Alþýðublaðið - 17.11.1963, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 17.11.1963, Qupperneq 15
! — Elsbeth! ' Þetta var rödd Henriks. Ég Eór að hágráta, og varpaði mér í faðm hans. —- Henrik! Mér hafði verið bjargað. Ég þrýsti mér að honum. Hann þurrkaði af mér tárin, og kyssti1 mig á ennið. — Hver var þetta Elsbetli? — Mér tókst ekki að þekkja liann. — Ég sá að hann náði taki á þér. Ég sá blómin. Bíddu hérna. — Nei, Henrik, þú mátt ekki fara frá mér, æpti ég móður- sýkislega. Skildu mig ekki eftir eina. — En ég verð að reyna að ná í manninn. Hann getur ekki ver ið kominn langt. — Farðu ekki frá mér, grét ég, ekki . . . — Komdu, ég skal aka þér heim, sagði Henrik. Við verð- nm að leita að manninum á eftir. Þú getur ekki gefið neina lýsingu á honum? — Nei, hvíslaði ég. Fyrst hélt ég, að það væri Tajt, en svo fannst mér það vera . . . Ég var næstum því búin að segja Rolft, en áttaði mig á síð- ustu stundu. — Hver? — Einhver ókunnugur mað- ur. Það er ógjörningur að greina andlitssvip í myrkrinu. Þar að auki bar hann hettu, sem slútti fram yfir andlitið. — Þú verður að gæta strax að því, þegar þú kemur lieim Elsbeth, hvort Tajt er heima. Ef hann er heima, getur þetta ekk'i hafa verið hann. Heima tók Nanna á móti mér, Ijómandi af hamingju. Hún sagði mér, að Evald ætlaði að skíra rósina í höfuðið á henni. — Hvað hefur komið fyrir, ungfrú, sagði hún allt í einu, þegar hún tók eftir andlitssvip mínum. Ég vildi ekki segja henni frá neinu, ég bað hana bara að láta renna í baðkerið. — Er Tajt heima? — Nei, hann fór út rétt á eft- ir þér. Ég hresstist við baðið, og Nanna sótti handa mér svefn- töflu. Hún dró tjöldin fyrir glugg ana, og fór. Ég lagði aftur aug- un, og beið þess að svefninn sigr aði mig. Stundarfjórðungur leið, síðan hálftími. Mér tókst ekki að sofna. Það var eins og svefntaflan hefði aðeins örvandi áhrif á mig. Ég lá glaðvakandi með þandar taug- ar . . . Svo fór ég að svitna. Magavöðv arnir drógust saman eins og í krampa. Mér fannst ég vera að hníga í ómegin. — Furðulegt, hugsaði ég. Aldrei hefur mér liðið svona vegna einnar svefntöflu! Ég svitnaði stöðugt, og ég fékk hvert krampakastið á fætur öðru. Mér tókst með erfiðismunum að reisa mig upp í rúminu. Allt liringsnérist fyrir augunum á mér, gólf, veggir, loft. Skyndi- lega fékk ég ákafar kvalir. Ég kastaði mér til í rúminu og æpti. Þegar kvölunum linnti, reyndi ég að rísa á fætur, en fætumir neit uðu að hlýða mér. Krampaköstin ágerðust. Það var eins og ég væri stungin ótal hnífum. Ég æpti og æpti. Dyrnar opnuðust, og Nanna kom innt — Guð minn góður ., , hvað er að þér? ( Ég gat ekki svarað. Ég kastaði mér bara fram og aftur í rúminu. Ég sá náfölt andlit Nönnu eins og í þoku. — Guð hjálpi mér, hrópaði liún. Hún er að deyja! Sami krampinn og gamla frúin dó af! Það var það siðasta, sem ég heyrði, áður en ég hné í ómegin. Ég var viti mínu fjær af ótta. Nú vissi ég, að það liafði ekki verið svefntafla, sem ég fékk. Það var lífshættulegt eitur. 6. KAFLI. Ég rankaði þrisvar við mér um nóttina. í fyrsta skiptið Var ég ein í herberginu, og ég hrópaði á Nönnu. Mér fannst ég heyra raddir utan af ganginum. — Nanna. En rödd mín var of veikburða. Það heyrði enginn til mín. Aft- ur á móti heyrði ég, að það var Fylgia, sem var frammi á gangi. — Fylgia, hrópaði ég. Meira tókst mér ekki að segja, ég missti aftur meðvitund. í annað skiptið, sem ég vaknaði, var ég ekki lengur ein. Fylgia, Sara og Tajt, voru inni hjá mér Sara og Tajt, voru inni hjá mér. Fylgia var að hagræða rúmföt unum mínum. Það var kominn morgunn, þeg ar ég vaknaði í þriðja skiptið. Dr. Berg, gamli læknirinn henn ar ömmu, sat við rúmstokkinn hjá mér, og horfði á mig áhyggju fullu augnaráði. Við fótagaflinn stóð Fylgia, íklædd glæsilegum morgunslopp. — Hún virðist hafa borðað eitthvað, Sém • hún hefur ekki þolað, sagði Fylgia. Dr. Berg kinkaði kolli, og taldi æðáslögin. — Þetta er sennilega einhvers konar matareitrun, hélt Fylgia áfram. Eða hvað haldið þér? — Jú, sennilega, tautaði lækn irinn.. Hún hafði ekki tekið eftir því, að ég var vöknuð. — Hefur hún kastað upp, spurði hann. — Já, dálítið. — Það er gott. Við skulum vona, að hún hafi kastað upp mestu