Alþýðublaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 13
í a-riðli í íshokkí keppnbinar hafa
Kanadamenn og Rússar unnið sína
leiki. Svíar og Tékkar hafa engum
leik tapað, en gert jafntefli.
í listlilaupi karla á skautum, sem
hófst í gær hefur Þjóðverjinn
Sehnelldorfer forystu eftir fyrsta
daginn.
SKiPAUTGCr» hikisins
IM.s. Baldur
fer ,til Rifshafnar, Króksfjai’ðar
ness, Skarðstöðvar, Hjallaness og
Búðardals, 5. þ. m. Vörumóttaka
í dag.
VIÐA TAFIR
Framhald af.hls. 3
ar á Suðurnesjum og í nágrenni
Reykjavíkur í dag, en það var aft
ur tekið að lagast með kvöldinu.
Þrcngslavegur.nn er enn opinn,
en Krísuvíkurleiðin alveg lokuð.
Fréttaritari blaðsins á ísafirði,
sagði að þar hefði verið norðaust
anátt með snjókomu að undan-
förnu og verið bylur af og til í
3 daga, gengið á með hvössum
éljum og töluvert mikilli snjó-
komu. Yfirleitt hefði verið ieið-
indaveður meginhluta síðustu
viku, aldrei flugveður, en gæftir
slæmar og afli tregur. Vel var
1 fært innanbæjar í ísafirði í dag,
enda götum þar verið haldið opn-
um. Veðrið hefur verið mjög
svipað um alla Vestfirði, t.d. var
mikil snjókoma á Patreksfirði í
dag og stormur á miðunum úti
fyrir Vestfjörðum. Fjallvegir eru
yfirleitt lokað.r á Vestfjörðum.
í morgun fór veðrið að versna
á Blönduósi og víðar í Húnavatns-
sýslum og hefur verið slæmt í dag.
Hefur verið éljagangur á Norð-
Vesturlandi annað slagið síðan á
laugardag, en þó er þar ekki mik
ill snjór að sögn fréttaritarans á
Blönduósi.
A Akureyri tók að hvessa um
kl. hálftólf í morgun og gerði
svartabyl, en í hryðjunum komsc
veðurhæðin upp í 9-10 vindstig.
Stóð þetta veður í klukkutíma, en
dimmt hefur verið yfir og élja-
gangur í alian dag. Frostið hef-
ur verið a.m.k. 11 stig. í nágrenni
Akureyrar var færð sæmJeg að
sögn fréRaritara, t.d. skotfæri til
Dalvíkur. Vaðlaheiði er ófær, en
sæmileg færð um Dalsmynni. Á
Húsavík fór veðrið einnig að
versna til muna í morgun, og hef
ur þar verið versta veður í dag,
hvassviðri og skafrenningur, en
ekki bætt mikið á. Þar var færð
víðast hvar sæmileg í nágrenninu.
Á Austfjörðum var mjög hvasst
seinnipartinn í dag, svo að. varla
var stæit í verstu hryðjunum, en
þá var jafnframt mikiil skafrenn-
ingur, en liríðaði lít*ð. Þar var
þó bezta veður í gær, en brá
skyndilega til norðvestanáttar í
morgun. Fjarðarheiði og Odds-
skarð eru lokuð, og búast má við
að flesár aðrir fjallvegir á Aust
fjörðum teppist í þessu veðri.
Reykjavík, 3. febr. - EG
Forsætisráðherra mælti fyrir
lagafrumvarpi um samkomudag
reglulegs Alþingis 1964 í efri deild
í dag. Frumvarpið er komið frá
neðri deild.
Afnám laga um verðlagsskrá var
til 2. umræðu í efri deild í dag.
Framsögu hafði Ólafur Björns-
son (S).
Jón Árnason (S) mælti fyrir
frumvarpi um varðskip landsins og
! skipverja á þeim í efri deild í dag.
TÖKUM
Framh. af 1. siðn
efni á sviði tryggingamála, eins
og þegar er komið fram í Svíþjóð
Þá krafðist fundurinn, að lok-
ið yrði á núverandi þingi endur-
skoðun skatta- og útsvarslöggjaf-
ar til að lækka gjöld á láglauna-
fólki. Þá var einnig samþykkt, að
stórauka þyrfti baráttu gegn skatt
svikum. Ennfremur var samþykkt,
að endurskoða verði tollskrá til
lækkunar á vöruverði og auka
tolleftirlit til að fyrirbyggja
smygl.
Samþykkt var að vinna bæri
að bættum menntunarskilyrðum
og auknu menningarlífi, og að
auka þyrfti rannióknir í þágu at
vinnuveganna.
Lokaorð ályktunarinnar voru
þessi: „í samræmi við það, sem
hér hefur verið sagt, álj'ktar
flokksstjórnarfundurinn, að Al-
þýðuflokkurinn ha di áfram starfi
sínu í ríkisstjórninni og vinni m.
a. að þeim verkefnum, sem að
framan greimr. Framtíð stjómar-
samvinnunnar verður undir því
komin, hversu vel flokknum verð
ur ágengt í því að koma þessum
málum fram.“
820 BREZK
Framh- af 1. síðu
13 daga. Frá Reykjavík fer það
til Noregs og síðan heim. Far-
gjaldið er 38 pund fyrir hvern
ungling, eða um 4500 krónur ís-
lenzkar.
Eigandi Devoniu er „British
India Steam Navigation Co”.
Þetta félag á annað samskonar
skip, Duneru. Eru bæði skipin
notuð til fræðsluferða (Edu-
cational Cruises) og þá siglt um
öll heimsins höf. Hefur ung-
lingum gefizt kostur á að koma
til Ítalíu, Grikklands, Rúss-
lands, Noregs, Svíþjóðar og
margra fleiri landa.
