Alþýðublaðið - 17.11.1963, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 17.11.1963, Blaðsíða 16
 Eins og fyrr segir, þá kom Jakov liingað beint frá Banda- ríkjunum, þar sem hann hélt \i tónleika á rúmum mánuði. Nokkru áður hafði hann verið í Bretlandi og Frakklandi. — Hann kvaðst vera mjög á- nægður með móttökumar þar. „Ég held ég hafi kynnzt þjóð- inni í gegn um áheyrenduma, og þau kynni voru góð. Annars gæti ég skrifað heila bók um þessa stuttu dvöl mína í Banda- ríkjunum,” sagði hann. Héðan fer Jakov til Moskva, verður þar í 10 daga, en 30. nóvember heldur liann aftur af stað í tón- leikaför. Þegar henni er lokið byrjar hann að kenna. Hann kvaðst nú hlakka til að leika fyrir íslendinga. Hann hefði reynt flygilinn í Háskólabíói, og liann væri góður. Aftur á móti væri hljómburðurinn í húsinu ekki góður, enda húsið sýnilega ekki byggt til að halda þar píanótónleika. Þá snémm við máli okkar að öðrum píanóleikurum, og eðli- lega varð Askenazy ofarlega á baugi. Jakov kvaðst þekkja hann nokkuð vel, var meðal annars prófdómari þegar hann lauk prófi sínu við „Konserva- tóríið” í Moskva. Þá hefði Ar- kenazy verið nemandi eins af vinum hans. Orðrétt sagði Ja- kov: „Askenazy er sterkur pianó leikai’i, ef ég má orða það þann ig. Hann ræður yfir mikilli tækni, og í þeim efnum er hann snillingur. Hann hefur ekki eins mikla hæfileika til að lifa sig inn í verk þau, sem hann flytur. Annað vil ég ekki segja um hann.” Þá spurjmm við um álit lians á Van Cly- burn. Um liann sagði Jakov: „Van Clyburn er ugglaust einn bezti píanóleikari, sem nú er uppi. Það sem gleður mig þó mest, er, að hann leikur bezt rússneska tónlist. Kennari Cly- burns lauk prófi í Moskva, og frá honum hefur Clyburn orð- ið fyrir miklum álirifum.” í lok viðtalsins sagði Jakov, að hann væri þakklátur fyrir Framh. á 13. síðu þessu óhappi, væri ég fyrir löngu kominn til íslands,” —. sagði hann brosandi. Er við spurðum Jakov hinn- ar sígildu spurninga um hvar honum hefði þótt bezt að leika á sínum mörgu og löngu reis- um svaraði hann: „Sérhver listamaður tekur list sína al- varlega hverjir svo sem áheyr- endurnir eru. Áheyrendumir sem slíkir eru vissulega mis- munandi, en listamaðurinn hlýtur alltaf að reyna að gera sitt bezta, hvort sem hann er í Bandarikjunum eða Rúss- landi. Tónlistarsmekkur þjóð- anna er eins mismunandi og þær eru margar. í liverju landi má finna ákveðinn hóp manna, sem hefur áhuga á góðri tónlist. Þó held ég að Tékkar séu einhverjir mestu tónlistar- unnendur, sem ég hefi kynnzt. Sjálfir segja þeir, að á hverju einasta heimili í Tékkóslóvakiu megi finna einhvern, sem get- ur leikið á hljóðfæri. í framhaldi af þessu kom spurning um hvort ekki væri erfitt að vera þekktur og viður- kenndur píanóleikari, sem á- heyrendur krefðust mikils af. Því svaraði Jakov: „Vissulega er það erfitt og ki’efst mikill- ar vinnu. Eg lield, að eftirfar- andi, sem heimsfrægur píanó- leikari sagði, skýri það bezt: ,,Ef ég hef ekki æft einn dag, heyri ég það sjálfur. Ef ég hef ekki æft í tvo daga, heyra vinir mínir það. Ef ég hef ekki æft í þrjá daga, heyra álieyrendur það.” Eg kenni yfirleitt 3 til 4 | Reykjavík, 15. nóv. — AG. ! Sovézki píanóleikarinn Jak- ! ov Flíer er staddur hér á ["landi um þessar mundir. Hann | kemur hingað beint frá Banda- ríkjunum þar sem hann hélt ! 