Umferð - 01.11.1959, Qupperneq 6
NOREGSFÖR
Á s.l. sumri átti ég þess kost að ferðast all
víða um Noreg í eins mánaðar tíma. För mína
þangað gerði ég fyrst og fremst til þess að sitja
Stórstúkuþing Norðmanna, sem haldið var í
Bergen dagana 19. til 20. júlí, og Norræna bind-
indisþingið, sem haldið var í Stafangri dagana
27. júlí til 1. ágúst. Auk þess ferðaðist ég all
víða um landið, eins og áður segir. Þessar vik-
ur, sem ég dvaldi í Noregi umgekkst ég næstum
eingöngu bindindismenn og ekki sízt félaga í
Motorförernes Avholdsforbund. Framkvæmda-
stjóri MA, Steinar Hauge, sem félögum BFO er
að góðu kunnur, hafði líka skipulagt ferðalag
mitt og naut ég einstakrar fyrirgreiðslu hans og
MA-félaga víða á ferð minni. Ég gæti að sjálf-
sc'gðu skrifað langa ferðasögu um þessa Nor-
egsför mína, en hér mun ég aðeins stikla á stóru
og greina einungis frá kynnum mínum af MA-
félögum og starfi þeirra.
Fyrsti áfangastaður minn var Bergen. Þar tók
á móti mér formaður Bergensdeildarinnar, Ame
Næss, og reyndist mér heldur en ekki haukur í
horni. I Bergen er ein fjölmennasta deild lands-
ins og starf hennar allt með ágætum. Unglinga-
deild þeirra er ein hin allra fjölmennasta og
starfsamasta. En nú stóð sumarleyfatíminn sem
allra hæst, svo að starf deildarinnar lá að mestu
ieyti niðri þessa daga, sem ég stóð við í Berg-
en. Ég gat því lítt kynnzt starfi deildarinnar af
eigin raun. En allt það, sem ég heyrði af starfi
hennar sannfærði mig betur en áður um nauð-
syn þess fyrir okkur að koma á slíku unglinga-
starfi sem allra fyrst.
Næsti áfangi minn var Þrándheimur. Þar
hafði ég því miður mjög stutta viðdvöl, aðeins
hálfan dag og nótt. Þar naut ég enn frábærrar
fyrirgreiðslu og gestrisni MA-félaga, einkum
formanns Þrándheimsdeildar, Arnulf Ertsás.
Þrándheimsdeildin er einnig mjög góð deild.
Næst skulum við svo staldra við í Stafangri.
Þar hitti ég að sjálfsögðu fjölda MA-félaga og
einnig MHF-félaga ifrá Svíþjóð). Þarna var
m.a. formaður MA og NUAT, Sigurd Johansen,
og margir fleiri foryztumenn. Var bæði gaman
og gagnlegt að hitta þá og ræða við þá. Einn
daginn var haldinn fundur í NUAT og sat ég
þann fund fyrir BFO. Þar voru fluttar fréttir
og stuttar skýrslur frá samböndunum. Jakob
Pettersen, stórþingsmaður, flutti ýtarlegt er-
indi um hina nýju umferðarlöggjöf Noregs.
Sv par henni um margt til hinna nýju umferð-
arlaga okkar, en í ýmsum atriðum eru þó okk-
ar lög strangari. Ég flutti þarna skýrslu um
Störf okkar og greindi einkum frá baráttu okk-
ar fyrir tryggingamálunum. Ég fór fram á að
NUAT styddi okkur í þeirri baráttu og var því
vel tekið.
Á þinginu kom það mjög glöggt fram, að
MA og bindindisfélög ökumanna yfirleitt, njóta
mikiis álits og trausts norrænna bindindis-
manna. Hins sama varð ég einnig var á Stór-
stúkiiþinginu í Bergen. Er gott til þess að vita,
að samtök okkar njóta svo mikils álits og mætti
það verða okkur öllum hvöt til þess að herða
róðurinn.
