Alþýðublaðið - 24.10.1963, Qupperneq 9
ekki frítt, heldur tók kr. 50.00 fyr-
ir að sprauta hverja belju. Bænd-
unum fannst Það ekki vera nokkur
peningur, miðað við að missa
kannski allar beljurnar sínar úr
„Gin- og klaufaveikinni"
— Ja hérna, er þetta sönn saga?
— Það veit ég ekki vinurinn,
ég sel hana ekki dýrara en ég
keypti, en fjandi er hún skemmti-
leg og lík Stjána.
— Herðu Kalli, þú segir mér
eina sögu enn. Þá er þetta nóg
efni í heila opnu í blaðinu.
— Jæja, ætli maður verði ekki
að ,,redda“ þér eins og fyrri dag-
inn. Einu sinni bauð einhver mað-
ur Stjána með sér á „gæsaskytt-
erí“. Maðurinn átti uppstöppaða
gæs sem hann notaði til að hæna
að aðrar gæsir. Þeir aka nú sem
leið liggur eitthvað langt austur í
sveitir. Stján; var víst orðinn
spenntur að komast í skotfæri og
spyr hvort þeir fari ekki að nálg-
ast ákvörðunarstaðinn. Maðurinn
kvað þá eiga eftir að aka þó dálít-
inn spöl í viðbót. En skyndilega
hrópar Stjárii:
— Stoppaðu, stoppaðu, ég sé
gæsir þarna útfrá
Maðurinn stoppaði vitanlega, en
þeir voru einmitt staddir við af-
leggjara heim að einum sveitabæn
um. Stjáni þrífur nú gæsina fer
með hana út á tún og labbar síð-
an heim að bænum. Maðurinn
hljóp þá á eftir Stjána og spurði
hvort hann væri orðinn eitthvað
verri, bóndinn á þessum bæ hefði
Framh. á bls. 10
>f Aðálfundur
Félags ungra jafnaðarmanna
á Akureyri
verður haldinn í Búnaðarbankahúsinu (3.
hæð) laugardaginn 26. október kl. 2 e. h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagahreytingar
3. önnur mál.
Félagar fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
>f Aðalfundur
Félags ungra jafnaðarmanná
verður haldinn n.k. sunnudag kl. 2 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið stundvíslega.
‘ Stjórnin.
Erum fluttir
að Hverfisgötu 89.
Sími 24130.
Vinna
Konur eða stúlkur óskast til starfa við heimilishjálpina í
Kópavogi. — Upplýsingar gefur Sigurbjörg Jónsdóttir í
síma 10-757.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Nýkomið
TeryleBie
kvenblússyr
Kr. 252.00
.....
dZ>t
fella
Bankasíræti 3
B f L A L E I G A
/ Beztu samningarnir
Afgreiðsla: GÓNHÖLL hf.
rz Ytri Njarðvík, sími 1950
—- Eftir lokun 1284
Flugvöllur 6162
FLUGVALLARLEiGAN s/f
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. okt. 1963 9