Alþýðublaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 3
Kennedy ræöir við
Breta um Malaysíu
LONDON 24.1 (NTB-Reuter).
Robert Kennedy, dónismálaráð'-
herra Bandaríkjanna koin í dag
til Lomdom tia að gefa bre^ku
stjórninni skýrslu um viðræður
sínar í því skyni að efnt verði til
nýrra samningaviðræðna um Mala
ysíu-sambandsríkið. Hann bar til
baka frét ir um, að Sukarno for-
seti hygðist láta af andstöðu sinni
gegn sambandsríkinu.
IFundur í Alþýðu-j
fiokksféíagi |
Hafnarfjarðar ||
Alþýðuflokksfélag Hafnar- j!
f jarðar heldur félagsftmd í !
Alþýðuhúsinu við Strand- !>
götu n. k. mánudag 27. jan. !>
kl. 8.30 e. h. Fundarefni er
fjárhagsáætlun Hafnarfjarð- j!
arbæjar. Framsögumaður er !!
Kristinn Gunnarsson bæjar- !>
ráösmaður. Félagsmenn al- !;
þýðuflokksfélaganna í bæn- <;
um eru velkomnir á fundinn J J
meðan húsrúm leyfir. J|
MtWMWWWWWWMWWWWW
Reykjavík 23 jan. — RL
Karlakór Reykjavíkur efnir til
nýstárlegrar skemmtunar í Sig-
túni nk. sunnuag kl. 3-5 e.h.
• Þar mun kórinn undir stjórn
Jóns S. Jónssonar m.a. syngja lög
úr hinum vinsæla söngleik Leon
ards Bernsteins „West Side Story“
en kvikmynd eftir söngleiknum
hefur verið sýnd í Tónabíó und-
anfarnar vikur. Munu því allmarg
ir kannast við lögin úr þessum
skemmtilega og vinsæla söngleik
Óperusöngvararnir Guðmund-
ur Jónsson og Eygló Viktorsdóttir
syngja einsöng með kórnum.
Kennedy sagði á blaðamanna-
fundi á flugvellinum, að hann von
aðist til þess að Sukárno breytti
afstöðu sinni í hinum væntanlegu
samningaumleitunum.
Seinna átti Kennedy fund með
R.A. Buder utanríkisráðherra og
skýrði honum frá árangri við-
ræðna sinna við Sukarno, Tunku
Abdul Rahman forsætisráðherra
Malaysíu og Macapagal, forseta
Filippseyja. í gær lýsti Sukarno
yfir vopnahléi á landamærum
Malaysíu og Indónesíu á Borneó
og átti vopnahléð að ganga sam-
stundis í gildi.
í London hafa menn látið í
ljós ánægju með fyrstu fréttirn
ar um vopnahléð. Seinna hafa
brezkir embættismenn látið í ljós
ugg vegna nýrrar yfirlýsingar
Sukarnos. Indónesíuforseti sagði
á fjöldafundi í Djakarta, að bar-
áttuaðferðin gæti breytzt ef fjand
skapurinn við Malaysíu yrði að
halda áfram.
Kennedy sagði á blaðamanna-
fundinum, að Sukarno hefði lát
ið af ö'lum hernaðarlegum fjand-
skap við Malaysíu meðan hann biði
eftir hinni væntanlegu ráðstefnu.
Ég tel, að Sukarno og indónesíska
þjóðin vilji útkljá þetta deilumál
og komast að samkomulagi við
Malaysíu og Filippseyjar, bætti
Kennedy við.
Kennedy mun einnig ræða við
Sir A’ec Douglas-Home forsætis
ráðherra og Duncan Sandys sam
veldismálaráðherra áður en hann
heldur frá London á sunnudaginn.
DJAKARTA: Sukarno Indónesíu
forseti lét til skarar skríða í dag
gegn vinstrisinnuðum verkalýðs-
forkólfum sem hafa reynt að
leggja hald á erlend fyrirtæki víðs
vegar í landinu. Sukarno fyrir-
skipaði að verkamenn skyldu hlýða
tilskipun, sem gefin var í sept-
ember í fyrra og er á þá lund að
bannað sé að leggja hald á erlend
fyrirtæki.
MISRETTI GAGNVART
HLUTASJÓMÖNNUM
Sjómenn I Ólafsvík héldu
fjölmennan fund í fyrradag
og gerðu eftirfarandi mód-
mælaályk un um fiskverðið:
„Fundur haldinn með sjó-
mönnum í Verkalýðsfélaginu
Jökli í Ólafsvik 23. janúar
mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun j^Íraefndaír verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, þar
sem hún hefur úrskurðað, a'ð
fiskverð skuli lialdast óbreytt
áfram árið 1964. Telur fundur
inn þa'ð aUiygíisvcrt, að í
forselndum fyrijr þessari ár
kvörðun yfirnefndar kemur
það fram, að aðeins er tekið
tillit til vinnslukostnaðar og
markaðsástands, en kjara-
og verðlagsþróun hjá þjóð-
inni almennt árið 1963, sem
snertir sjómenn ekki síður
en aðra landsmenn, er ekki
tekin tii hliðsjónar við á-
kvörðun nýs fiskverðs. Telur
fundurinn að í þessu felist
aívarlegt misrétti gagnvart
hlutasjómönnum, sem verði
að taka á sig síórbreyttan
framfærslukostnað á óbreytt
an kjaragrundvöll. Vill fund
urinn benda á til samanburð
ar í þessu efni mismuniun á
forsendum fyrir ákvörðun
verðs á framleiðsluvörum
landbúnaðarins og hins veg-
ar ákvörðun verðs á sjávaraf
urðum, sem grundvalla kjör
hlutasjómanna á, hverjum
Framh. á 19. síðu
Hermenn í Kenya
einnig óánægdir
|IRÚLOFAST
IMARGRÉT?)
j; Sænska blaðið „Express- j;
j! en“ hermdi í gær, að Mar- j!
