Alþýðublaðið - 24.10.1963, Side 16
I
FRÉTTIR AF FÁRVIÐRINU, SEM GEKK YFIR LANDIÐ. — Sjá einnig bls. 5.
16 vindstig í Eyjum
- og talsvert tjón
ÚY'r
jíXÚfáyU:
Áfcfr
&, ÖMní
Vestm.eyjum, 23. okt. ES-AG.
Hér var veöurhæöin mest milli
kl. 6-8 í dae', 16 vindstig. Ekkert
verulegt tjón liefur orðið, en
betra verður að gera sér grein
fyrir hlutunum á morgun. — í
einni verstu rokunni tókst nóta-
bátur á loft og braut hann tvo
Ijósastaura á Friðarhafnarbryggju.
JÚNÍ
strandar
Togarinn Júní úr
Hafnarfirði strandaði
í nótt eftir 10 mín.
siglingu frá Hafnar-
firði. Togarinn strand
aði á skeri, en er ekki
talinn í hættu. Þorst.
þorskabítur og María
Júlía voru á leið til
hans um kl. 1 og átti
Þorsteinn þorskabít-
ur eftir klukkustund-
ar siglingu til hans.
Júní afþakkaði aðstoð
3. skipsins, og ékki
talinn í verulegri
hættu, nema að hvessi
Nokkrir skúrar fuku upp og*
tættust í sundur. Þá fauk járn af
nokkrum húsum og rúður brotn-
uðu. Sjómenn höfðu varann á, og
bundu báta sína rækilega. Þá voru
menn um borð í öllum bátunum.
Fjallfoss er hér við bryggju, og
óttuðust menn á tímabili, að
hann myndi slitna frá. Lóðsbát-
urinn fór þá af stað, setti stefn-
ið í hlið Fjallfoss, vélar á fullan
kraft áfram og hélt skipinu þann-
ig við bryggju. Brezkur togari
sem var hér í liöfn, slitnaði frá,
en mönnum tókst að binda hann
strax aftur. Þá liefur lieyrzt, að
bíll hafi fokið um koll.
Þrír bátar voru á leið liingað
í dag eftir söluferð til útlanda.
Þeir eru nú hér 70 mílur undan
og slóa. Þeir munu ekki ætla að
reyna að komast inn fyrr en tekur
að birta.
ELLIÐA
SAKNAÐ
Reykjavík, 23. okt. GO.
SAKNAÐ er lítils trillubáts frá
Rifi. Báturinn heitir Elliði og er
7 — 8 tonn að' stærð. Hann fór frá
Rifi kf. 2 í nótt og ætlaði til
Stykkishólms með viðkomu í Elliða
ey, en vitavörðurinn þar, Guðmund
ur Sveinsson, er annar tveggja
manna á bátnum. Tveir bátar frá
Ólafsvík hafa leitað Elliða í alít
kvöld, en án árangurs. Einliverjir
Stykkjshórmstfiátar voru að búa
sig í l'eit í kvöld. Ólafsvíkurbátarn
ir eru þeir Steinunn og Stapafell.
MIKIÐ rok var í Vestmanna-i*
eyjum síðastliðinn laugardag.
Engar skemmdir urðu þó
vegna veðursins, en sjór var
úfinn og grár, eins og sjá má á
þessari mynd. Þarna er far-
þegaskipið Hekla að fara frá
Eyjum, og í ú(siglingulnni
gekk sjórinn yfir það. (Ljósm,
Þórður Þórðarson).
TVEIR togarar seldu erlendig í
morgun. Gylfi í Bremerliaven 82
tonn fyrir 76,600 mörk og Geir
i Grimsby 88 tonn fyrir 10,789
pund, sem er mjög góð sala, enda
var aflinn nær eingöngu ýsa ætt-
uð undan Jökli. Meðalverð á kg.
var kr. 14,75.
TOGARIFORST
Ver kom fram í gærkvöldi:
MUMMI FÓR Á HLIÐINA
EN BJARGAÐISTIIL LANDS
Reykjavík, 23. okt. — HP. j þá gekk yfir landið. Varðskipinu
BREZKI togarinn Northern I Óðni tókst að bjarga áhöfninni,
Spray, GY-190, sfrandaði undir 20 mönnum, um borð í vélbát, sem
Grænuhlíð við ísafjaröardjúp um Óðinn sendi að togaranum. Björg-
fcl. 21.47 í kvöld í ofviðrinu, semlunin' tókst giftusamlega, en ekki
Kortiö sýnir strandstaðinu
var viðlit að freista þess að ná
togaranum á flot í kvöld vegna
þess, hve veðurhæðin var mikil,
Gera átti tilraun til þess með bht
ingunni.
