Alþýðublaðið - 25.01.1964, Side 2
JBltstJórar: Gylfl Gröndal (áb. og Benedikt Gröndal — Fréttastjóii:
Arni GunnaTsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiöur Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
ilverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkuriní
NÝJA ÐAGSBRÚNARSTJÓRN!
( .KOMMÚNISTAR hafa stjórnað verkamanna-
•tfélaginu Dagsbrún í meira en tuttugu ár. Þeir
fengu það á silfurbakka úr höndum Héðins Valdi-
■marssonar á sínum tíma, og héldu fast í það, þeg-
•ar Héðinn sneri við þeim bakJnu reynslunni rík-
, uri.
( Síðan hafa kcmmúnistar hrakið f jölda manns
, úr félaginu og haldið öðrum á aúkasbrá. Þeir hafa
, haft f jölda manns á launum og gert þetta öndiviegis
félag að mikilsverðasta vígi sínu. Árangurinn af
istjórn þeirra hefur fyrir verkamenn orðið mun
i aninni en efni hafa staðið til.
Dagsbrún befur hjvað eftir annað orðið að ríða
á vaðið í kaupg jai dsanál um og fá hækkanir með dýr
'um verkföllum, >en síðan >hafa aðrar stéttir komið á
. eftir og fengio fyrirhafnarlítið jafn mjkið eða
meira. Þ>egar loks tækifæri gafst á síðasta ári til að
fá sérstakar kjarabætur fyrir hina lægst launuðu
með aðstoð >ríkisvaldsins, sagði Dagsbrúnarforust-
rtan NEI.
Kommúnistar í Dagsbrún hafa alla tíð van-
, 'rækt hina félagslegu hlið kjarabaráttunnar og eng-
an veginn tryggt iverkamönnum þau hlunnindi á
! því sviði, sem þeir hefðu átt að fá. Er þetta því
, bagalegra, sem hin félagslega aðstaða hefur á síð-
! <ari árum haft æ meiri þýðingu fyrir lífskjör vinn-
| andi stétta.
Það er sannarlega kominn tími til að skipta uni
stjóm í Dagsbrún, iveita kommúnistum frí og gefa
í nýjum mönnum tækifæri til áð spreyta sig.
SJÓMENN hafa einum rómi mótmælt ákvörð
í un yfirnefndar á fiskverði, sem komngerð var fyr-
j ir nokkrum dögum. Sjóm>annasambandið hefur
rsent frá sér mótmæli og fjöknennir fundir hafa
j' verið haldnir i einstökum sjómannafélögum.
j - Kjami þessa máls er augljós. Yfimefndiin tók
j tillit til vinnslukosfcnaðar og markaðsverðs í áliti
I sínu, enekki til hækfeandi framfærslufeostnaðar sjó
.onanna eða annars útgerðarkostnaðar. Þess vegna
i er sjómönnum ætlað að taka á sig aukinn fram-
! færslukostnað með óbreyttu kaupi af sama afla-
I magni.
Sjómenn í Ólafsivík bentu í samþykkt sinni á
i það misræmi, sem er milli verðákvörðunar á afurð
um bænda og sjómanna. Ef sjómenn, iðnaðarmenn
eða 'verkamenn auka tekjur sínar, til dæmis með
því að vinna dag og nótt í aflahrotum, fá bændur
sjálfkrafa hækkun. Nú, þegar bændur og aðrar
stéttir fá miklar hækkanjr, skammtar yfirnefndin
sjómönnum óbreytt fejör. f
HÖFUM FLUIT
VERKFÆRA- OG BÚSÁHALDADEILD
vora úr Awstiirstræti 10 í Hafnarstræti 23
(húsnæHi Samvinnusparisjóðsins).
Þar verður tíl sölu fjöibreytt úrvai af verkfær-
um, búsáhölcSum, smærri byggingarvörum, hrein
iætisiækfum og sportvörum,
Geriö svo vel og lítiö inn í nýju búöina.
Austurstræti
næri
ÞAB ER SKEMMTILEGT að
veila iví athygli hve margir
virðast hafa áhuga á hálfrar aid-
ar gömui málavafs ri. Kristján Al-
bertsson hefur skrifað tveggja
binda sögu um Hannes Hafstein,
um fynsta innlenda ráíftierrarin
skáld og stjórnmálaskörung, en
Kristján er elskulegur persónu-
leiki, hrifnæmur og góðhjartað-
ur, fágaður, draumamaður og
dreymir ekkert nema gott og fall-
egt.
ÞETTA VERÐUR TIL ÞESS, að
hann hrífst ákafl. af hinum mikla
persónuleika söguhetju sinnar og
bókin ber ótvíræð merki þess.
Með þessu magnar hann mergð
drauga á hendur sér, enda varla
nema von vegna þess að f jölmarg-
ir menn, sem okkur hefur verið
kennt að tilbiðja af því að þeir
unnu sigur í kosningum 1908,
birtast okkur sem hálfgerðir mis-
■indismenn í bók Kristjáns. Hann
lætur nefnilega Hannes Hafstein
nú ljóma, en aðeins týra í glugga-
boru „skúmaskotsmannanna.“
MÉR DETTUR EKKtí HUG að
sletta mér fram í deilumar um
þessar bækur. Ég hef lesið þær
af athygli og þótt góðar tii
skemmtunar, enda íinnst mér,
satt bezt að segja, að ég hafi öðru
að sinna. Ég hef líka furðað mig
á öllum þessum skrifum og öll-
um þessum háværu umræðum.
Ég hélt að annað stæði okkur
nær.
ÞAÐ ER FULL ÁSTÆÐA til
þess, að allir beztu menn þjóðar-
innar leggi fram lið sitt til bjarg-
ar þjóðinni, því að segja má, aS
aldrei í sögu sinni hafi hún stað-
ið á öðrum eins vegamótum og nú,
Hún hefur fullar liendur f jár. Hún
liefur meira en nóg að bíta og
brenna. Hún getur leyft sér kaf-
Framh. á 13. síðu
SÓLARKAFFI
Sólarkaffi-fagnaður ísfirðingafélagsins verður í Sigtúni,
sunnudaginn 26. janúar kl. 8,30 e. h., stundvíslega.
Stutt ávarp: Birgir Finnsson alþm.
Nýr skemmtiþáttur frumfluttur:
Leikararnir Róbert og Rúrik.
Dans.
Aðgöngumiðar verða seldir og borð tekin frá kl. 4—6 á
laugardag. — Ef einhverjir miðar verða eftir, verða þeir
seldir við innganginn á sunnudag.
Stjórnin.
2 25. jan. 1964 — ALþÝÐUBLAÐIÐ