Alþýðublaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 1
45. árg. — ÞriSjudagur 4- febrúar 1964 — 28. tbl.
MtHHMHHHHHHWHHHHWWUHMMMMUHMHWWM
SNJÓKOMAN í (lafr og í gær hefur valdiS nokkrum umferða-
truflunum. Menn hafa verið seinir að taka við sér með keðj-
urnar, eða treyst snjóhjólbörðimum um of, fyrir bragðið hafa
þeir því setið fastir hingrað og: þangrað ogr í hinum ogr þessum
stellingum sjálfum sér til ama og öðrum til angurs. Sumsstað-
ar hafa komið allmiklir skaflar, eins og t. d. á Öskjuhlíðinni, þar
sem myr.din er tekin. Snjóplógrur er að ryðja grötuna, en bílarnir
koma í humátt á eftir. — Mynd: JV.
Ályktun flokksstjórnar Alþýðuflokksins um helgina:
Þrír settir
í gæzlu-
varðhald
Reykjavík 3. feb. — ÁG
Þrír menn hafa verið færðir £
gæzlUvajl'ðhald vegna ávssana-
svikamálsins, sem fyrir niohkrn
komst upp í sambandi við launa-
greiðslur á Keflavíkurflugvelli.
Voru mennirnir teknir sl. föstu-
dag og fluttir í Hegningarbúsiö
við Skólavörðustíg.
Blaðið náði í gær tal af Ólafi
Þorlákssyni, sem hefur verið sett
ur rannsóknardómari í máli
þessu. Hann staðfesti þetta. Mun
sterkur grunur leika á sekt a.m.k.
tveggja þeirra og um grófar sakir
að ræða.
Ólafur hefur samkvæmt um-
boðsskrá leyfi til að þinga hvar
sem er, og síðan hann tók við
málinu fyrir um það bil hálfum
mánuði síðan, liefur hann sett1
rétt i Keflavík, Kópavogi og á
Selfossi. Á morgun mun hann'
væntanlega halda rannsókn áfram
í Keflavík.
Reykjavík, 3. febr. - ÁG
BIFREIÐINNI R-15442 var stolið
aðfaranótt síðast liöins sunnudags
frá húsinu númer 28 við Rauðarár-
sííg. Bifreiðin er af gerðinnj Clu'v-'
rolet-stadion, árgerð 1955, döhk-
græn að lit. Bifreiðin var ekki kom
in fram eftir hádegi í dag, og eru
þeir, sem hafa orðið hennar varir,
beðnir að gera lögreglunni að-
vart.
ALÞÝDUFLOKKURINN hélt um síðustu helgi fjölmennan og
þróttmikinn flokksstjómarfund, þar sem mættir voru fulltrúar víðs
vegar af landinu. Gerði fundurinn ítarlega stjómmálaályktmx, og
eru liöfuðatriði hennar þessi:
★ Fundurinn krafðist þess, að ríkisstjórnin tæki nú þcgar rösklega
í taumana til að ráða við verðbólguna.
★ Fundurinn taldi, að jafnvægi yrði að byggjast á tekjuskiptingu,
sem Iaunastéttirnar sætta sig við, og varaði við of mildum
tekjumismun, meðan hinir lægst launuðu hafa ekki hærri eða
tryggari Iaun en nú gerist.
★ Fundurinn taldi, að endurskoða yrði fyrirkomulag á verðákvörðun
landbúnaðaraforða og taldi óeðlilegt, áð kaup bænda breytist
sjálfkrafa eftir tekjubreytingum launþega við sjávarsiðuna eftir
að bannað hefur verið með Iögum, að kaup launþega breytist
eftir framfærslukostnaði. Ef þetta verður ekki leiðrétt, taldi
fundurinn, aö verkalýðshreyfingin hljóti að krefjast verðtrygg-
ingar í einhverri mynd á kaup sitt.
★ Fundurinn taldi nauðsynlegt, að rikisstjórnin hefði forystu um
víðtækt samkomulag launastétta, bænda, atvinnurekenda og hins
opinbera mn ráðstafanir til lað forða þjóðinni frá óðaverðbólgu
og gengishrnni. Vildi fundurinn stöðva víxlahækkanir kaupgjalds
og verðlags, stytta hinn langa vinnudag í áföngum án kaupskerð
ingar, auka vinnuhagræðingu og halda verðlagseftirliti.
★ Fundurinn taldi, að rikisvaldið yrði að koma í veg fyrir, að fram-
kvæmdir fari á óskipulegan hátt fram úr áætlun og raski jafn-
vægi vinnumarkaðsins, en þetta hafi valdið miklu um verðbólg-
una. Hins vegar krafðist fundurinn aukins fjár til íbúðabygginga
og mælti með aúknum skyldusparnaði ungs fólks, en mn leið auk
in réttindi þess til láua.
Mörg fleiri málefni eru rædd i
ályktuninni, sum þeirra dægurmál,
en önnur vísir að umfangsmiklum
stefnumáium, sem Alþýðuflokkur-
inn hyggst beita sér fyrir.
Af hinum síðastnefndu bar hæst
kröfuna um allsherjarlífeyristrygg
ingar fyrir alla landsmenn, sem
fundurinn taldi næsta stórverk-
Framh- á 13. síðu
820 BREZKIR UNGLINGAR KOMA TIL
REYKJAVÍKUR 3. ÁGÚST N.K.
Reykjavík, 3. febr. - ÁG
BREZKA skemmtiferðaskipið
Devonia er væntanlegt til
Reykjavíkur í sumar (3. ágúst)
en með því koma 820 brezkir
unglingar á aldrinum 12 til 18
ára. Skip þetta er „fljótandi
skóli” en mörgum klukkustund-
uin er varið á degi hverjum
til að fræða unglingana um
lönd þau, sem heimsótt eru
hverju sinni. Einnig fer fram
ýmis önnur almenn fræðsla.
ÞaÖ er Ferðaskrifstofan Saga,
sem mon annast móttökur, en
unglingahópurinn mun meðal
annars fara til Þingvalla, sjá
þjóðdansa og glímu og fá tæki-
færi til að ganga um bæinn og
verzla, Á leið sinni til Reykja-
víkur mun skipið sigla bjá
Surtsey, það er að segja, ef
hún verður þá emi ofansjávar
Með hópnum koma 160 áð-
stoðarmenn og eru 75 þeirra
kennarar. Áhöfn skipsins ef
295 menn og flestir þeirra Ind-
verjar. Skipið fer frá Dundec
í Skotlandi og tekur ferðin alls
Framh. á 13. síðu
lHWWHWWWWWWWWWWWWMHtWmMWWMWHVW%WWWWWWWMWVWiW1