Alþýðublaðið - 24.11.1963, Side 2
ftltsijórar; Gylfl Gröndal (ao.) og Beneaiki Gröndai. Fréuastjórl
tml Gunnarsson. — Rltstjómarfulltrúl: Eiður Guðnason. — Símar:
14960-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Al-þýðuhúsið viö
Fverfisgotu, Keykjavík. — Prentsmiðja AlþýðuOlaOsins. - Askriftargjaid
tr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintakið. ~ Útgefandi: Alþýðufiokkurlnn
UPPSKERA HATURSINS
HVARVETNA um hinn siðmenntaða heim rík-
ir nú sorg og uggur vegna sviplegs fráfalls ungs og
dugmikils þjóðhöfðingja. Sorg, vegna þess að einn
af dyggustu jstuðningsmönnum frelsis og mannrétt
inda er fallinn í valinn, og uggur vegna þess, að
öfgaöflin hafa sýnt hug sihn til frelsis og lýðræðis
í verki.
Fréttin um lát Kennedys Bandaríkjaforseta
ívákti ekki aðeins undrun, hún vakti einnig skelf-
ingu. Það sýna viðbrögð almennings og stjórn-
málaleiðtoga um víða veröld.
Þegar þetta er ritað, er ekki vitað með viíssu
hjverjir haturs eða öfgamenn frömdu þennan
hryllilega verknað. Víst má þó telja, að þar hafi
■'öfgaöfl 1 einhverri mynd verið að verki. Öfgaöfl,
sem sá hatri, og uppskera dauða. Öfgaöfl, sem svo
:fá ruglað dómgreind manna, að ekki er lengur
•gerður greinarmunur á réttu og’ röngu.
Kennedy forseti barðist gegn þessum öflum. Sú
ibarátta skapaði honum hatursmenn. Þótt hann
hefði ekki lengi setið á stjórnarstóli, hafði hann
samt unnið hug og hjörtu heilla þjóða.
Barátta hans fyrir jafnrétti allra kynstofna
gerði það að iverkum, að hann var dáður og virtur
af milljónum manna um allan heim. Uppfrá þessu
munu hann og Liincoln forseti oft nefndir í sömu
•andrá. Það eitt segir meira um hann og lífsstarf
: hans, en mörg orð fá lýst.
Fánar blakta nú í hálfa stöng í löndum þar
ii sem lýðræði og mannréttindi eru einhvers metin.
Þjóðhöfðingjar og stjórnmálaleiötogar eru allir sam
mála í ummælum sínum um hinn látna bandaríska
forseta: Hann var mannkosta og drengskaparmað
ur. Allir eru á einu máli1 um, aö fyrir hans tilstilli
hafi nú horft friðvænlegar í heimi hér en áður.
Það er von allra ábyrgra manna, að alþjóðamál
þróist áfram ef'tir þeim brautum, sem honum
hafði með stjórhkænsku og víðsýni tekizt að beina
• þeim inn á.
. Þegar Kúbudeilan ivar á hátindi, fylgdist al-
■ heimur með viðbrögðum hins unga forseta. Hann
brást ekki hlutverki sínu. Heldur sannaði enn einu
sinni, að hann var réttur maöur á réttum stað.
Öfgaöfiin, sem urðu John F. Kénnedy 35. for-
seta bandarísku þjóðarinnar, að aldurtila, eru alls-
staðar að verki. Þau eiga líka sína talsmenn á ís-
lndi. Það fyrirfinnast alls staðar menn, sem sá hatri
og brengla dómgreind fólks með því að rægja og
míða andstæðinga sína röngum sökum. Það er
skylda hivers hugsandi manns, að berjast gegn þess-
um öflum. Berjast gegn þeim með heiðarlegum
og drengílegum aðferðum.
eyíí-ív.:# ■
2 24. nóv. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐI0
NÝ MÓTSTAÐA
i NÝTT SÉRBYGGT
- , HAf PENNUKEFLI
TRAN3ISTOR MAGNARI
■
Grensásvegi 18 — Sími 37534 — Reykjavík
TRANSJSTOR kveikjum agrtari
Transistor kveikjukerfið tryggir yður:
1 Örugga gangsetningu.
2 Stórbætta endingu á kert-
um og platínum.
3 Benzínspamaður 5—10%.
4 Verndar gegn sót- og gjall-
myndun, og minnkar þar
með stórlega viðhaldskostn-
að.
5 Enginn viðhaldskostnaður á
transistor magnaranum.
6 Transistorinn tryggir yður
mjúkan gang jafmvel í
benzínvélum sem byggðar
eru fyrir hærri cotan tölu
benzíns en hér fæst.
7 ísetning tekur aðeiins
30 mínútur.
E i n k a u m b o ð :
Útsölustaðir:
Rcykjavík:
Bifreiðaverkst. Stimpill, Grensásv. 18.
Bílanaust h/f, Höfðatúni 2.
Borg’arnes:
Bifreiða og Trésmiðja Borgarness h/f.
Hvammstangi:
Hjörtur Eiríksson.
Blönduós:
Bifreiðaverkst. Kaupf. Húnvetninga.
Sauðárkrókur:
Bifreiða og Vélaverkst. Kaupfélags
Skagfirðinga.
Akureyri:
Bifreiðaverkstœðið Þórshamar h/f.
Húsavík:
Bílaverkstæði Jóns Þorgrímssonar.
Keflavík:
Stapafell h/f.
Sendum gegn póstkröfu.
SÍLDARVERKSMIÐJ A Á ESKIFIRÐI
Hreppsnefnd Eskifjarðar hefur nú um skeið unnið að því,
að reist verði síidarverksmiðja á Mjóeyri við Eskifjörð. —,
Á fundi sínum þann 11. þ. m. samþykkti lireppsnefndin
að bjóða síldarsaltendum og síldarútvegsmönnum þátt-töku
í verksmiðjubyggingunni.
Eru þeir, sem kynnu að hafa áhuga á þessu máli, beðnir
að bjóða síldarsaltendum og síldarútvegsmönnum þátttöku
ar nánari upplýsingar. —
Bf LALEIGA
Beztu samningarnir
Afgreiðsla: GÖNHÖLL hf.
Ttri Njarðvík, sími 1958
Flugvöllur 6162
Eftir lokun 1284
Eskifirði 16. nóvember 1963.
Þorleifur Jónsson
FLUGVALLARLEIGANi/f
sveitarsljóri.
ÁuglýsÍRpsíminn 1490$