Alþýðublaðið - 26.01.1964, Side 2
Bttstjórar: Gylfl Gröndal (áb. og Benedlkt Gröndal — Fréttastjórl:
Arrn Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúl: Eiður Guðnason. — Simar:
14900-14903. — Auglýsingasimi: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Ásfcriftargjald
kr. 60.00. — 1 lausasölu kr. 4.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinl
ÓVÆNTUR STUÐNINGUR
I FRUMVARP ríkisstj órnarin.'nar um ráðstafan-
ir vegna sjávarútvegsins kom til fyrstu umræðu á
AlþJngi í fyrradag. Gerðust þau tíðindi, að for-
ingjar stjómaTandstöðuflo!kkanna játuðu, að þau
útgjöld væru nauðsynleg, sem ríkJsstjórnin legg-
ur til. Töldiu þeir ‘jafnvel, -að þessar greiðslur til út-
, vegsins þyrftu að ivera meiri.
Þeir Eysteirm Jónsson og Lúðvík Jósef sson við
urkenndu, að veita þyrfti frystihúsunum aðstoð,
-Ðg Eysteinn taldi þá aðferð, sem ríkisstjómin hef-
ur ivalið, vera rétta og skynsamlega. Þeir viður-
kenndu báðir, að veita þyrfti 'togaraflotanum mikla
hjálp vegna óvenjulegra þrenginga. I>eir viður-
kenndu einnig, að ríkið yrðJ að greiða sinn hluta af
hækkun bóta almannatrygginga, og ekki mætti
lækka niðurgreiðslur ríkisins á nauðsynjum ai-
mennings.
Þetta var meiri viðurkenning, en ríkJsstjórnin
hefur átt að fagna frá leiðtogum framsóknarmanna
og kommúnista. Getur þjóðin vart fengið frá Al-
þingi fullkamnari staðfestingu á því, að hin nýju
útgjöld ríkisins séu óhjákvæmlleg og frumvarp
stjórnarinnar á rökum reist.
Enda þótt Eysteinn og Lúðvík væru fylgjandi
þeim útgjöldum, sem frumvarpið hefur í för með
isér, voru þeir á móti fjáröflun til að mæta igreiðsl-
unum, en þær nema 210 milljónum króna. Þeir
héldu fram, að ríkissjóður værl svo öflugur, að
Ihann gæti bætt þessum kostnaði á sig án þess að
; fá nökkrar nýjar tekjur!
Þegar þess er gætt, að stjómarandstaðan hefur
básúnað um allt land, að viðreismln hafi lagt efna
hag þjóðarinnar í rúst, kemur ýmsum spánskt fyr
lr, að þessir menn skuli nú telja ríkissjóð svo öflug
an. Verður ekki komizt hjá þeiírri ályktun, að Ey-
steinn og Lúðvík trúi ekki sjálfir þeim áróðri, sem
þeir og flokkar þeirra breiða út, að efnahagurinn
sé í imolum. í þessum umræðum sýndu þeir fjór-
hag ríkisins meifca traust en sjálf ríkisstjómin!
Eysteinn og Lúðvík héldu fram, að ríkisstjórn
in vildi hækka söluskattinn af hefndarþorsta og
ananrjvonzku. Er þetta ekki í fyrsta sinn, sem þeir
ætla ríkisstjóminni slíkar hvatir, en hugsandi ís-
lendingar munu ekki þeirrar skoðunar, að mann-
vonzka sé ráðandi afl í íslenzkum stjórnmálum.
Fjármálaráðherra kvaddi sér hljóðs og gerði
grein fyrir áætlunum um tekjur ríkissjóðs á þessu
ári. Sýndi hann fram á, að óhjákvæmlegt sé að
'afla isjóðnum þeirra tekna, sem frumvarpið gerir
ráð fyrir.
er sófasett hinna vandlátu
HÚS GAGNAVERZLUN AUSTURBÆJAR
Skólavörðustíg 16 — Sími 24620.
i
Reykjavík, 23. jan. — IIP.
STARFSEMI Æskulýðsráðs
Kópavogs liefur verið með mikl-
um blóma í vetui’. Munu nú nær
G00 unglingar í Kópavogi taka
þátt í nániskeiðum og félagslífi á
vegum ráðsins, en starfsemi þess
fer sívaxandi. í fyrra tóku um 400
unglingar þátt í ýmiss konar fé-
lagsskap, sem ráðið stóð fyrir.
