Alþýðublaðið - 14.01.1964, Síða 1
Loftleiðafargjöldfn
lækka enn 1. apríl
Reykjavík, 13. jan. — ÁG.
EINS og skýrt hefur verið frá
í fréttum, tilkynnti stjórn Loft-
leiffa síðastliðinn laugardag, að
fargjöld félagsins myndu lækka
frá og með 1. apríl næstkomandi
um nálægt 15 af hundraði. Verð-
ur félagið því eftir sem áður með
lægstu fargjöldin á flugleiðinni
yfir Atlantshafið. Á flugleiðinni
milli Ameríku og íslands verða til
dæmis öll fargjöld Loftleiða
lægri en Pan American. Á hinura
svokölluðu 21 dags fargjöldura
verffur mismunurinn 244 kr. — Á
vetrarfargjöldunum verður mis-
munurinn 876 krónur aðra leið-
ina en 1.707 króniH' báðar leið-
ir. Á sumarfargjöldunum verður
mismunurinn mestur, 1524 krón-
ur aðra leiðina og 2.897 krónur
báðar leiðir. Frh. á 14. síðu.
.«
Gúmmibáturinn af Hringver. Skipstjórinn snýr baki við vélinnK
MMUMMMtHHMMmmMmMMMMMMMM MHHHUWHMHWMMHMHmtMMWMHMMW
Þrír af f jórum í
eigin húsnæðl
Sjá íramhald skýrslu Hagstofunnar á bls. 5.
tMMMMMMMMWMMMMWMHMMWMMMHMMH\HMMHWMMM%MMM%WMMWMMMWWMW%<
Skipshöfnin á Ágústu, skipstjórinn Guffjón Ólafsson cr lengst til vinstri á myndinni. — Ljm. G. O.
R EYJABÁTAR
SUKKU I
j Reykjavík, 13. jan. — GO.
Tveir síldarbátar, Hringver VE
393 og Ágústa VE 350, sukku aust
ur á Síðugrunni í nótt. Allri á-
höfn beggja bátanna var bjargað
af nærstöddum skipum. Árni
Þorkelsson frá Keflavík bjargaði
Hringversmönnum, en Elliði
þeim af Ágústu, sem voru síðan
fluttir um borð í Kóp frá Kefla-
vík, sem fór með þá til Vest-
mannaeyja. Árni Þorkelsson kom
með skipbrotsmennina af Hring-
ver kl. 4 í dag itil Eyja og Kóp-
ur kom kl. 7.
Mikill fjöldi fólks tók á móti
skipbrotsmönnunum og urðu
fagnaðarfundir.
Laust eftir klukkan 5 í nótt
kallaði Ridhard Sighvatsson
skipstjóri á Hringver á hjálp.
Hann hafði verið að háfa úr
nótinni í heldur slæmu veðri og
var kominn með um 1100-1200
tunnur í lest. Eitthvað af síld
,var á þilfari til að halda bátn-
i um stöðugum. Skyndilega sló bátn
j um undan, svo hann lagðist í nót
ina, sjór náði strax að renna í
hann og mennirnir yfirgáfu hann
I nærri því strax. Hann sökk á 10
115 mínútum. Hringver var 120
I tonna stálbátur, smíðaður í Svi-
MANNBJÖRG
VARÐ
þjóð árið 1960 eftir þarlendri
teikningu.
Skömmu eftir að Hringver var
sokkinn, kallaði skfpstjórinn á
Ágústu eftir aðstoð. 'i>eir höfðu
verið að háfa gott l^ist og voru
búnir að setja um 700-800 tunn-
ur í skipið. Skyndilega urðu þeir
varir við leka, sem ígerðist. —.
Kastað var út allri þilfarshleðsl-
tmni og haldið áleiðis heim. Lek-
inn ágerðist hins vegár svo mjög
að við ekkert varð ráðið og neydd-
ust þeir til að yfirgefa skipið. —
Tveir gúmbátar voru til taks i Á-
gústu, en annar þeifra blés sig
Framh. á 14. sfðu
Nýjar reglur um
hleðslu síldarbáta
Reykjavík, '13. jan. — AG.
NÍMAR reglur um hleðslu síld-
veiðiskipa á vetrarsildveiðum hafa
nú tekiö gildi. Aðalatriðið í þeim
reglum er um hleffslumörkin. Má
ekki hlaöa báta meira en svo, að
sjór fljóti hvergi inn á þilfar í
sléttum sjó. Reglur þessar gilda
um öll fiskiskip, er stunda vetrar
sQdveiðar, mánuðina okt. til apr.
Þar segir m. a., að séu hillur
notaðar í lestum, skal skipstjóri
sjá svo um, að alltaf verði fyllt
neðst í lest, undir hillum, áður
eða um leið og síld er sett í hill-
ur. Óheimilt er að skilja eftir ó-
fyllt rúm neðarlega í lest. Þá
skulu lestarlúkur lokaðar vatns-
þétt (skálkaðar), þegar síldar-
farmi hefur verið komið fyrir í
lest.
Þá segir í 5. grein: „Austurop
skulu ávallt höfð opin, nema þar
sem síldarfarmur hindrar og séð
skal svo um, að allur sjór geti
runnið viðstöðulaust af þilfari
fyrir borð. Eigi skal höfð meiri
stíuuppstilling á þilfari en brýn
þörf krefur vegna fprms.”
í 6. grein segir: „Sé síldarnót
höfð á bátapalli, ber, ef aðstæður
leyfa og þörf krefúr, að setja
hana niður á aðilþilfar eða niður
í lest á siglingu.” 7. grein hijóð-
ar svo: „Frárennsli frá nóta-
kassa á bátapalli skal vera ríf-
legt, þannig, að sem minnstur sjór
bindist þar.” í 8. grein segir: —
Frh. á 14,'síðu.
g/MWWWMMMWWMMHWMW
Hélt a5 Ió6s-
inn væri um
borð
ísafirði, 13. jan. —- BS-HP.
LAUST eftir hádegi sl. laug-
ardag hófust á ísafirði sjópróf.
1 vegna siglingar brezka togarans
Port Vale í ísafjarffarhöfn aðfara
nótt laugardags, sem skýrt var
frá hér í blaðinu á sunnudag. í
sjóprófunum kom fram ágrein-
ingur milli skipstjóra brezh:a tog-
Frh. á 14. síðu.