Alþýðublaðið - 24.11.1963, Side 10
g/mWMmWMWIMWWWWmMWWIWWMMM MMWWWWMWWWWWMWWWMWMiWWW
Húsgagnaverksmiðja
Reykjjavíkurvegi 74
Hafnarfirði - Sími 50982
SVEFNBEKKIR
JIIIIIIIIIIIIIIIIIUUUUMIMUItllllllllUi
I Ath. 10% I
: sjaðgrreiðsln. i
| afsláttur gegn I
íiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiKMimiiiiiiiiiuiiiri
Með gúmmídýnu kr. 3970.-
^mi»»(4%mni%vmw%%w%ww\www*wwwwwwwwwwwwwwwwiwwwww%wwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww<
OSWALD TALINN SEKUR
Gæruúlpur
Kr. 998.00
Við Miitlatorg.
Karlmannaföt
Drengjaföt
: i Verzl. SPARTA
Bflasalan BÍLLINN
Sölumaður Matthias
Höfððtúni 2
Sími 24540.
hefur bflinn.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningar
sandur og vikursandur, sigtafl
ur eða ósigtaður, við húsdyrn
ar eða kominn upp á hvaða hæf
sem er, eftir óslnim kaupends
Sími 41920.
SANDSALAN við Elliðavog gj
Framh. af 1 siðu
inni væri ekki lokið og að enn
yrði að afla vitneskju um viss at-
riiði. Hann vildi ekki svara þeirri
spurningu hvort fundizt hefðu
fingraför á riffli þeim, sem var
notaður. Hér er um að ræða riffil
af ítalskri gerð með hlaupvíddiua
6.5 mm.
í yfirheyrslum á lögreglustöð-
inni í nótt hrópaði Oswald: „Ég
skaut ekki forsetann og ég veit
ekki hvers vegna ég er hér.“
Oswald sagði þetta þegar hann
var sýndur einu vitninu af mörg-
um.
Frú Marina Oswald, kona með
ljóst hár, var flutt á stöðina til að
tala við mann sinn. í fylgd með
henni voru tvær dætur hennar,
sex mánaða og fimm ára gamiar.
Nokkur vitni voru ílutt til lög-
reglustöðvarinnar til að skýra frá
því, sem þau höfðu heyrt og séð
en þau voru undir strangri lög-
regluvernd og blaðamönnum var
ekki leyft að tala wið þau.
Þegar Oswald var leiddur fyrir
blaðamenn og ljósmyndara var
hann náfölur í andliti, Hann var
niðurlútur og virtist dauðhraeddur
Hann hvíslaði svo lágri röddu að
varla mátti greina orð hans, að
hann hefði hvorki myrt foreetann
né lögreglumann þann, sem hann
var fyrst ákærður fyrir að hafa
myrt.
Að svo búnu var hann leiddur
til klefa síns. Um daginn álti að
leiða hann fyrir dóraara, sem átti
að lesa fyrir honum handtökuskip
unina.
Ríkissaksóknarönn Wade sagði,
að Oswald hefði neitað því, að
hann væri sekur um morðio. Kona
hans þafði sagt að maðurinn hefði
haft riffil heima hjá sér Kvöldið
áður, og taldi að það væri Maus-
erriffill.
Riffillinn, sem fannst í her-
bergi því, sem talið er að rnorð-
inginn hafi dvatizt í og beðið eftir
ir forsetanum, hefur verið fluttur
flugleiðis til Washington þar sem
hann verður rannsakaður í rann-
sóknarstofu ríkislögreglunnar á-
samt byssu þeirri, sem hann hafði
á sér þegar hann var handtekinn.
Wade sagði, að ekki hefði saira
azt, að nokkrir stæðu að baki Os-
wald eða haft samstarf við hann
um morðið'. Við höfum enga
aðra, sem eru grunaðir í svipinn,
sagði hann.
Aðspurður hvort hann teldi
að einhver , samtök kommúnista
stæðu að baki Oswald cða að
morðið væri liður í samsæri komm
únista gegn Bandarikjunum, sagði
Wade að fram tif þessa hefði rann
sóknin ekki gefið nokkra átyliu til
að' ætla slíkt. En Oswald var for
maður samtakanna „Fair Play
for Cnba." (Sanngimi í garð Kúbu)
Lögreglan hafði ekki fundið
vitni, sem sannað gátu að Oswald
væri morðingi forsetans er Wade
ræddi við blaðamenn, en hann
kvaðstj tíelja að lögreglan gæti
sannað, að Oswaid væri soku-
dólgnrinn.
Hann bætti því við, að hann
teldi ekki að Oswald væri geð-
veikur.
Haft var eftir utanríkisráðu-
neytinu að engin sönnun hefði
fengizt fyrir því að erlent ríki væri
viðriðið tilræðið. Engin sönnun
væri fyrir því að Kúba væri viðrið
in málið. Utanríkisráðuneytið
sagði, að það hefði engin sönnun
fengizt fyrir því að Kúba væri
viðriðin ódæðisverk Oswalds og
ekkert benti til þess að sannanir
fengjust.