Landhelgisgæzlunnni barst
skeyti um atburðinn frá Óðnj kl.
23.15, en skömmu fyrir kl. 1 átti
Alþýðublaðið tal við Þórarinn
Björasson, skipherra á Óðni, sem
þá lá undir Grænuhlíð.
Þegar togarinn strandaði, var
NA-rok og blindbylur á þessum
slóðum, og hafði Northern Spray
látið reka og leitað í var undir
hlíðina, eins og algengt er í slæm-
um veðrum. Óðinn heyrði fyrst til
togarans kl. 21.47 og var hann þá
rétt strandaður. Óðinn kom fljótt
á vettvang og skaut út vélbát, sem
sótti áhöfnina um borð, og var sæ-
rótið ekki meira en svo, að allt
gekk vel. Var áhöfnin komin um
borð kl. 23.25. Búizt var við vestan
roki á þessum slóðum í nótt, en þá
Framh. á bls. 10
Isafirði, 22. okt. - BS-AG.
VÉLBÁTSINS „Ver“ ÍS 108 var
saknað hér í kvöld eftir að veðrið
skall á. Hann hafð'i verið á rækju-
veiðum. Báturinn kom svo fram
uin kl. 9.30. Vélbáturiun Gunnvör
var íagður af stað til að leita að
honum, en mætti Veri út undir Arn
arnesi. Hafði ekkert komið fyrir
hann, nema ljós biluö.
Þegar veðrið skall á í dag, voru
rækjubátarnir dreifðir um innan-
vert Djúpið. Þrír voru hjá Æðey.
Milli kl. 4 til 5 skall á ofsaveður,
óg varð sjólag strax slæmt. Bát-
arnir lögðu þegar af stað til lands.
R'nn af þutsujn bá'tumv var;
i Mummi. Hann fékk á sig mikinn
j sjó og kastaðist á liliðina. Á honum
i voru tveir menn, og settu þeir út
| gúmmíbjörgunarbát, sem opnaðist
j ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraun
j ir. Mummi lá nokkra stund i hlið-
inni, og var útlitið vægast sagt
mjög alvarlegt. Þá rétti báturinn
sig skyndilega við, og komst heilu
og höldnu til lands.
Sjómenn segja þetta vera með
verstu áhlaupaveðrum. Hér inni
er nær logn, og hefur ekkert tjón
orðið. Flugvél Flugfélags íslands,
sem kom liingað í dag, tepptist og
var hún bundin niður á ílugvell-
inum. - ,
Loftvogln féll
með ofsahraða
Reykjavík, 23. okt. — HP.
Loftvog féll mjög ört eftir há-
degið í dag, svo að aðeins einu
sinni hefur mælzt jafnmikið fall
liérlendis. Það var á Dalatanga
fyrir fáum árum, þegar loftvogin
féll 26 millibara á 3 klukkustund-
um. í dag féll hún liins vegar
aðeins minna eða 23 millibara á
sama tíma, nánar tiltekið milli
kl. 12-15. Það fall mældist í
Vestmannaeyjum, þar sem veður-
Iiæðin mun hafa oröið mest. —
Vindhraðinn þar komst upp í
108 Iinúta rétt fyrir kl. 18 í kvöld,
en það jafngildir 16 vindstigum
eða um 200 km. liraða á klukku-
stund að því er Jónas Jakobsson,
veðurfræðingur, tjáði blaðinu í
kvöld. Þegar lægðin fjarlægðist,
steig loftvogin hins vegar litlu
meira en hún hafði fallið milli
kl. 12-15 eða um 23.7 millibara.
í Reykjavík féll loftvogin milli
kl. 12-15 litlu minna en í Vest-
mannaéyjum eða 21,1 millibara.
Um kl. 21 í kvöld var veður í
Vestmannaeyjum um 11 vindstig
eða 60 hnútar. í öllum landshlut-
1 Framhald á 5. síðu.