Flestir unglingarnir eru nemend-
ur í Gagnfræðaskóla Kópavogs eða
hafa nýlokið námi þar og á aldr-
inum 12—18 ára. Gott og vax-
andi samstarf er um æskulýðsmál
milli ráðsins og gagnfræðaskólans,
en slíkt samstarf mun ekki hafa
tíðkazt milii skóla og æskulýðs-
ráða annars staoar á landinu til
þessa,
Æskulýðsráð lióf fyrir skömmu
starfsemi sína að loknu jólaleyfi.
Aðalstarfsemin fer fram í Félags
heimili Kópavogs, annarri hæð, í
har til gerðu föndurlierbergi. Á
briðjudögum er þar kennd bast-,
ága-, perlu- og filtvinna. Á mið
vikudögum er ljósmyr.daklúbbur,
bar sem kennd er ljósmyndun og
framköllun. Á fimmtudögum verð
ir leiðbeint um framkomu og
snyrtingu. Á íöstudögum eru unn
ir ýmsir hlutir úr beini og horni.
Á laugardögum er frímerkja-
klúbbur frá kl. 4—6. Á mánudög
um starfar einnig taflklúbbur, og
í þeim kvöídum er einnig kennd
'eðuriðju, bæði í Kárnesskóla og
í Félagsheimilinu. Þar er einnig
smíða- og mósaikföndur á þriðju
tögum. í gagnfræðaskólanum er
eiðbeint í fundarstjórn og fundar
-eglum á miðvikudagskvöldum og
"ramsögn og leiklist á finuntudög-
im. Einnig er að taka til starfa
ikíðaklúbbur og námskeið í hjálp
; viðlögum. Kvikmyndaklúbbur
verður líka starfræktur í vetur.
Ilelztu leiðbeinendur í vetur
liafa verið: Guðleifur Guðmunds-
son, Sigurbjörg Kristfinnsdóttir,
Sigurður Þorsteinsson, Jón Hálf
dánarson, Gísli Pétursson, Þor-
steinn Jónsson og Magnús Bæring
ur Kristinsson.
Þrjú kvöld í viku cr stór og
vistlegur samkomusalur á annarri
hæð Félagsheimilisins opinn fyrir
kvöldvökur, málfundi og dans-
leiki.
Sú breyting hefur orðið á starf-
seminni í vetur, að samvinna hef-
ur lekizt miili gagnfræðaskólans
og æskulýðsráðs. Hefur Sigurjón
Hiiaríusson kennari, sem jafn-
framt er félagsmálafulltrúi í skól
anum, starfað með róðinu í vetur.
Hefur allt þetta samstarf reynzt
mjög farsælt og örvað starfsemina
á allan hátt. Æskulýðsráð lítur svo
á, að nauðsynlegt sé, að það fái
fastan starfsmann, æskulýðsfull-
trúa, sem skipuleggi starfsemina
í sambandi við. skólana og félög
ungs fólks í bænum..
Að sjálfsögðu standa föndur- og
skemmtiklúbbar opnir unglingum
utan skólans, nema dansleikir fyr
ir ungiinga ó aldrinum 14—15
ára. Þeir eru lokaðir fyrir eldri og
einnig þá, sem ekki eru í gagn-
fræðaskólanum. Það er aftur á
móti mikill meirihluti unglinga í
Kópavogi, sem eru annað hvort
nemendur í gagnfræðaskólanum
eöa hafa fyrir skömmu stundað þar
nóm, sem sækja skemmtanir í fé-
lagsheimilinu.
Unglingarnir leggja fram mikia
vinnu sjálfir, annast skemmtiat-
riði og fleira að mcstu.
Reynsian er sú, að því ábyrgari
sem unglingarnir eru sjólfir og því
meira sem þeir leggja á sig, því
Framh. á 13. síðu
KJARABÆTUR - ÚTSALA
EJn hin raunverulegasta 'kjarabót er að lækka
ivöruverðið miðað við kaupgjaldið. — Sú var
tíð að mánaðarkaupið hrökk naumlega fyrir
einum karlmannaíötum.
Nú bjóðum vér yður ágæt föt úr alullarefnum
fyrir kr. 1250.00 til kr. 1750.00.
Stakar terylenebuxur á kr. 595.00 — Stakir
jakkar frá kr. 800.00.
Elltima JíjéTíjfiA
2 26. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