Alþýðublaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 10
Félagsbækur Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þj óðvinaféíagsins fyrir árið 1963 hafa nú verið
: sendar umboðsmönnum um land allt.
' Afgreiðsla félagsbóka til óskrifend a í Reykjavík fer fram í Bókabúð
i Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21.
V
: Félagsmcnn eru vinsamlegast beðnir að vitja bóka sinna sem fyrst. Þeir ættu að kynna sér
bókaútgáfu vora á árinu 1963 og hagnýta valfrelsið, meðan allar bækumar eru fáanlegar. Upp-
ilag sumra aukabókanna er mjög takmarkað, enda má búast við að einhverjar þeirra seljist upp
ifyrr en varir.
Auk sérstaklega hagstæðs verðlags á föstum félagsbókum gefst félags-
mönniim kostur á að fá allar aðrar útgáfubækur vorar, nýjar og gamlar
með 20% afslætti frá útsöluverði.
ÚTGÁFUBÆKUR VORAR ÁRIÐ 19 63 VORU ÞESSAR:
ANDVARí______ALMANAK fyrir árið 1964.
AFRÍKA, ný bók í flokknum „Lönd og lýðir“. Höf undur: Guðrún Ólafsdóttir.
RÓMAVELDI, stórt og afburða vel skrifað rit eft ir bandaríska sagnfræðinginn Will Durant. Jón-
■ as Kristjánsson cand. mag. íslenzkaði. — Útsöluverð kr. 320,00.
KONUR SEGJA FRÁ, frásöguþættir, minningar, sögur og ljóð eftir 16 konur. — Útsöluverð
kr. 225,00.
ANNA ItÓS, ný skáldsaga eftir Þórunni Elfu Mag núsdóttur. Útsöluverð kr. 210,00.
LANÐSVÍSUR, ný ljóðabók eftir Guðmund Böðv arsson. Með teikningum eftir Hörð Ágústsson.
Útsöluverð kr. 200.00.
CÍSERÓ og samíð lians. Safn ritgerða um klassísk fræði eftir dr. Jón Gíslason. Útsöluverð
' kr. 140,00
FERHENDA, vísnakver eftir Kristján Ólason. Útsöluverð kr. 140,00.
FRÖNSK LJÓÐ, Jón Óskar þýddi. Útsöluverð kr. 140,00.
UM SKJÖLDUNGASÖGU, eftir dr. Bjarna Guðnason, prófessor. Útsöluverð kr. 225,00.
ÆSIR OG VANIR, eftir Ólaf Briem magister. Útsöluverð kr. 80,00.
,ISLENZK ORÐABÓK handa skólum og almenningi. Aðalhöfundm- Árni Böðvarsson. Útsöluverð
kr. 700,00.
Félag'smenn fá 20% afslátt af útsöluverði allra útgáf ubóka vorra, gamalla
'°§ nýrra. — Allir bókamenn ættu að kynna sér þau kostakjör, sem Bóka-
útgáfa Menningarsjóðs býður þeim. —Nýjir áskrifendur eru vinsamJegast
beðnilr að snúa sér til afgreiðslu vorrar, Hverfisgötu 21 í Reykjavík, símar
10282 og 13652.
Leiðbeiningar fyrir þá er
hyggja á Þýzkalandsför
K
Þýzka útlendingaeftirlitið hefur
koinizt að raun um það, að tals-
verð brögð eru að því, að útlend
ingar komi til Þýzltalands í því
augnamiði að stunda þar eitthvert
starf eða iðju, sem færir þeim
tekjur til að standa síðan straum
af einhvers konar námi, án þess
að hafa vegabréfsáritun við koin-
una til landsins.
Margir þessara útlendinga full-
nægja heldur ekki kröfum þeim,
sem gerðar eru til þess að mega
stunda háskólanám í Þýzkalandi,
enda vakir fyrir mörgum þeirra
aðeins að taka þátt í tungumála-
eða kvöldnámskeiði, sVo að þeir
teljast eigi stúdentar samkvæmt
þýzkum skilningi.
