Alþýðublaðið - 26.01.1964, Side 1
GuSjón Sv. Sig-
urðsson, form.
Ingimundur Er-
lcndsson, v.f.
Jón Björnsson
ritari.
Steinn I. Jó-
hannesson, gjk.
Klara Georgsd.
meðstj.
Guðmundur
Jónss., meðstj.
Jóna Magnúsd.
meðstj.
Stjórnarkosning fer fram í Iðju, félagi verksmi ðjufólks í Reykjaivík, í dag. Kosið verður í skrifstofu
Iðju, Skipholti 19, og istendur í dag frá kl. 10—22.Kosningaskrifstofa B-listans er í Skátaheimillinu við
Snorrabraut, símar 21410 og 21411. Stuðningsmenn og bifreiðaeigendur em.beðnir að veita alla þá
aðstoð sem í þerira valdi stendur.
Bandaríkjamenn skutu í dag á loft
einlcennilegu gervitungi, sem
jiefnist Echo II., eða Bcrgmál 2.
Gervihnöttur jtessi verður stoerst-
ur og sýnilegastur allra þeirra sem
til þessa liafa komist á braut um-
liverfis jörðina. Talsmaður banda
rísku geimferðastofnunnarnmar
(NASA), sagði að sending linattar
ins hafi tekist Vel.
Að því er fréttastofan Rauter
segir, er hnöttur þessi í rauninnl
loftbelgur, sem er blásinn út í
1280 km. hæð og ri'ær 40 .metra
Kxrormoli Tlanri
WASHINGTON 25. 1. NTB. —
AWWWWWWWMWWMMMWWWWWWWMWtWWtWWWWWWWWWWWtWWWWWWWWWWWI
■mmm>
45. árg. — Sunnudagur 26. janúar 1964 — 21. tbl.
12 mílna landhelgi
viö Kanada fagnaö
SJÖFALT FLEIRI BÖRN
SLASAST / REYKJAVÍK
Reykjavík, 25. jan. GO.
í ályktun, sem Samtök há-
skólamanna, hafa sent þing-
mönnum og fleiri aðilum seg-
ir m. a.: „Athugun hefur leitt
í ljós, að í Reykjavík verða sjö
sinnum fleiri umferðarslys á
börnum, en í jafn stórri borg í
OTTAWA, 25. janúar (NTB-
AFP) — Fulltrúar sjávarútvegs-
Ins í Kanada lýstu yfir einróma
stuðningi við fyrirætlanir stjórn
arinnar um að koma á 12 sjó-
mílua fiskveiðilandhelgi á fundi
í Ottawa í gær. Þeir fóru þess
á leit, að gerðar yrðu aðrar ráð-
stafanir til að vernda kanadíska
fiskimenn gegn erlendutu keppi-
nautum.
Bandaríkjunum með jafnmarga
bíla. Öryggismál barna og ungl
inga eru því orðin mikið vanda-
mál. Öryggi barna og unglinga
má auga með hæfiiegum ráð-
stöfunum, en þær ráðstafanir
verða að beinast að hollum aga
barnanna sjálfra, auknum sklln
ingi foreldra og annarra leið-
beinenda barnanna á hættun-
um, bættum skipulagsmálum og
byggingarfyrirkomulagi borga
og bæja, sem miklu ræður um
eðli umferðarinnar og vanda-
mál hennar. Börn og ungling-
ar eru fyrst og fremst á ferli
milli heimila, leikvalla og skóla.
Börn og unglingar þurfa að
geta hafst sem mest við heima
eðá nálægt heimili sínu og síð-
an í skólanum við skólann. Um
leið er augljóst að staðsecning
skólanna hefir mikla þýðingu
fyrir öryggi barna og unglinga
í umferðinni."
Síðan er foreldrum, kennslu
yfirvöldum, bílstjórum og lög-
reglu bent á að sérstakt til-
Framh. á 15. síðu.
I opnunni í dag skrifar
Helgi Sæmundsson í léttum
tón um Reykjavíkurskákmót-
ið. Greinin nefnist: SKÁK-
STYRJÖLDIN MIKLA OG
MANNVALIÐ í LIDO og
henni fylgja teikningar af
ýmsum kunnum borgurum
eftir Ragnar Lár.
SJÁ OPNU
BEZTA SÍLDVEIÐI-
MÚTT VETRARINS
ÁRNIMAGNÚSSON HÆSTUR MEO 2000 TUNNUR
Reykjavík, 25. jan. GO.
50.000 TUNNUR síldar komu á
flotann í nót.. Þetta er mesta síld-
veiði haustsins og 41 skip var um
aflann. Veiðin fékkst á sömu slóð-
um og áður, nema aðeins austar í
Skeiðarárdýpi. Veður var blítt og
got. og að sögn Jóns Einarssonar
skipstjóra á Þorsteini Þorskabít
var þetta í fyrsta sinn, sem bát-
arnir gá u vcrið að alla nóttina.
Fjórir bátanna Hamravík, Lóm-
ur, Faxi. og Árni Magnússon fara
til Eskifjarðar með samtals 6750
tunnur. Áður hafa tveir bátar far-
ið þangað með síld. Allt er lokað
í Vestmannaeyjum, nema fyrir
heimabáia og mun því megnið af
flotanum fara alla leið hingað til
Reykjavíkur, en það er uppundir
só arhringssigling.
Síldin er sögð betri en áður og
ekki útilokað að hægt verði að
salta eitthvað af henni og hún er
ágæt til frystingar.
Þessir bátar fengu yfir 1000
tunnur: Árni Magnússon 2000,
Faxi 1700, Helga 1700 Vigri 1700,
Ögri 1000, Grótta 1700, Engey
1700, Margrét 1700, Hamravík
1600, Snæfell 1600, Elliði 1650,
Akraborg 1600, Hrafn Sveinbjarn-^
arson III. 1600, Sigurkarfi 1600,
Guðbjörg 1600, Arnfirðingur 1500,
Rifsnes 1400, Auðunn 1400, Berg-
ur 1400, Lómur 1350, Ólafur Magn
ússon 1250, Pétur Sigurðsson
Framb. 4 15. síffo
Sókn
semur
Reykjavík, 25. jan. — ÁG.
Á miðnætti síðastliðna
nótt náðust samningar milti
Starfsstúlknafélagsins Sókn-
ar og ríkis- og borgarsjúkra
húsanna imi kaup og kjör
starfsstúlkna á sjúkrahás-
um, Starfsstúlkurnar fengu
15% hækkun og aukið vakta
áiag.
Er þar með forðað verk-
falli því, sem átti að koma
til framkvæmda á miðnætti
á mánudag, 27. janúar — og
hefði vafalaust laað starfs
semi sjúkrahúsanna.
Stærsti gervi-
hnötturinn