J! grét Danaprinsessa og Ul- !!
! > rik Haxthausen barón, sendi ! >
!> ráðsritari í danska sendiráð j;
j; inu í París, mundu bráðíega j [
j [ opinbera trúlofun sína. Blað J!
J! ið birti mynd af prinsess- J!
!! unni og baróninum, en ! >
! > danski hir'ðmarskálkurinn !;
!; segir að myndin hafi verið !;
j; tekin þegar prinsessan j [
j! dvaldist í París I fyrravor. j!
J! Jafnframt segir hann, að !!
!! enginn fótur sé fyrir orð- !;
j j xóininum, sem blaðið tali j;
j; um. Meðfylgjandi mynd var j;
j [ tekin þegar Margrét prins- ; [
j [ essa fór í heimsókn til Thai- !!
!! lands í nóvember. Með henni !!
! > á myndinni er Sirikit Thai- !;
! > Iandsdrottning. !;
tWWWWWWWWMWMWWWW
NAIROBI 24.1 (NTB-Reuter).
Jomo Kenya ta, forsætisráðherra
Kenya, tilkynnti í dag að hann
mundi skipa nefnd til þess að
rannsaka kröfur hermanna lands
ins um launahækkun og bætt
vinnuskilyrði. Skömmu áður hafði
Kenyatta beðið Bretland um hern
aðaraðs oð til að mæta hugsan-
legri ólgu í líkingu við þá, sem
risið hefur upp í Tanganyika og
Uganda..
Bretar hyggjast senda 700 her-
menn úr varaliði heraflans flug
leiðis til Nairobi til að koma í
staðinn fyrir hermenn þá, sem í
gær voru fluttir frá Kenya til
Uganda.
Vopnaðir lögreglumenn voru á
verði á götum Jinja í Uganda í
dag engin merki sáust um rán
og ofbeldisverk eins og eftir her
mannauppreisnina í Tanganyika
á sunnudaginn, sem var mun al-
varlegri en uppreisn Uganda-her
mannanna.
Eftirleiðis fá óbreyttir hermenn
í Jinja kr. 1536 (ísl.) í mánaðar-
laun en höfðu áður 654 kr. Lægst
settu undirforingjarnir fá kr. 2700
á mánuðj en höfðu áður kr. 1200
Einnig voru gerðar lagfæringar
á reglum í sambandi við hækkun
hermanna í tign.
Engar hótanir hafa verið hafðar
í frammi við 18 brezka liðsforingja
sem starfa við herflokkana í Jinja.
En góðar heimildir í Uganda
herma að þeir muni ekkl geta
haldið stöðum sínum í landinu
öllu lengur.
MILUONIR DREPNAR MEÐ
SÓTTHREINSUNAR - GASI
Frankfurt, 24. janúar
(NTB - Reuter)
Gas, sem upphaflega var nota'ð til
að sótthreinsa fangaföt í Ausch-
witz og var mjög fljótvirkt var
notað til að myrða milljónir fanga.
Þetta sagði 53 ára gamall fyrrver-
andi liðþjálfi úr SS, Arthur Bret-
wieser, sem er fæddur í Póllandi,
í Auschwitz-réttarhöldunum í dag.
Hann stjórnaði sótthreinsun í
fangabúðunum.
Gasið gekk undir nafninu Zyk-
lon B. Það verkaði samstundis,
sagði hann.
Breitwieser, sem var dæmdur
til dauða í Póllandi 1947 en seinna
látinn laus og sendur til Vestur-
Þýzkalands, er í hópi 22 fyrrver-
andi starfsmanna fangabúðanna,
en þeir eru ákærðir fyrir fjölda-
morð og glæpi í Auschwitz.
Hann neitaði framburði fyrrver-
andi fanga þess efnis, að Breitwie-
ser liefði sjálfur tekið þátt í fyrstu
tilraununum til að drepa fanga
með gasinu í október 1941.
Breitwieser sagði, að liann vissi
að gasið væri mjög fljótvirkt. —
Hann hefði sjálfur séð SS-mann
detta þegar hann var að sótt-
lireinsa. Hann hefði einnig heyrt,
að fangar hefðu verið drepnir með
gasi en ekki fyrr en það hefði ver-
ið gert mörgum sinnum.
Annar hinna ákærðu, Dr. Wili
Frank, sem var yfirtannlæknir í
Auschwitz og er nú sextugur að
aldri, neitaði einnig staðhæfing-
um um, að hann hefði tekið þátfc
í því að velja þá fanga, sem drepa
átti með gasi. Það voru læknar
sem völdu fólkið úr þegar fang-
arnir komu til búðanna, sagði
hann.
Hann neitaði einnig staðhæfing-
um um, að hann hefði tekiö þátt
í því að drepa fanga með gasi en
játaði að hann vissi til þess, að
gull úr tönnum líflátinna fanga
hefði verið brætt í gullstengur á
einni lækningastofu hans.
Hann kvaðst sjálfur hafa mörg-
um sinnum afhent stjórn fanga-
búðanna gullstengur. Fangarnir
notuðu glóðarlampa til þess að
bræða gullið úr tönnunum, sagði
hann.
ALÞÝ0UBLAÐ1Ð — 25. jan. 1964 3