Umferð - 01.07.1958, Side 6
6
UMFERÐ
AKSTITR
ÁFEA GI
Það er ekki bara hérlendis, sem horf-
ir til vandræða vegna aksturs undir
áhrifum áfengis. Nú er mjög um það
rætt í engilsaxneskum löndum til hvaða
ráða helzt skuli gripið varðandi öku-
byttunnar, og stórhættu þá, beina og
óbeina, sem af þeim stafar. 1 umferð-
arstatistik Delavare ríkis sést glögg-
lega hvílikur voði áfengið er að verða
í umferðinni. Statitikin er að vísu frá
árinu 1956 og því hálfs annars árs
gömul, en ólíklega hafa ökubytturnar
látið sér mikið segjast á þeim tíma,
sem síðan er liðinn. Samkvæmt stat-
istik þessa rikis eru hvorki meira né
minna en 51% af öllum banaslysum í
umferð þar talin annað hvort ein-
göngu eða að verulegu leyti að kenna
drykkjuakstri.
Er ekki annars kominn tími til að
við íslendingar hættum að taka með
silkihönzkum á ökubyttum okkar og
öðrum ökuníðingum.
Læknir mótmælir
opinberlega.
Það er ekki undarlegt og ekki von-
um fyrr, þó merkir læknar láti til sín
heyra vegna blóðbaðsins á þjóðvegun-
um. Charles J. Frankel, prófessor í
skurðlækningum við ríkisháskólann í
Virginia, Bandaríkjunum, hellti nýlega
úr skálum reiði sinnar, opinberlega,
hann segir:
„Ég er læknir. Ef ég fyndi upp lyf,
sem minnkaði dauratöluna vegna t. d.
mænuveiki um helming og bjargaði
þannig árlega 750 mannslífum, þá
myndi ég fá Nobelsverðlaunin, Og þó
get ég og hver sá annar, sem hefur
kynnt sér málið, bent á ráð til þess að
minnka dauðsföllin á þjóðvegunum
um helming. Ef við tækjum burtu all-
ar ökubyttur af þjóðvegum vorum,
myndum við bjarga 10 þús. mannslíf-
um á ári hverju. Þetta væri hægt, en
það skeita menn ekki um. Blóðbaðið
heldur áfram. Og svo spyrjum við
læknarnir hver annan: „Hverjum
skyldum skyldum við nú árangurs-
laust reyna að bjarga í dag?“
1 gærkvöldi sá ég fjóra pilta deyja,
fjóra efnilega pilta. Við hömuðumst
timunum saman í skurðstofunni við að
reyna að bjarga lífi þeirra. Þeir voru
bara blóðflykki, sundurtættir, og okk-
ur hefði átt að skiljast strax að þetta
var vonlaust. En við reyndum samt,
eins og við gátum — það veit guð.
Það var árekstur — vatnskassi á
móti vatnskassa. Allt angaði af víni.
Við gerðum björgunartilraunir okkar
á röngum stað. Við hefðum ekki átt að
reyna að „bjarga þessum drengjum"
í sjúkrahúsinu, heldur á löggjafar-
TVEIR DUGLEGIR
Þorvaldur Árnason
framkvstjóri, Húsavík,
er fæddur 26. júni 1908. Hefur hann
dvalizt meira en helming ævi sinnar
á Húsavík og verið framarlega í flokki
þingi okkar og fyrir dómstólunum.
Við höfum séð of margar hroðalega
útleiknar manneskjur deyja svo að
segja í örmum okkar, til þess að við
fengjum mikið samvizkubit af því,
þótt tekið væri almennilega í lurginn á
ökubyttum og öðrum ökuníðingum.
Við verðum að herða á tökunum og
refsa hinum seku svo að þeir muni
eftlr því.“
Eru þetta máske of fastar umbúðir,
eða máske það eina sem dugar? Er
kannske „rjómakvoðumiskunsemin"
aðeins til bölvunar? Vafalítið.
Alþjóða táknmynd.
ATH.: Myndin, sem fylgir ofanskráð-
um greinum, er gerð af enska umferð-
arblaðinu RoSPA. Mynd þessi, eða
plakat, er mjög táknræn, og í sínum
upprunalegu litum áhrifamikil. Mynd-
in hefur þegar verið kjörin sem tákn
baráttunnar gegn áfengi í umferð af
ýmsum enskumælandi löndum, svo
sem Englandi, Skotlandi, Irlandi,
Kanada, Nýja-Sjálandi og Ástralíu.
DEILDAFORMENN
Vilhjálmur Halldórsson.
þeirra manna, sem efla menningu og
byggja upp.
Þorvaldur varð formaður Húsavík-
urdeildar strax við stofnun, 26/7. '56,