Alþýðublaðið - 24.11.1963, Blaðsíða 3
Baráttan fyrir jafnrétti
kostaði Kennedy lífið
Krústjov ritar nafn 6itt í minningrabók hjá sendiráði Banaaríkjanna í Moskvu. (Símsend mynd frá IJPI).
Þungt áfall fyrir málstað
friðarins, segir Krústjov
MOSKVA, 23.11 (NTB-Reuter).
Nikita Krústjov íorsætisráðherra
sagði í dag að fráfall Kennedys
forseta væri þungt áfall fyrir alla
þá, sem unna málstað friðarins
og fylgjendur samstarfs Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
Krústjov lýsti því yfir í skcyti
til hins nýja forseta, Lyndon B.
Jphnsons, að þeííta morð, sem
framið væri þegar teikn væru á
lofti um minni spennu í alþ'jóða
málum og liorfur á bættum sam-
skiptum Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna, hefði vakið reiði sovézku
þjóðarinnar í fiarð þess, sem sek-
ur væri um þennan svívirðilega
glæp.
Hinn látni var víðsýnn maður,
sem lagði raunsætt mat á ástand-
ið og reyndi að finna leiðir til
samkomulags og lausnar á þeim
vandamálum, sem nú valda sundr
un, segir í skeyti Krústjovs.
Vestrænir sendimenn og frétta-
menn í Moskvu minnast þess ekki
að lát nokkurs vestræns stjórn-
málamanns hafi vakið eins mikla
hryggð í Sovétríkjunum og á það
jafnt við um stjórnmálamenn og
almenning.
Sorg sú, sem Krjútsjov forsæt-
isráðherra og aðrir háttsettir
sovézkir leiðtogar hafa látið í Ijós,
lýsir hug allrar sovézku þjóðar-
innar.
Svo að segja allt venjulegt
fólk, sem vestrænir blaðamenn
hafa snúið sér til til að kynnast
viðbrögðum þess lét í Ijós djúpa
hryggð vegna morðsins og hrós-
aði framlagi Kennedys til bættra
samskipta Bandarikjanna og Sovét J
ríkjanna. 1
Sovétstjórnin og sovézka þjóðin !
taka þátt í djúpri sorg bandarísku
þjóðarinnar vegna þessa mikia
tjóns og láta í Ijós von ura, að
starfinu að lausn deilumála —
starfi sem Kennedy forseti lagði
jákvæðan skerf til — yrði haldið
áfram í þágu friðarins, mannkyn-
inu til blessunar, að því er segir
í skeyti Krjústovs til Johnsons.
Forsætisráðherrann sendi einn
ig persónulegt samúðarskeyti til
frú Kennedy.
Bresjnev forseti hefur einnig
sent samúðarkveðjur til Lyndon
B. Johnson forseta, þar sem hann
lætur í ljós djúpa hluttekningu
sovézku þjóðauinnar.
Moskva 23. nóv. NTB.
Pravda, aðalmálgagn rússneska
kommúnistaflokksins, segir aft-
ur í dag frá dauða Kennedys í
hálfum öðrum dálki á forsíðunni
og í grein um æviferil hans er
minnzt ræðu sem hann flutti við
Háskólann í Washington í sumar.
Kennedy lagði áherzlu á, að
öllum þjóðum væri sameiginlegur
hagnaðtu: af réttlátum friði og
afvtepnun, skrifar blaðið. Hann
lagði seinna mikla áherzlu á, að
Moskvusamþykktin um takmarkaða
afvopnun væri fullgilt í þinginu
og tilraunir hans til þess að bæta
ástandið í alþjóðamálum mættu
mikálli andspymu frá „hinum
villtu mönnum“ í Bandaríkjunum.
The New York Times segir, að
tjón þjóðarinnar og heimsins sé
sögulegt og ógnþrungið. John F.
