Alþýðublaðið - 14.01.1964, Blaðsíða 11
Frá hinum skemmtilega
leik ÍK og FH í fyrrakvöld.
Það er Gýlfi (bróðir Gunn-
laugs) sem brýzt í gegnum
vörn FH og skorar.
Jafntefli IR og FH í
geysispennandi leik
ENN einu sinni komu ÍR-ingar
á óvart gegn FH. Leiknum á
sunnudagskvöld lauk með jafn-
tefli, 27 gegn 27, eftir að ÍR hafði
átt meiri sigurmöguleika, en stað-
an var 26 gegn 23, ÍR í vií, er 7
mínútur voru til leiksloka. Eftir
gangi leiksins eru þessi úrslit
samt sanngjörn.
Birgir og Ragnar skoruðu fyrir
Ungverjar í
úrsiif
a
BÚDAPEST, 13. jan. Ntb-afp.
Ungverjar fara í úrslita-
keppnina á heimsmeistara-
mótinu í l.andknattleik í
Tékkóslóvakíu í marz n.k.
Þeir sigruðu Pólverja í síð
asta mánuði með 16:12. (í
síðari leiknum, sem fram fór
í Búdapest í gær var hægt að
lesa úr tölunum um úrslit
leiksins, en hægt var að sjá.
að þeir komast til Tékkóslóv
akíu. Eins og kunnugt er
leika Ungvenfar í sama riðli
og íslendingar).
MMWMWWVWWWWWWV
Á fundi Olympíunefndar 10.
janúar sl. var samþykkt samkv.
tillögu Skíðasambands íslands, að
' senda eftirfarandi þátttakendur af
íslands hálfu í skíðakeppni Vetr-
arolympíuleikanna í Innsbruck í
v Austurríki, daganna 29. janúar til
9. febrúar 1964:
Birgi Guðlaugsson, Siglufirði,
í keppni í 15 km, 30 km og 50 km
skiðagöngu.
Þórhall Sveinsson, Siglufirði,
■ i keppni í 15 km. og 30 km. skíða-
. göngu,
i Jóhánn Vilbérgsson, Siglufírði,
í keppni í svigi og störsvigi.
Kristján Benediktsson, Hnífs-
dal, í keppni í sýigi og storsvigi.
Árna Sigurðsson, Isafirði, í
keppni í svigi og stórsvigi, .
Þá var samþykkt að formáður
Olympíunefndar íslands, Birgir
Kjaran, yrði fararstjóri og flokks-
stjóri, formaður Skíðasambands
íslands, Einar B. Pálsson. Þjálfari
yrði Valdimar Örnólfsson, iþrótta-
kennari.
Skíðamennirnir ásamt þjálfará
fóru utan 4. janúar sl. til æfinga,
og flokksstjóri, Einar B. Pálsson,
fór utan föstudaginn 10. janúar.
(Frétt frá Ol. íslands.).
FH á fyrstu mínútunum, en Her-
mann svarar fyrir ÍR með snöggu
skoti. FH hafði betur fram und-
ir miðjan hálfleik, en þá fer ÍR
að draga á og munurinn er nokkr-
um sinnum 1 og 2 mörk. Þegar
5 mínútur eru eftir af hálfleikn-
um tekst ÍR loks að jafna við gíf-
urleg fagnaðarlæti áhorfenda,
sem, voru margir og skemmtu sér
mjög vel. Aldrei komst ÍR samt
ýfir í fyrri hálfleik, sem lauk
meö tveggja marka sigri Hafn-
firðiiiga, 16:14.
Æsandi síðari hálfleikur.
Siðari hálfleikur hófst nú með
miklu fjöri og fljótlega tekst ÍR-
inguin að jafna og spenningur-
inn nær hámarki, er ÍR nær fyrst
yíirtökunum um miðjan hálfleik-
inn, 20 gegn 19. FH tekst að
| jafna eftir nokkrar minútur, 23:23,
I en þá ná ÍR-ingar 3ja marka for-
skoti, sem hefði átt að nægja
þeim til sigurs, þar sem aðeim
i 7 mínútur voru til leiksloka. FH-
ingar taka nú á honum stóra sín-
um og fjórum sinnum hafnar bolt-
inn í markneti ÍR og staðan er
27:26 fyrir FH! Síðasta mark leiks-
ins skorar Hermann fyrir ÍR og
þá var aðeins rúm mínúta eftir
af leiknum. Hvorugu liðinu tókst
að skora á þessari minútu — og
segja verður að jafnteflið hafi
eftir atvikum verið sanngjarnt.
