Alþýðublaðið - 24.10.1963, Síða 5
BjLSKÚRINN
TÓK Á LOFT
L
Stokkseyri, 23. okt.
Hér hefur verið hreint fárviðri
eíðan klukkan sex í dag, en er
heldur að lægja þessa stundina
(klukkan 10). Þessi ósköp koma nú
í miklum rokum, en hingað til
hefur verið hvíldarlaus veður-
Þungi.
Einn bílskúr, sem var hér í
smíðum, tók upp í heilu lagi af
grunninum og hvarf út í sortann.
Eitthvað af járnplötum hefur fok-
ið, og hér hafa tómar olíutunnur
verið á ferðinni. Ekki er þó vit-
að um neitt alvarlegt tjón.
Bátar liafa verið hér inni und-
anfarna daga, og enginn var á
sjó í dag. Það hefur ekki verið
mikill sjór, og bátunum óhætt í
höfninni. Nokkrar rafmagnstrufl-
anir hafa verið, þó aðallega í
sveitinni austan þorpsins, þar
sem algjört myrkur hefur verið
I að undanförnu.
VEÐUR HAML-
AR SÍLDARLEIT
Reykjavík, 23. okt. — GO.
EINS og frá var skýrt hér í I
blaðinu á þriðjudaginn, fór Þor-
steinn þorskabítur út til síldar-
Ieitar á mánudag, eftir að hafa
legið hér í höfninni yfir helgina
vegna bilunar. Við hringdum í
Jón Einarsson skipstjóra í dag og
spurðum hann frétta, en skipið var
þá statt £ Miðnessjó og á leið
uppundir land í var.
Jón sagði, að litlar fréttir væru
— vitlaust veður dag eftir dag og
engin síld finnanleg, hvorki i Mið-
nessjó eða Skerjadýpi. Hins veg-
ar varð skipið vart við síld út af
Jöklinum fyrir helgina, en þar
hafa þeir fáu bátar, sem byrjaðir
eru veiðar haldið sig. Jón sagði,
að einn bátur hefði haldið sig á
þeim slóðum þangað til í dag, að
hann er á leiðinni inn til Akra-
ness. Þessi bátur er hið nýja skip
Akurnesinga, Sólfari. Veðurham-
urinn undanfarna daga hefur vald
ið því að bátarnir hafa lítið sem
ekkert getað verið að, en fengið
smákropp, þegar hægt hefur ver-
i ið að kasta milli bylja.
Loffvogin féll
Framhald af 16. sfðu.
um hefur veðurhæðin í dag kom-
izt upp í 10-11 vindstig, nema þar
sem skjóls nýtur. Veðrinu fylgdi
mikil rigning um allt Iand, eink-
lim á Suður- og Suðausturlandi,
en á Vestfjörðum var krapahríð.
Hitinn í dag var 4-7 stig. Um kl.
21 var vestan- og suðvestan storm
ur um land allt, víða skúrir. —
Sums staðar var þá rok eða ofsa-
veður. Veðurstofan spáði þá vest-
anroki um allt landið og hafið
euður undan, þar eð við norður-
Etröndina var djúp lægð á lireyf-
ingu NA.
Dagur S.Þ.
Framh. af bls. 5.
kynið veginn til friðar og mann-
réttinda. Öllum þjóðum er lífs-
nauðsyn, að þrennt nái fram að
ganga, ef réttlætinu skal full-
fullnægt. Þetta þrennt er: afvopn-
un, afnám nýlenduskipulags og
þróun allra landa.
NÆSTA spilakvöld AI-
þýðuflokksfélags Reykjavík-
ur veröur £ Iðnó nk. föstu-
dag 25. okt. og hefst kl. 8,30
e.h. í þetta skipti hefst fjög-
urra kvölda keppni og eru
heildarverðlaun £ henni, auk
venjulegra kvöldverðlauna,
tvenn 12 manna kaffistell.
Stjórnandi spila-
kvöldsins verður Gunnlaug-
ur Þórðarson. Ávarp flytur
Jón Pálsson tómstundaráðu-
nautur. — Hljómsveit Ein-
ars Jónssonar leikur fyrir
dansi til kl. 1 e.m.
Fjölmennum á fyrsta kvöld
Ið £ fjögra kvölda keppn-
inni. Nefndin.
Tve/'r s/ösuð-
ust i rokinu á
Akureyri í gær
Akureyri, 22. okt. — GS—ÁG.