Stafangursdeildin er ein allra öflugasta deild-
in í Noregi. Formaður hennar er ungur og rösk-
ur maður og unglingastarf deildarinnar er mjög
öflugt. Eitt kvöldið meðan þingið stóð yfir,
efndi deildin til útifundar í aðallistigarði borg-
arinnar. Formaður deildarinnar setti fundinn
og stjórnaði honum. Jakoh Pettersen, stórþings-
maður, flutti ýtarlegt erindi um umferðarmál.
Stutt ávörp voru flutt og flutti ég ávarp og
kveðjur frá BFO. Þá voru stutt samtöl við for-
mann MA, Sigurd Johansen, o. fl., m. a. mjög
skemmtilegt viðtal við fjóra félaga úr unglinga-
deildinni. Loks var keppni í umferðarreglum,
já og nei. Þátttakendur voru 8, þar á meðal
unglingarnir fjórir, sem áður getur um. Keppn-
in var bæði skemmtileg og tvísýn í fyrstu og
sýndi að þátttakendur voru allir næsta vel að
sér í þessum fræðum. Fyrst féllu unglingarnir
úr og síðan tveir af hinum eldri og reyndari.
Hófzt þá harðvítugt einvígi milli formannsins,
Sigurd Johansen, og annars garps, sem eftir
stóð. Viðureigninni lauk um síðir með sigri
formannsins við mikil fagnaðarlæti áheyrenda.
Mót þetta var fjölsótt og hið ánægjulegasta í
alla staði. Á eftir héldu margir til veitingahúss-
ins Promenaden, sem er stórt og glæsilegt veit-
ingahús og er það eign bindindismanna í Staf-
angri. Fylltist húsið brátt af glaðværum bind-
indismönnum og var þarna hin ágaetasta
skemmtun lengi kvölds.
Daginn eftir að þinginu lauk bauð Stafang-
ursdeild MA þingheimi öllum í ökuferð ut á
Jaðar. Farið var m. a. að Knudaheio, sumarbú-
stað þjóðskáldsins Arne Garborg. Um kvöldið
var svo snæddur kvöldverður að Sola Strand-
hotell. Þetta var ljómandi dagur og góður end-
ir á viðburðaríku þingi. Og ánægjulegt má það
kallast, að Stafangursdeild MA hafði þannig í
rauninni síðasta orðið á þessu merka bindindis-
þingi.
Frá Stafangri lá leið mín í ótal krókum til
Oslóar. Þar tóku á móti mér framkvæmdastjóri
MA, Steinar Hauge, og formaður Oslódeildar,
Haugevold. í Osló dvaldi ég í rúma viku og
var Hauge óþreytandi að greiða götu mina á
allan hátt. Sunnudag einn fóru þeir Hauge,
Haugevold og ungfrú Ekberg, skrifstofustúlka
MA, með mig í langa bílferð, allt til landamæra
Svíþjóðar. Og annað sinn fóru þau Hauge-hjón-
in með mig í tveggja daga bílferðalag til Ham-
ars, Litlahamars og upp í Guðbrandsdal. Enn
annað sinn ók ég með Hauge og Nielsen, for-
rnanni landskeppnisnefndar í góðakstri, um
Osló og nágrenni. Þeir voru þá að velja öku-
leið fyrir landskeppnina, sem fyrirhuguð var f
september. Var þessi ökuferð bæði skemmtileg
og lærdómsrík. Og sama má segja um alla dvöl
mína í Osló, þakkað veri þessum ágætu félög-
um og frændum. Margt fjölluðum við Hauge
saman um BFO. Hann er enn sem fyrr fullur af
áhuga fýrir framgangi þess og jafnan reiðubú-
inn að greiða fyrir okkur og miðla okkur af
dýrmætri reynslu sinni. Það var því sannarlega
verðugt og viðeigandi, að síðasta landsþing
kjöri hann heiðursfélaga í BFÖ.
Áður en ég lýk þessari stuttu og ófullkomnu
ferðasögu minni þykir mér hlýða að greina í
örfáum orðum frá starfi MA, því bræðrafélag-
inu, sem er okkur nátengdast.
6
UMFERÐ