Samkvæmt þýzkum ákvæðum
er erlendum námsmönnum þá og
því aðeins heimilt að ferðast til
Þýzkalands án vegabréfsáritunar
og sækja um dvalarleyfi á þeim
stað, sem þeir hyggjast stunda
nám sitt, ef þeir geta fært sönn-
ur á innritun sína við þýzkan há-
skóla og hafa yfir að ráða nægj-
Framh. á 13. síðu
Framh. af 1. siðu
að ég hef litla þekkingu á-gerð
kvikmynda og þeim kröfum, er
sjálfsagt þykir að gera til
þeirra, sem þar taka að sér
hlutverk. Telja má víst, að
mörgu hefði verið gerð full-
komnari og glæsilegri skil af
vönum leikurum. Hins vegar
dáist ég að því, hve þetta lítt
vana fólk leikur margt vel og
eðlilega.
Á-myndinni sjáum við eink-
um skuggahliðar heimilanna, og
eru sumar þeirra mjög dökkar.
Má vera, að mönnum þyki ó-
trúlegt, að svo hryllileg svívirð-
ing skuli finnast mitt á með-
al okkar. Við skulum vona, að
slík heimili séu fá. En ekki er
furða, þótt börn verði að and-
legum vanskapningum við það
að alast upp við slíkan kulda
og kæruleysi, drabb og ólifnað
sem þarna er sýnt. Og dæmin
eru nokkuð mörg og verða á-
horfendum minnisstæð. Hér
skulu nokkur nefnd:
Drengur kemur hvað eftir
annað of seint í skólann, vegna
þess, að hann hefur ekki svefn-
frið á heimilinu. Er þar foreldr-
unum um að kenna. Hann er
drifimi upp úr rúminu á þeim
tíma, sem hann á að vera mætt-
ur í skólanum, vakinn af æstri
móður sinni og rekinn af stað
án þess að fá þurrt eða vott til
næringar. Þetta endurtekur sig,
þrátt fyrir góðan vilja drengs-
ins til að gera skyldu sína.
Augljóst er, hvert stefnir. Vilji
drengsins sljóvgast við síend-
urtekna ósigra, og að lokum
verður hann kærulaus.
Annað dæmi: Móðir gefur
lítilli dóttur sinni svefnlyf til
þess að komast sjálf út að
skemmta sér. Þetta mistekst
þó. Barnið vaknar og hleyp-
ur grátandi út á náttklæðunum
til þess að leita að henni.
Átakanlegt er að sjá inn á
heimili að morgni jóladags. —
Smábarn situr uppi í rúmi og
nagar hráa rjúpu, en foreldr-
arnir liggja dauðadrukknir inn
an um brotnar áfengisflöskur
og hvers konar skran.
Drengsnáði fer hverja ferð-
ina eftir aðra, stelur úr verzl-
unum og færir móður sinni
fenginn. Hann fær því meiri
þakkir sem þvfið er verðmeira.
Unglingsstúlka, sem hefur
misst allt traust á heimili sínu,
fer að heiman og út í skip.
Lögreglan sækir hana þangað,
er hún þá ofurölvi og gerir
tilraun lil að kasta sér í sjó-
inn.
Einna átakanlegast finnst
mér að sjá inn á heimilið, þar
sem óvild milli hjónanna var
orðin svo megn, að móðirin
sleit fötin utan af litla drengn-
um sínum og hrinti honum frá
sér, vegna þess, að faðirinn
liafði klætt hann gegn vilja
hennar. Nokkru síðar (þá er
komin nótt) sést inn í svefn-
herbergið. þar sem feðgarnir
sofa, en þá situr móðirin enn
þá inni í stofunni með fros-
inn svip. Litli dre.ngurinn henn-
ar hefur ekki svifið inn í
draumalöndin vermdur móður-
hlýju- kvöldið það. Þarna er
verið að bera barnssál út á
kiakann.