Hér urðu tvö slys £ kvöld af
völdum veðursins. Millj kl. 8 — 9
fauk uppsláttur af húsi við Hrafn
agilsstræti. Maður að nafni Reyn-
ir Ragnarsson, smfður varð fyrir
e-'nhverju af timbrinu og skarst
á höfði. Hann var fluttur á sjúkra-
húsið. Þá varð maður að nafni Páll
Alfreðsson fyrir járnplötu og
meiddist á fæti og hendi. Hann var
einnig fluttur á sjúkrahús.
'Hér hefur verið mjög hvasst, og
nokkrar rafmagnstruflanir. Þá bil-
aði endurvarpstöðin í Skjaldarvík
Trillur voru á sjó, en þær náðu all
ar til lands nema ein, sem varð að
taka land á Svalbarðseyri. Þá i
slitnaði upp báturinn „Laxinn“,
en það er nótabátur, sem hefur
verið notaður við síldveiðar hér á
Pollinum. Hann rak upp í fjöru
fyrir neðan Strandgötuna.
ÞRJAR MILLI
LANDAVÉLAR
SNÉRU VIÐ
Reykjavík, 23. okt. — ÁG.
Þrjár millilandaflugvélar á leið
til íslands urðu að snúa við vegna
óveðurs. Loftleiðaflugvél, sem var
að koma frá Gautaborg, varð að
snúa við skammt frá Vestmanna-
eyjum. Hún lenti £ Stavanger. •—
Önnur Loftleiðaflugvél, sem var
á leið frá Luxemborg, varð einn-
ig að snúa við og lenda £ Prest-
wick.
Skymastcrflugvél frá Flugfélagi
íslands, sem var á leið frá Lond-
on, snéri við og lenti £ Prestwick.
Ein flugvél varð veðurteppt á ísa i
firði. Flugvélar bandariska flug-
i hersins, sem nú eru að heræfing-
1 um, flugu rétt fyrir sunnan ís-
1 land á Ieið sinni vestur um haf.
i Þær Ientu ekki i óveðrinu.
ErEing Blöndal
í heimsókn hér
Reykjavik, 23. okt. — KG.
Erling Blöndal Bcngtsson, celló-
leikari er staddur hér á landi um
þessar mundir. Hann mun á morg-
un leika einleik með Sinfónfu-
hljómsveitinni. Þá mun hann
halda tvo tónleika á vegum Tón-
rslarféic.ghins hér i Reykijavík.
Síðan fer hann til Akureyrar og
Selfoss og spilar þar.
Fréttamenn spjölluðu stuttlega
við liann í dag, en hann er nú
að leika inn á band fyrir útvarp-
ið sólósvítur Bachs. Hann kvaðst
vera mjög ánægður með að vera
Erling Blöndal' Bengtsson
kominn hingað, og hann væri
hér eing og heima hjá sér. Síðast
kom hann hingað 1959 og skaut
Árni Kristjánsson því inn í, að
leitt væri að hann kæmi hér ekki
á hverju ári.
Erling Blöndal Bcngtsson var
búinn að vera á einni æfingu í
Háskólabíói og var hinn ánægð-
asti með húsið, en það hefur hann
ekki séð áður. Einnig var hann
mjög ánægður með hljómsveitina
og kvað hana bera tónlistaríhu<?a*
tslendinga lofsvert vitni. Nú vant-
aði aðeins íslenzkt cellóverk
handa sér t.il þess að leika. Erl-
ing Blöndal Bengtsson hefur ver-
ið prófessor við konunglegu Mus-
ikakademiuna í Kaupmannahöfn
síðan 1953. Hann kvaðst hafa haft
einn íslenzkan nemanda í celló-
leik þar, en það er Pétur Þor-
valdsson. Hann er nú cellóleikari
í Árósum, og kvað Erling hann
vera mikinn tónlistarmann. Ekki
eru neinir íslendingar hjá hon-
um nú, en þeir eru alltaf velkomn-
ir.
Á tónleikunum á morgun mun
Erling Bengtsson leika einleik í
konsert eftir Sjostakovitsj, en sá
konsert var saminn 1959 og hefur
Erling oft áður leikið einleik í
þessum sama konsert.
Tónleikarnir á vegum Tónlistar-
félagsins verða i Austurbæjarbíói
og verður Árni Kristjánsson við
píanóið.