Curry lögreglustjóri í Dallas
hefur sagt, að FBI hafi yfirheyrt
Oswald fyrir 1-2 vikum og ekki
sagt Dallas-lögreglunni frá því.
Gefur hann í skyn að FBI beri á-
byrgðina, en ekki þeir,
Curry skýrði einnig frá hand
töku annarg manns í sambandi við
tilræðið, sem er sennilega vinur
Oswalds. Hefur hann verið yfir-
heyrður, en nafn hans hefur ekki
verið gefið upp.
AP befur skýrt frá bréfaskipt-
um milli Connolly og Oswalds
snemma 1962. í bréfinu vekur Os
wald athygli Connollys á raáli,
sem hann viti e.t.v. ekki um.
Skýrði Oswald frá því að liann
hefði farið til Sovétríkjanna til
að setjast þar að um tíma eins og
Hemingway í París. Hann hefði
orðið að svara spumingum blaða-
manna í Moskvu. Svör hans hefðu
verið blásin upp í blöðum með
þeim afleiðingum að hann hefði
verið rekinn með smán úr flotan
um þó hann hefði verið leystur
frá störfum áður með heiðri.
Hann snéri aftur til Bandaríkjanna
eftir þrággja ára dvöl, með aðstoð
bandaríska sendiráðsins, staðráð
inn í að þurrka út þessi mistök og
óréttiaéti í garð bandarísks her-
manns. Hvatti hann Connolly til
að athuga málið og gera nauðsyn-
legar ráðstafanir til þess að bæta
tjón það, sem honum og fjölskyidu
hans hefði veráð bakað. Hvatti
hann Connolly til að ráðfæra sig
við bandaríska seridiráðið í
Moskvu. Connolly svaraði á þá
lund, að hann mundi vísa málinu
til flotamálaráðuneytisins í Wash
ington, enda vær.i hann ekki
flotamálaráðherra. (Oswald var
hermaður í landgönguliði fiotans).
Skýrt hefur verið frá því, að
Oswald hafi ekki endurgreitt lán,
sem bandaríska sendiráðið í
Moskvp veitti honum til þess að
komast til Bandaríkjanna írá I
Sovétríkjunum ásamt fjölskyldu
sinnú eftir dvöl þeirra þar.
Fjórum kílómetrum frá þeira
stað, þar sem morðið var framið,
sá lögreglumaður í bifreið Os-
waid á götu. Honum virtist lýs-
ingjin á morðingjanum, sem hafði
verið lesin upp í lögreglutaistöð-
inni, eiga við manninn. Stöðvaði
hann bílinn og talaði við hann.
Oswald dró þegár upp skam-
byssu sína og skaut lögreglumann-
inn af stuttu færi. Lögreglumað-
urinn lézt í sjúkrahúsi.
Því næst fór Oswald í kvik-
rayndahús, sem var í nokkur hundr
uð metra fjarlægð, en þar voru
sýndar tvær stríðsmyndir. Tveir
lögreglumenn sáu Oswald ganga
inn og aðvöruðu lögregluna í
síma. Fjórir lögreglumenn komu
strax á vettvang og handsömuðu
Oswald í kvikmyndahúsinu. Þá
hafði hann aftur dregið upp skam-
byssu sína, en tókst ekki að be'.ta
henni.
Orðrómur er á kreiki um, aö
fingraförin á morðvopninu séu of
óljós til þess að nota megi þau
sem sönnunargagn. En tekið hefur
verið vaxmót af hálsi og andliti
Oswalds.
Lögreglustjórinn í Dallas, E.
Curry, sagði, að lögreglan teldi að
hún hefði handsamað movðingj-
ann, enda þótt hann hefði ekki
játað.
Þegar fréttin um ákæruna
gegn honum hafði verið hirt, var
Oswald ieiddur inn f herbergi,
þar sem blaðamenn og Ijósmynd-
arar voru. þannig að taka. mætti
af honum Ijósmyndir.
Ríkíssaksókni-inn sagði, að
Oswald yrði stefnt fyrir rétt.
um mjðja næstu viku.
Framlcitt einungis úr úrvalð
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímaniega.
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57 — Síral 2320U.
Laugavegi 87.
✓ *
Kópavogur Kópavogur
Útsölumaður Alþýðublaðsins í Rópavogi er
Helga Jóhannsdóttir, Ásbraut 19.
Kaupendur Alþýðublaðsins í Kópavogi eru
beðnir að snúa sér til hennar með allt sem
ivarðar af greiðslu blaðsins.
Afgreiðslusíminn er 40319.
Jarðarför
Sigríðar Guðmundsdóttur
frá Eyrarbakka
Bergstaðarstræti 6 c, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26/11,
kl. 1,30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Fj'rir mína hönd og annarra vandamanna hinnar látnu
Ingibergur J. Guðbrandsson.
>■ Útför móður okkar
Ástríðar Eggertsdóttur
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26. nóv: kl. 10,30 f. h.
Athöfninni verður útvarpað.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Slysavarnafélag
íslands.
&
Börnin.
10 24. nóv. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