Svo sem sjá má af þessum
dæmum, er efni myndarinnar
einkum neikvæðs eðlis, þ. e.
ætlað til viðvörunar. Vera má,
að sumum þyki þar ekki rétt
stefnt. Eg játa, að ég hef mciri
trú á hinu jákvæða í öllu, er
að uppeldi lítur. Hitt er þó
augljóst, að til þess að hægt sé
að iækna mannleg mein, þarf
að þekkja þau. Læknir hefst
ekki handa um aðgerðir, fyrr
en hann veit, liver meinsemd-
in er. Hér er verið að kynna
alvarlegt þjóðarmein, voða, sem
er mitt á meðal okkar og fer
áreiðanlega vaxandi sé ekkért
gert til úrbóta. Eg trúi því vart,
að fólk horfi svo á þessa mynd,
að það hrærist ekki til með-
aumkunar með börnunum, sem
eru svo ólánssöm, að alast upp
á spilltum heimilum, þar sem
framtið þeirra er stefnt í bein-
an voða. Nú er meðaumkunin
ein ekki mikils megnug, en hún
vekur samúð og myndar þann-
ig andlegan jarðveg fyrir rækt-
unarframkvæmdir í uppeldis-
málum. Og þær hljóta að vera
í nánd.
Þá munu áhrif myndarinnar
— hið neikvæða — hrinda fram
jákvæðu starfi á sama hátt og
myrkrið lcnvr okkur til þess
að kveikja Ijós.
Eg vil að endingu hvetja fólk
til þess að sjá þessa kvikmynd,
þegar bess verður aftur kost-
ur. Með því styrkir það gott
mál. Auk þess hefur fullorðið
fóik gott af því að horfast í
augu við sannleikann, þótt
hann sé stundum noklcuð
beizkur.
Hafi Magnús Sigurðsson þökk
fyrir framtak sitt.
Eiríkur Stefánsson.
Fiskiþíng
Framhald af síðu 5.
það sta'.'íssvið, sem hann rækti til
æviloka. Arið 1935 tók hann við
stjórn á skrif.tofu féiagsins. og
gegndi því starfi til ársloka 1962,
eða í 27 ár. Arnór var um margt
sérstæður maður. Þeir sem kynnt
ust lionum í starfinu reyndu fijótt,
að hann fylgdist ótrúlega vel með
því, sem var- að gerast á sviði
sjávarútvegsins og vi si vel skil á
öllu. Þeir sem aftur kynntust hon
um utan hins daglega starfs urðu
fljótt áskynja að hann Var bók-
fróður, með afbr. ættfr. og sat11-
fróður og kunni mikið af þeim
fróðleik, sem til gamans mundi
verða og gagns og kunni vel að
segja frá. Við, sem unnum með hon
um kynntumst auðvitað líka bess-
um hlíðúm en auk þess einnig óör.
um, Við kynntumst skyldurækni
hans, sem aldrei brázt og árvekn-
inni um hag stofnunarinnar, sern
hann starfaðj fyrir, og ,síðast en
ekki sízt umhyggjunni fyrir okkur,
sem hann starfaði með. Allt þetta
voru sterk skapgerðareinkenni Arn
órs og móta þá mynd, sem við mun
um geyma í huga okkar nú, þegar
hann er ekki lengur með okkur í
lífi og starfi.
Við kveðjum hann nú með trega
og þakkiæti fyrir Samstarfið og um
leið og við minnumst hans send-
um við samúðarkveðjur konu hans
og öðrum aðstendendum.
Ég vil svo biðja viðstad'da að
minnast þeirra manna, sem ég hefi
getið, svo og sjómanna þeirra, sem
látið hafa lífið við skyldustörf á
hafinu, frá því Fiskiþing kom síð-
ast saman, með því að rísa úr
sætum.
Ég býð Fiskiþingsfulltrúa vel-
komna til starfa á Fiskiþing og
segi 27. Fiskiþing selt.
10 4. febrúar 1964 — ALhÝÐUBLAÐID