af því, sem valdið hefur þessarri eitrun. En hún verður að liggja í rúminu nokkra daga. Segið henni, að ég komi bráð um aftur. Það er bezt, að ein- hver sitji hér hjá henni, þar til hún nær fullri meðvitund. Ég klemmdi aftur augun. Nú var Berg gamli farinn að barma sér yfir gigtinni. Ég beið bara eftir að hann færi. — Fylgia, hvíslaði ég strax og hann var farinn. Hringdu til dr. Hammars. — Hvers vegna? Dr. Berg hef ur alltaf vérið heimilislæknirinn okkar. Hahn yrði liræðilega móðgaður ... — Mér er alveg sama, greip ég fram I fyrir henni. Ég vil fá almennilegan lækni til að rann saka mig. Ef þú vilt ekki hringja til dr. Hammars fyrir mig, þá bið ég Nönnu um að gera það. — Nanna vinnur hér ekki leng ur, sagði Fylgia. —, Hvað? Hvenær hætti hún? — Ég sagði henni upp í gær, sagði Fylgia þóttalega. Mér geðj ast ekki að ósvífnum þjónustu- stúlkum. Hún neitaði að gera það, sem ég bað hana um. Mig langaði til að segja henni til syndanna, en fann ekki réttu orðin. Þokan umlukti mig aft- ur, þó að ég berðist eins og ég gat á móti henni: — Harry, komdu og hjálpaðu mér! — Þú þarft ekki að hegða þér svona kjánalega vegna þessarar matareitrunar, sagði Fylgia. Reyndu bara að sofna. Ég sit hér hjá þér. - — Fylgia hrópaði ég. Hringdu til dr. Hammars. Ég bið þig . . . skipa þér það. Flýttu þér! — Kemur ekki til mála, svar- aði Fylgia. Við getum ekki kom ið þannig fram við gamla heim- ilislækninn okkar. — Þá hringi ég sjálf. Ég steig fram úr rúminu, en fæturnir létu undan mér. Ég rið aði, en datt svo fram yfir mig. Meira man ég ekki. Ég vaknaði ekki fyrri en um nón daginn eftir, og þá sat Harry á rúmstokknum hjá mér. — Harry, hvíslaði ég, og rétti fram báðar hendur mínar. — Elsku Rauðhetta litla! Hann kyssti hendur mínar, var ir mínar . . . — Nú er allt í lagi, elskan, hvíslaði hann. Dr. Hammar er ___ Nei, komdu sæll Karl frændi, sæl Klara frænka, góðan daginn frú Iiansen, góðan daginn herra Iíansen . . . á leið hingað. Ég var að hringjá tií hans. ; Ég hreiðraði um mig í rúminu, og sagði honum hvað gerzt hafði — Mig grunaði, að eitthvap slikt væri að, sagði Harry. É£ hringdi hingað, en Fylgia kom í símann. Mér fannst grunsaní- legt, hvað hún var vingjamleá. Hún gaf í skyn, að þú værir bara dálítið lasin, það væri hreinjt ekki alvarlegt. Hún sagðist helzt ekki vilja vekja þig, því að di). Berg hefði sagt, að þú ættijr að sofa og livíla þig. — Hún hefur ekki minnst £ krampaköstin? í Hún sagði bara, að þér væiji illt í maganum. Ekkert annað. Hún vék sér undan að svarh spurningum mínum. Ég skelliii á og fór beint heim. Ég kom fyjr ir tuttugu mínútum, og þar ej ég náði ekki sambandi við þig hringdi ég í dr. Hammar. Hvé nær tókstu eiginlega inn svefn!- töfluna. — Rétt eftir að ég kom heinaL Nanna lét renna í bað fyrir mig og hjálpaði mér í rúmið. Þa$ THIS 15 SUCH A Y X AM THE COBD WHO > EOMANTIC 5TORy„, INVITED MR.PtLANÉ TO , Y'SEE.THE PRE51- THE CAMPl'S IN TKE < DENTOP AiAUMEg FIPST PLACB! AND NCW FBLT THATA WOMAM THAT DEAN DAAY AND HE MI6HT ÖJVE YbU A HAVE...BUT MAYBE YOU ^ CI.EARER PICTIIRB... PONT CAP.E TD HEAR THE '______________RESTFROM ME.----------------- r 5IR/W0ULD > YOU UNEME TO 5EE THE PRESS,fZAD 10 V AND TV? ; ■/ YES - VVHERE'S POCTOR BU>CHT£H WELL. — Dr. Blotcher, það er allt að ganga af göflunum út af Delane og Daay rektor. Blaðamennirnlr eru komnir. — k ég að sjá nm fréttasnápana? Mér er svo ansi sýnt um svoleiðis. ~. Já . . . ■?." • — Sælir herrar mínir. Hér stendur yfir áríðandi skyndifundur. — Hvcr ert þú? — Hvar er dr. Biotcher? — Þetta er svo rómantískt allt saman, að rektor var þelrrar skoðunar, að ég sem kona, mundi geta geflð ykkur betri mynd af þessu. Það var ég, sera bauð Delane hingað, o( nú þegar hann og Ðaay rektor . . . Þið kse* ið ykkur ef tU vill ekkert um að ég segt ykkur þetta? — Haltu áfram, hvað skeði: HAVE A SOKT OF FLAIfT FORTHAT KIND . OF STUFFÍ OVr, HELL.O, 6ENTLEMENÍ THE PRESIDENT, DEAN OP FACULTY AND ACTIN6 DEAN OF WOMEN AEE H.AVINO AN EMERúENCY CONFERENCE/. THE REPORTERS ARE HereJ ' PR.BLOCHTER, THE WORD |S OUT ABOUT PEAN PAAY AND MR. m PELANG ' 00 ON! —WHAT HAPPENEP ALÞÝÐUBLAÐIB — 17. nóv. 1963 n

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.