndasvn-
inga og hafa þær verið mjög vel
sóttar, bæði af utan og innan-
félagsmönnum.
Formaður skýrði og frá því, að
félagið væri nú að hefja útgáfu
tímarits, sem ætlunin væri að út
kæmi ársfjórðungslega. Mun fyrsta
heftið væntanlegt innan skamms.
Það kom og fram í skýrslunni, að
mikiil áhugi er víða út; á landi
á stofnun Varðbergsdeilda. Um
næstu helgi er ráðgert að stofna
deildir í Vestmannaeyjum og á
Akranesi. Gjaidkeri, Ólafur Egils-
son, las og skýrði reikninga félags-
ins. Fóru svo fram umræður um
skvrslu formanns og gjaldkera, og
siðan stjórnarkjör.
4 24. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞÝZKUR JAFNAÐARMAÐ-
UR í BOÐI VARÐBERGS
Næstkomandi miðvikudag 23.
október kemur hingað til lands í
boði Varðbergs Stephan G. Thom-
as, yfirmaður Austur-Þýzkalands
deildar vestur-þýzka Alþýðuflokks
ins. Mun hann flytja hér fyrir-
lestra og erindi í boði félagsins
og hitta ýmsa áhrifamenn að
máli.
Er þannig ráðgert að hann flytji
fyrirlestur í Háskóla íslands, er-
indi á ráðstefnu stúdenta um
næstu helgi, fyrirlestur í
Menntaskólanum á Akureyri, fyr-
irlestra á fundum Varðbergs í
Reykjavík og á Akureyri osfrv.
j Áætlað er að hann hverfi heim-
i leiðis eftir 6 daga dvöl hér. Hann
. er einn helzti sérfræðingur ríkis-
i stjórnarinnar í Bonn í málefnum
Austur-Þýzkalands og járntjalds-
landanna yfirleitt, hefur oft og
víða flutt erindi og fyrirlestra um
þau mál og hefur síðan árið 1948
veitt forstöðu þeirri deild í aðal-
stöðvum vestur-þýzka Alþýðu-
flokksins í Bonn, er fjallar um
málefni Au-Þýzkalands.
Stephan G. Thomas er liðlega
fimmtugur, fæddur í Berlín árið
1910. Hann lauk prófi úr Karl-
Marx-skólanum þar og tók siðan
próf í stjórnlagafræði við Stjórn
málalýðháskólann þar árið 1938.
Síðan nam hann alþjóðalög,
mannkynssögu og slafnesk fræði
við háskólann í Berlín og Varsjá
árin 1934-1939. Hann varð með-
limur Alþýðuflokksins árið 1930
og barðist í andspyrnuhreyfing-
unni gegn nazistum frá upphafi
þar til yfir lauk. Árið 1945 var
hann kjörinn í framkvæmdastjóm
flokks síns. Hann er nú, auk fyrr
greinds starfa síns, fyrirlesari við
svokallaðan „Ostkolleg” þýzku
ríkisstjórnarinnar í Köln og ráð-
Stefhan A. Tliomas
gjafi Friedrich-Ebert-stofnunar-
innar í Bonn. Meðal nýlegra rita
hans má nefna „Stefnuskrá aust-
ur-þýzlca kommúnistaflokksins”,
„Deilur Rússa og Kínverja” og
„Valdakerfi einræðisríkis og utan
ríkisstefna þess.”
1-2 skrifstofuherbergi
óskast sem næst miðbænum.
Uppl. í síma 16554 milli kl. 3—5.
Lögtaksúrskurbur:
Hér með úrskurðast lögtak fyrir ógreiddum tryggingagjöld
um til Tryggingastofnunar ríkisins, sem greiðast áttu í
janúar og júní s. 1., söluskatti 4. ársfjórðungs 1962, 1. árs-
Jjórðungs 1963 og 2. ársfjórðungs 1963 svo og öllum ó-
greiddum þinggjöldum og tryggingagjöldum ársins 1963,
tekjuskatti, eignarskatti, námsbókagjaldi, slysatrygginga-
iðgjaldi, atvinnuleysistryggingasjóðsiðgjaldi, iðnlánasjóðs-
gjaldi, kirkjugjaldi og kirkjugarðsgjaldi, sem gjaldfallin
eru í Kópavogskaupstað. Ennfremur bifreiðaskatti, skoðun
argjaldi bifreiða og vátryggingagjaldi ökumanna, en gjöld
þessi féllu í gjalddaga 2. janúar s. 1., svo og skipulags-
gjaldi af nýbyggingum, skipaskoðunargjaldi, lestagjaldi og
vitagjaldi, rafstöðvagjaldi, vélaeftirlits-gjaldi svo og ó-
greiddum iðgjöldum og skráningargjöldum vegna lög-
skráðra sjómanna, auk dráttarvaxta og lögtakskostnaðar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu þessa úr-
skurðar án frekari fyrirvara ef ekki verða gerð skil fyrir
þann tima.
Bæjarfógetinn í Kópavogi 19. okt. 1963.
Sigurgeir Jónsson.