Kennedy var fulltrúi allrar þeirr
ar orku og krafts, gáfna og hrifn
ingar, hugrekkis og vonar, sem
Bandaríkjn geta sýnt á miðri tútt-
ugustu öld.
The New York Daily News seg-
ir, að glæsilegum ferli hafi lokið
með hræðilegum sorgarleik, sem
hafi valdið sorg hjá allri þjóðinni,
og um hecm allan. The Chieago
Tribnne segir, að Kennedy hafi
borið mikla ábyrgð og hann hafi
borið hana af orku og vonglaður.
Hann hefði unnið stöðugt að því
að varðveita heimsfriðinn og
bjarga mannkynánu frá kjarn-
orkustyrjöld, bætir blaðið við.
Lundúnablaðið The Times tel-
ur morðið vera mikið áfall, svo
mikið, að það snerti allan heiminn.
Hvað sem sagan segir um hinn 35.
forseta er enginn efi á hinu gríð
arlega mikilvægi forsetaembættis
Bandaríkjanna fyrir allan heim-
inn. Við vitum ekki ennþá, hvort
þau myrkraöfl, sem óskuðu dauða
Lincolns, eru tengd morðinu á
þeim forseta, sem fann þá köllun
að halda áfram starfi hans. Fyrstu
viðbrögðin í Bretlandi eru alda
samúðar og ósk um að mega taka
þátt í sorg hinna bandarísku vina
okkar.
The Guardian segir að dauði
Kennedys sé sorgaratburður fyrir
allan heiminn. Kennedy var í Tex-
as túl að vinna fylgi frumvarpi
sínu um réttindi hinna hörunds-
dökku. Eins og Lincoln á undan
honum, kostaði það hann lifið.
Bezti minnisvarðinn um Kennedy
væri, að frumvarp hans um Jafn-
rétti næði fram að ganga.
Lundúnablaðið The Daily Her-
ald segir, að allir þeir, sem berj-
ist fyrir lýðræði og frjálslyndum
hugmyndum eiga það á liættu að
verða fórnardýr ofstækismanna.
^SfJalínar" 'hrfmsirf dnyja oft-
ast á sóttarsæng. Það eru menn
eins og Lincoln og Kennedy, sem
eru skotnir niður.
Stokkhólmsblaðið Dagens Ny-'
heter bendir á hve þessum at-
Framh. á 10 síðu.
Blysför
Berlín 23.11 (NTB-DPA) Um 70
þúsund manns fóru blysför frá
ýmsum stöðum í Vestur-Berlfn til
ráðhússtorgsins, þar sem safnazt
var til að minnast Kennedy for-
seta, sem sagði þegar hann stóð
á þessu torgi er hann heimsótti
borgina í sumar: „Ég er Berlínar-
búi.“
Lagðar voru fram sex minning-
arbækur í ráðhúsinu, og fólk stóð
í löngum hiðröðum til að ski'ifa
þar nöfn sín.
Willy Brandt borgarstjóri
sagði í ræðu, að mannkynið
syrgði fráfall fremsta borgara
hins frjálsa heims, sem það hefði
vænzt svo mikils af.
Mannfjöldinn hlýddi þögull á
hljóm frelsisklukkna Vestur-
Bérlínar, sem Bandaríkjamenn
gáfu borgarbúum.
Bátum bannað að flytja
fólk að gosstöðvunum
Reykjavík 22. nóv. — HP
Þegar það fréttist, að litlir
fiskibátar væru farnir að flytja
fólk á gosstöövamar suðvestur af
Vestmannaeyjum óskaði Skipaeftir
lit ríkisins eftir þvi við viðkom-
andi sýslumenn og bæjarfógeta,
að þeir bönnuðu þessar ferðir.
Talsverð brögð munu hafa verið
að slikum farþegaflutningum, þó
að farþegaskip ein megi flytsa
fólk og þeir bátar, sem notaðir
voru til þessara ferða, bafi ekki
fullnægt þeim kröfum, sem gerð-
ar eru til öryggis- og björgunar-
tækja á skipum, sem ælluð eru
til farþegaflutninga.