12 tónleika á rúmum mánuði, ! og vakti óskipta athygli og [ aðdáun. Jakov heldur hér að eins eina tónleika, og eru þeir í dag í Háskólabíói. Hann fer héðan á mánudag heim til Moskva. Alþýðublaðið átti stutt viðtal ; við listamanninn í dag. Hann ; kvaðst vera fæddur í Moskva ! fyrir sléttum 50 árum. Á píanó V hefur hann leikið frá því liann ; man eftir sér, en byrjaði að ; æfa reglulega 7 ára gamall. Í Tíu ára gömlum var honum veitt skólavist við „Konserva- tóríið” í Moskva, sem af mörg um er álitinn einn bezti tón- Ílistarskóli veraldar. Árið 1933 lauk hann þar námi, og hvarf ; frá skólanum með heiðurs- ! merki úr gulli í barminum. I Síðan hóf hann tónleikaferðir, ! og lék þá bæði sjálfstætt og ; með liljómsveitum. Árið 1935 [ hlaut hann 1. verðlaun í píanó ! samkeppni í Leningrad og ári r seinna í Vín. Frá því 1936 hef- ! ur hann annazt kennslu við ; „Konservatóríið” í Moskva og 5 jafnframt haldið tónleika. Hann daga í viku. Það sem eftir er vikunnar, nota ég eingöngu til æfinga, nema þegar ég held tónleika. Þar sem ég er mikið á ferðinni, hef ég tvo aðstoð- armenn við kennsluna. Eru það fyrrverandi nemendur mínir. Þegar ég hefi kennt eina stund, taka þeir við og ljúka timun- um' með nemendunum. Eg æfi eitthvað á hverjum einasta degi. Ef ekki er kennsla, þá 5 til 6 klukkustundir á dag, annars 1 til 2 tíma.” MILUÓNAMÆRINGUR, SEM BORGAR EKKISKATT EF EINHVERN framtaksaman an lesanda langar til að vcrða margfaldur milljónamæringur án þess að borga eyri í skatt, er hon- um ráðlagt að hlusta á útvarpið í kvöld. Þar mun norskur maður, sem hefur einmitt gert þetta og orðið auðugasti máður sinnar þjóð ar, skýra frá, hvernig hann fór að. Þátturinn er byggður á hinni frægu bók um Parkinsons lögmál- ið. Hafa hugkvæmir Norðmenn gert nokkra mjög nýstárlega út- varpsþætti, sem byggðir eru á bókinni, en fræðir til norskra staðhátta. Fyrir tveim vikum var fluttur á sunnudagskvöldi fyrri þátturinn af tveim, sem Rörisút- varpið liefur tekið til flutnings. í þeim þætti var skýrt frá skrif- stofu forsætisróðherrans, sem varð að stórbákni á skömmum tíma, eins og venja er um opin- berar skrifstofur. í seinni þættin- um, sem fluttur verður í kvöld, eru skattar og skattsvik tekin til meðferðar, og mun ýmsum þykja fróðlegt að he5(ra, hvað getur gerzt á því sviði. Itölsk strengja- sveit í heimsókn ÍTÖLSK strengjasveit, I Solisti Veneti er væntanieg hingað til lands nk. fimmtudag og mun halda hljómleika í Þjóðleikhúsinu næsta dag, föstudag, 22. nóv. Stjórnandi strengjasveitarinnar er Claudio Scimone, en aðal einleikari Piero Toso. Strengjasveitin I Solisti Ve- neti er skipuð tólf mönnum, er leikið hafa saman síðustu fjögur árin og þegar aflað sér viðurkenn- ingar í tónlistarlífi Evrópu. Þeir koma hingað á sjálfs sín vegum, hafa þó nokkurn styrk frá ítölsk- um stjórnarvöldum vegna sérstakr ar kynningar þeirra á Feneyjatón- list fyrri alda, m. a. tónlist Viv- aldis, Tartinis og Bonportis. Und- irbúning tónleikanna hér og fyrir greiðslu strengjasveitarinnar ann- ast Skrifstofa skemmtikrafta, — Pétur Pétursson. Á sl. ári fóru I Solisti Veneti í hljómleikaferð um meginlandið, Norðurlönd og England, og hlutu hvarvetna prýðilega dóma. Gagn- rýnandi The Times sagði m. a. I Solisti Veneti strengjasveit frá Feneyjum hélt sína fýrstu tónleika í Englandi í Victoriu og Albert Museum í gærkvöldi — og reynd- ist með beztu sveitum erlendra hljóðfæraleikara, er við höfum heyrt á síðustu árum. Segir gagn- rýnandinn, að leikur þeirra hafi verið tæknilega frábær og borið blæ nákvæmrar ögunar jafnt sem hjartanlegrar leikgleði. ENGIN SÍLDVEIÐI Reykjavík, 16. nóv GO. ENGIN síldveiði var í nótt. Veð ur var óhagstætt og cnginn bátur kíftaði, Kojnu þeir fiestir ínn seinni partinn í gær. Kl. 10 í inorgun og framundir hádegið voru þeir samt að tínast út aftur, en þá var veður allgott þó spáin sé slæm. Sumir bátanna, sem komu inn í nótt voru með smáslaíta frá í fyrrinótt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.