★ Liðin.
Lið ÍR kom satt bezt að segja
mjög á óvart í leik þessum, en
mesta athygli vakti hinn 16 ára
markvörður, Árni Sigurjónsson, er
sýndi ágætan leik og varði m. a.
nokkur vítaköst. ÍR hefur hingað
til skort mjög markvörð og nú
virðist úr þessu bætt. Auk Árna
sýndu Gunnlaugur, Hermann,
Gylfi og Þórður góðan leik og
vörn liðsins var óvenju sterk.
Hin sterka mótstaða ÍR virtist
koma FH alveg á óvart og líðið
náði sér eiginlega aldrei á strik.
Hermennirnir brugðust og línu-
spil sást varla. Það voru helzt
Ragnar, Birgir og Páll, sem stóðu
fyrir sínu. — Dómari var Valur
Benediktsson.
Hinn efnilegi markvörður
ÍR-inga, Árni Sigurjónsson
t. v. og fyrirliði liðs ÍR,
Gunnlaugur Hjálmarsson.
Nú eru nppi háværar raddir
'um, að Árna verði gefið tæki
færi í unglingalandsliðið og
við viljum taka undir það.
Annars væri gott, ef við ætt
um einhvem betri í því liði.
MHIMMMMMMMMM'-MMMMI
hjá Golfklúbb
Reykjavíkur
Inniæfingar
Hinar vinsælu inniæfingar og
kennsla fyrir byrjendur í Golfi í
íþróttasalnum í Laugardal hefjast
í dag, þriðjud. 14. jan. Niðurröðun
tíma verður fyrst um sinn þannig:
Þriðjud. kl. 8,30-9,20 fyrir byrj-
endur. (Kennari: Þorv. Ásgeirss.)
Þriðjud. kl. 9,20-10,10, samæf.
Föstud. kl. 6,00-7,40, samæf.
Þess er vænzt að golfiðkendur
notfæri sér tíma þessa sem bezt
og fjölmenni þegar á fyrstu æf-
í ingu. Byrjendur hafi samband við
Þorvald Ásgeirsson, sími 11-073.
IMMMMMMM%MMM«MM%MM
Fram haföi yfirburði
gegn Ármanni 34:19
FRAM hafði mikla yfirburði í
leiknum gegn Ármanni í I. deild
á sunnudagskvöld. Lúðvík skor-
aði að vísu fyrsta mark leiksins,
en Ingólfur jafnar fljótlega fyrir
Fram úr vítakasti. Síðan skoraði
Ágúst fyrir Fram, og Árni Sam-
úelsson svarar fyrir Ármann. —
Framarar taka leikinn nú í sínar
hendur og ná 9:3. Ármenningar
berjast af mikilli hörku og tekst
að minnka bilið fyrir hlé, en þá
er staðan 16:11 Fram í vil.
★ Yfirburðir í síðari hálfleik.
Það fór lítið fyrir hinu létt
leikandi Ármannsliði í síðari hálf
leik. Fram tók öll völd í leiknum
og var oft hrein unun að sjá til
leiks Fram. Það er enginn vafi á,
að Framarar eru bezta handknatt-
leiksliðið okkar nú og mikið þari
til að þeir tapi fyrir íslenzku liði.
Lokatölurnar voru 34:19. Ingólfur
Óskarsson skoraði flest mörfe
Framara, alls 13 og átti góðan
leik eins og reyndar flestir leik-
manna liðsins. í liði Ármanns var
Hörður Kristinsson langbeztur.
Magnús Pétursson dæmdi með
prýði.
Á laugardagskvöld fóru fram
þrír leikir í meistaraflokki kvenna
á íslandsmótinu í handknattleik
og tveir í 2. flokki karla.
Úrslit urðu: í meistarafl. kvenna.
Ármann-Fram 13:5, Valur-Víking-
ur 12:10, Breiðablik-Þróttur 12:7
í 2. flokki karla gerðu Akranes og
Víkingur jafntefli 12:12 og KR
V«nn TR 9:8.
STAÐANí
I. DEILD
Staðan í I. deild í handknatt-
leik er nú þessi:
S
★ ÍR-FH 27:27
★ Fram-Ármann 34:19.
Fram 3 3 0 0 6 102:69
FH 3 2 1 1 3 83:79
ÍR 3 1 1 1 3 80:88)
Vík. 2 1 0 1 2 36:3»
KR 2 1 0 1 2 50:59
Ármann 3 0 0 3 0 54:75
ALÞÝÐUBLABIÐ — 14. janúar 1964 1|,