Hjálmar R. Bárðarson, skipa,-
skoðunarstjór,i, staðfesti þetta i
viðtali við Alþýðublaðið í gær.
Hann sagði, að þetta væri að vísu
viðkvæmt mál, því að eftirlitið
vildi með engu móti hindra vís-
indamenn í störfum þeirra við
rannsókn á gosinu. Hins vegar
mætti kannski segja, að stutt
væri milli þoirra og leikmanna,
þegar um það væri að ræða. Sum
ir vísindamannanna liafa hins veg
ar verið um borð í varðskipum
Landhelgisgæzlunnar. Hj álrnar
sagði, að ekkert væri við því að
segja, þó að stór farþegaskip færu
til gosstöðvanna og ekki heldur,
ef einhverju fiskiskipi væri breytt
Framh. á 7, síðu
FRASÖGN ÍSLENDINGA I DALLAS
Reykjavik 23. nóv. GO.
ÞORVALDUR STEINGRÍMS
SON fiðluleikari, sem búsettur
er í Dallas í Texas, sagði i við
tali yið blaðið í dag að hann
hefði verið að koma heim til
sín, þegar fréttin um morð
Kennedýs kom í útvarpinu.
Hann hafði verið á ferð
skammt frá árásarstaðnum
skömmu áður og lent þar í
nokkru umferðaröngþveiti, sem
skapaðist af forsetaheimsókn-
Að því er Þorvaldur sagði,
hafa aldrei verið gerðar ems
víðtækar varúðarráðstafnir til
verndar nokkrum manni eins og
Kennedý í gær. Allt lögi-eglu
lið borgarinnar var við gæzlu
forsetans og allt sem í mann-
legu valdi stóð var gert tii að
vernda líf hans. Orsökin fyrir
þessum víðtæku öryggisráð-
stöfunum var sú, að þegar
Stevenson heimsótti borgina á
degi SÞ. í haust varð hann fyr
ir árás ofstækisfullrar konu,
sem barði liann í höfuðið með
kröfuspjaldi. Margt fólk bar
kröfuspjöld á götunum í gær,
þegar forsetinn ók þar um.
1 gærmorgun var veður þung
búið í Dallas, en skömmu eftir
hádegið birti til og mun það
vera ástæðan til þess að bifreið
forsetans var opnuð, en ann-
ars er hún skotheld.
Þungur harmur er kveðinn
að Dallasbúum. Þoi-valdur átti
að spila í óperunni þar í gær-
kvöldi með hinum heimsfrægu
söngvurum Di Stefano og
Antonelia Stella, en sýningunni
var aflýst.
Þorvaldur sagði að almenn-
ingur fylgdist með gangi mála
í sjónvarpinu. Sjónvarpað
hefði verið látlaust frá rnorð-
inu og þvi sem á eftir fór allt
til þessarar stundar.
Þorvaldur sagði að þau hjón
in væru einu íslendingamir í
Dallas, en hins vegar væri ein
fjölskylda búsett í Forth
Wortli, sem er þar skammt frá.
Það eru þau Jóhann Pétursson
og Hulda Emilsdóttir söngkona.
Þorvaldur og kona hans áttu
von á þeim í heimsókn í dag,
en þau voru ekki stödd í DaU-
as þegar morðið var framio.
Að lokum bað Þorvaldur fyr
ir innilegustu kveðjur til allra
vina og vandamanna fjölskyld-
unnar hér á íslandi. Hann innti
frétta af gosinu við Vestmanna
eyjar og hafði greinilega ekki
fengið nema óljósar fréttir af
því.
WWWWWWMWWWWWWWWWMWmWWIWMiWMMMIWIMWMIWWWWMIIWWWWMIMWW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. nóv. 1963 3