Héðan fer Erling Blöndal Bengt-
son aftur til Danmerkur um mán-
aðamótin. í desember fer hann
svo í langt konseitferðalag til
Rússlands og leikur þá i mörgum
borgum og í janúar heldur hann
tónleika í Stokkhólmi.
FRA STEFANIRAFNI
VEGNA yfirlýsingar forseta
uðfræðideildar háskólans, er
irtist í dagblöðunum í dag, vil ég
eyfa mér að gefa eftirfarandi
kýringu:
Mér er það fyllilega ljóst, að ég
r ekki innritaður nemandi í guð-
ræðideild, enda mun eigi þurfa
■mbættispróf í guðfræði til að
;erast djákni.
Hins vegar hef ég fengið munn-
legt samþykki allra (fjögurra)
prófessora deildarinnar fyrir því
að sækja kennslustundir og fyrir-
lestra þar, og hef ég gert það þær
vikur, sem liðnar eru af yfir-
standandi kennslumisseri.
Ástæða fyrir þessu námi mínu
þar er, eins og fram kom í við-
Framh. á bls. 10
Fordæmi
Halldórs
HALLDÓR Ásgrímsson, úti-
bússtjóri Búnaðarbankans á
Egilsstöðum, er meðal flutn-
ingsmanna að frumvarpi um
vaxtalækkun. í greinargertf
segjast þeir Halldór og félagar
ætla að flytja á Alþingi frunv-
vörp og tillögur, sem sýna
.... hvernig þeir telja skyn--
samlegt að ráðstafa sparifénu’5,
Síðan segja þeir Halldór:
„Mundi það sýna sig sem fyri,
ef sá háttur væri á hafður,
hverju atorkumikið ráðdeildar ■
fólk fær áorkað, ef því er trú -
að fyrir peningum”.
Væntanlega telja framsókn ■
armenn, að Halldór hafi geficl
ágætt fordæmi með lánvciting •
um sínum á Egilsstöðum!
Niðurgreiðsla
vöruverðs.
ENDA ÞÓTT uppbætur á út »
fluttar afurðir, aðrar en kjöi:
hafi verið afnumdar, þegar við -
reisnin kom til skjalanna, vai'
ýmsum niðurgreiðslum á vörui',
sem seldar eru innanlands.
ha)d;ð áfram. Slíkar riiður-
greiðslur eru allt annars eðliti
en útflutningsuppbætur og eiga
mun meiri rétt á sér.
Með því að greiða niður verö
tiltekinna vörutegunda er þjóð •
félagið að jafna tekjum milll
landsmanna á vissan hátt. Þetta
cr félagsleg ráðstöfun, sem á
rétt á sér og getur haft mikla
þýðingu. Að vísu njóta ríkir og
fát.ækir slikrar niður-
Igreiðslu jafnt, en þess ber þ6
að gæta, að fátæka manninia.
munar meira um hverja krónu,
sem hann greiðir fyrir matvæli,
og hjálpin kemur honum því afcl
fullum notum.
Vissulega hefur komið fyrir,
að niðurgreiðslur á einstökum
vörutegundum hafa gengið út
í öfgar og haft óæskileg áhrif,
eins og komið var með kart -
öflurnar á sínum tíma. Slíkti
galla er þó hægt að forðast od
má ekki fordæma allar niðui -
greiðslur þeirra vegna.
í seinni tið hefur verið vax -
andi tilhneiging til að van -
meta og jafnvel rægja niður-
greiðslur innanlands, og er þafcl
vafasöm iðja, að ckki sé meíra
sagt. Virðist það vera liður i
þeirri íhaldshugsun að ríkiíJ
megi hvergi nærri koma við-
skiptum og skuli þar ríkja ai-
gert „frelsi”. Neytendur raunu
þó vera á öðru máli, enda haía
þeir í verðlagsmálum og á fleirl
sviðum fengið mjög misjafna
rcynslu af hinu takmarkalausa
„frelsi”. Það viil oft kosta tölú-
vert fé, þegar saman er tínt, og
neytandinn verður venjulega
að borga.
Niðurgreiðsla á lífsnauðsynj •
um er félagsleg ráðstöfun, sem
hefur mikla þýðingu fyrir allí
efnahagskerfið og kemur hin-
um efnaminni mest að gagni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. okt. 1963 $