Alþýðublaðið - 14.11.1963, Blaðsíða 6
IMIHHHHHV/
m
Hjónabandssamn-
ingur konunnar
. Hjón nokkur, Reiblein að nafni,
-voru fyrir skilnaðarrétti í Chicago.
■ Það var frúin, sem vildi skilnað,
en maðurinn gat vel hugsað sér
að halda áfram.
Það gat frú Reiblein kannski
einnig, en aðeins gegn vissum skil-
yrðum. Henni fannst Reiblein vera
of mikið með öðrum konum, henni
fannst líka, að heimsóknir hans
væru of margar og of rakar. Hún
útbjó því þennan samning, sem
hann varð að undirrita og halda
ef hann vildi halda áfram hjóna-
bandinu:
1. Daglegar heimsóknir bannaðar.
2. Ráp með öðrum konum bann-
að.
3. Þegar þau færu saman út,
mátti hann ekki móðga konu
sína með þvi að daðra við aðr-
ar.
4. Hann skyldi taka þátt í heim-
ilisstörfunum.
5. Honum var stranglega bannað
að hrópa eða góla eða á annan
hátt að vekja athygli nágrann-
anna á hjónabandserjum þeirra.
6. Ef þau færu saman á veitinga-
hús, skyldi hann greiða reikn-
inginn fyrir þau bæði.
7. Hann skyldi fara með konu
sinni til kirkju á hverjum
sunnudegi.
Dómaranum fannst samningur-
inn „sanngjarn” — og Reiblein
ritaði undir með andvarpi. Honum
hlýtur að líka vel við konuna.
Þessi mynd er af hinum i'ræga. franska leikæ-a Michel Simon,
en það er helzt af honum að frétta um þessar mundir, að liann tel-
ur sig vera ofsóttan af afturgögnu föður síns sáluga, cn þeir voru
litlir vinir meðan báðir Iifðu.
^umtmmfniittifitiiiiiiii'iiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiHiiiiiiiMiiiHiiiiiiiiiiiniiiuuiuiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuhiiiiiiimji
í 18 ár hefur þögn grúft yf-
ir Nörhólmi, frá þeim degi, að
Knut Hamsun, eigandi hans,
var handtekinn af norskum
föðurlandsvinum. Það voru
hörmuleg endalok stórbrotins
ferils og reynslu, sem mestu
skáld okkar tíma hafa sótt
mikla þekkingu til.
Eins og mönnum er kunnugt,
var Knut Hamsun dæmdur fyr-
ir föðurlandssvik í stríðslokin.
Nú, svo mörgum árum síðar
kann mönnum að virðast með-
ferðin á Hamsun, sem er hér
var komið sögu, var ruglað gam
almenni og vissi ekki gjörla
hvað fram fóc umhverfis hann,
hafa verið of þjösnaleg En
biturleiki .orðmanna í garð
þessa miki s' álds þeirra sem
sveik þá svo immilega á r.tund
neyðarinnr •. vir dýpri og sár-
ari en við gö'um gert okkur í
hugarlund í fijótu bragði.
Nú er þetta dð breytast. í
sumar hafa amerískir ferða-
menn flætt yfir Nörholm, til
þess að sjá af eigin raun hvern-
ig Hamsun bjó.
Ekkja Hamsuns býr enn þá
að Nörhólmi 83 ára að aldri. —
Hún segir: Nú er allt gleymt og
ég er ekki bitur lengur.
Sárin eru gróin, en örin
standa eftir.
■mmrmTlVtllltlHIHHHHHII.IHHHHHHHHiHHHHHHHMHHHHHIIHHHHHHHIiilUMIIHHJHHHHMIHHHHHHHHHtHHUHHHHHIHIIIIIIIIIHHMHHIIIIIIIHMIIIIIIIIIIIIIIII' 'llilim^
FRÆGIR MENN I
Þá er komið að Ben Bella að
vera efstur á frægðarlistanum. Og
ekki að ástæðulausu. Mánuðurinn
hófst hjá honum með uppistandi
í Kabýlíu undir forustu Ait Ah-
med og Ou E1 Hadj. Alsírska þjóð-
in rambaði á barmi borgarastyrj-
aldar þegar stjórnarherinn hélt
inn á óeirðasvæðið. Svo kom
landamærastríðið milli Alsír og
punkta
1. Ben Bella 140 (4)
2. Erhard 99 (9)
3. Adenauer 91 (14)
4. Nenni 76 (—)
5. Douglas Home 70 (19)
6. Kennedy 68 (1)
7. Mcmillan 66 (11)
8. De Gaulle 46 (3)
9. Hækkerup 44 (—)
10. Ahmed (Alsír) 34 (8)
11. Butler 33 (—)
12. Ilassan (Marokkó) 30 (—)
13. Rusk 29 (—)
13. Krústjov 29 (2)
14.
15. Ou E1 Hadj (Alsír) 27 (—)
16. Selassie 22 (—)
17. Hailsham lávarður 21 (—)
18. Saragat (Ítalíu) 16 (—)
18. Murville 16 (—)
18. Goldwater 16 (—)
Marokkó og þá voru innanlands-
erjur lagðar til hliðar. Að loknum
blóðugum bardögum var gert
vopnahlé milli Alsír og Mar-
okkó fyrir milligöngu Haile Se-
lassie Eþíópíukeisara. Framtíðin á
hins vegar eftir að leiða í ljós hve
lengi þetta vopnahlé helzt.
í V-Þýzkaiandi urðu kanzlara-
skipti. Aðeins tveim dögum síðar
tók Home við af Mcmillan í Bret-
landi. Þar voru líka haldin lands- •
mót stærstu flokkanna í október,
en ennþá meiri athygli vakti ráð-
stefria ítalskra sósíalista, þar sem
hægri armurinn undir forystu Nen-
nis tryggði sér meirihluta með
þeim afleiðingum að unnt er að
mynda nýja ríkisstjórn. Hækker-
up, utanríkisráðherra Danmerkur
Iiefur lagt fram umdeilda Suður-
Afríkuáætlun hjá Sameinuðu
þjóðunum og staðið fyrir dönsk-
um umræðum um Efnahagsbanda-
lag Evrópu, Kennedy hitti Tító
En bæði Kennedy og de Gaulle
hafa tryggt sér marga punkta
vegna skoðana, sem þeir hafa lát-
ið í ljós í málum, sem hafa verið
mjög umrædd síðan.
Þannig lítur þá listinn út yfir
mest umtöluðu menn heimsins f
október. (Röðin í september í ,
svigum).
Sérstætt afmæli
Óvenjuleg afmælisveizla var
haldin fyrir nokkru í Glasgow.
Afmælisbamið var Billy Elder,
sem hélt hátíðlegan 21. afmælis-
dag sinn. Gestirnir voru 120
manns, sem á þessu tuttugu og
eina ári hafa bjargað lifi hans 200
sinnum. Það voru læknar, blóð-
gefendur, sjúkraflutningsmenn,
hjúkrunarkonur. Þau eiga eftir að
bjarga lífi hans ótal sinnum í
framtíðinni, því að Billy þjáist a£
ólæknandi blóðsjúkdómi, sem lýs-
ir sér þannig, að minnsta skráma
getur valdið honum dauða.
Billy blés á kertið og snéri sér
brosandi að gestunum. Þökk, sagði
hann, þökk fyrir líf mitt. Það er
mikil náð fyrir mig, að geta blásið
á 21 kerti á afmælistertunnl
minni, og það á ég einungis ykk-
ur að þakka. ..
6 14 nóv. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐID
1