Um borð í Devoniu eru
kennslustofur, sem rúma alls
400 nemendur í einu. Einnig er
þar stór fundarsalur. Þá geta
unglingarnir skemmt sér við
alls konar Jeiktæki. Á morgn-
ana klukkan 7 eru allir vaktít
og morgunverður borðaður kl.
7.30. Síðan fer kennslan fram
og eru kennslustundir þrjár,
hver 45 mínútur. Ef þessi fyrsta
ferð skipsins til íslands heppn-
ast vel, eru likur fyrir því, að
fleiri verði farnar.
ÍÞRÓTTIR
Framh. af 11. siðu
Fremst Norðurlandakvenna var
sænska stúlkan Kæck með 1.661.1
stig.
í íshokkí keppninni bar það
helzt til tíðinda, að Svíar sigruðu
Finna með yfirburðum eða 7:0.
Leiðbeiningar
Framh. af 10. síðn
anlegri þýzkukunnáttu og fé til
að standa undir námi sinu.
Útlendir námsmenn verða og
að hefja nám sitt þegar eftir kom-
una til landsins. Nú hefur út-
lendingur í liyggju að ferðast til
Þýzkalands til þess að stunda
starf eða fá atvinnu við hagnýt
störf í sinni grein, og þarf liann
þá að snúa sér til sendiráðs Sam-
bandslýðveldisins Þýzkalands til
þess að sækja þar um áritun til
Þýzkalandsferðar.
Árangur
Framh. af bls. 16.
ir urðu óheppnir með áburð
cins og margir fleiri. Sérstaklega
fór Birgir illa út úr því. —
Mjög erfitt var að átta sig á fær-
inu. Á laugardag hlánaði nokkuð,
en svo kom frost aftur og varð þá
brautin eins og gler. Þegar svo
gangan fór fram byrjaði enn á ný
að hlýna í veðri og við slíkar að-
s'æður er mjög erfitt að velja
réttan áburð. íslendingarnir
voru ekki svo vel stæðir að geta
sent út f jölmennt lið til að athuga
brautina út í yztu æsar eins og
margir af hinum þjóðunum- Enda
munu líka margir aðrir keppendur
hafa smurt rangt. Þórhallur og
Birgir gerðu það sem þeir gátu og
komu útkeyrðir í mark. Þeir voru
þó fljótir að jafna sig.
í dag flytja íslenzku göngumenn
irnir frá Seefeld, þar sem þeir hafa
búið til þessa og setjast að í Ol-
ympíuþorpinu.
KÝPUR
Framh. af 3 .síðu
svar Makariosar við tillögum
Breta og Bandaríkjamanna. Á
flugvellinum í Aþenu gaf hann
svar er var túlkað á þá lund að
forsetinn hefði ekki algjörlega vís-
að þeim á bug. — Upplýst hefur
veri ðað öll NATO-ríkin, að ís-
landi og Luxemborg undanskild-
um hafí fengið tilmæli frá Bret-
um og Bandaríkjamönnum um að
leggja ti! lið í hina sameiginlegu
friðarsveit. 1
Hannes á horninu
Frh. af 2. síðu.
að vonum. — Ýmsum þykir
blöskrunarverðast, að nokkrum
skyldi detta það í hug, að stað-
setja það í Tjörninni, sem öllum
þykir vænt um. Auðvitað hefði
átt að byggja það á, Skólavörðu-
holtinu, en þar hefur verið bruðl
að svo skammarlega með lóðirn
ar, að vart er þar nú pláss fyrir
það hér eftir.
MÉR TIL GAMANS hef ég haft
skoðanakönnun til að ganga úr
skugga um, hvernig fólkið lítur
á þetta mál. Ég her lagt tvær
spurningar fyrir fjölda manns og
fengið yfirleitt greið og góð
svör. Fyrri spurningin: Hvernig
líkar þér teikningin af Ráðhús-
inu? Ertu ánægður með hana?
„Já“ svöruðu 20%. „Nei,“ svör-
uðu 62%, en 18% voru hlutlaus-
ir. — Síðari spurning: Ertu á-
nægður með staðinn? „Já" sögðu
2%. „Nei," sögðu 91% en hlut-
lausir voru 7%.
ÞARNA SÉRÐU, Hannes minn,
hvernig fólk lítur á málið. Svo
lagði ég fyrir marga eina auka-
spurningu: „Hvað þarf mörg bíla
stæði hjá Ráðhúsinu?" Sá, sem
nefndi lægsta tölu svaraði:
„Minnst 500.“ En sá sem nefndi
hæstu tölu svaraði: „Ekki færri
en 1000.“ Aðrir voru þama á
milli. En mér er spura: Hvar er
þessum bílum ætlaður staður
þarna við Tjarnarendann. Margir
létu þá skoðun sína í ljós, að
það væri óheyrileg fjarstæða,
að byggja „Ráðhúsið" á þéssum
stað, sem virðist vera ákveðinn."
vantar unglinga til að bera blaðið til áskril
enda í þesstim hverfúm:
★ Miðbænum
★ Lindargötu
★ Tjamargötu
★ Kleppsholt
★ Rauðarárholti
AfgrelBsla Alþýðublaðsins
Ssmi 14 900
Fljótt og örugg' Þjónusta. Hjólbarðinn til-.
búinn innan 30 mínútna. Sérsíök tæki fyrir
slöngulausa hjólbarða Felgur í flestar teg-
undir.
Réynið viðskíptin- MÍLLAN
Opið frá kl. 8 áfd. Þverholti 6
■ Hi 1T s.d. alla daga (Á horni Stórholts og
vikunnar* Þverholts'
HOFUM OPNAÐ
varahlutaverzlun á Laugavegi 176
(húsi Bílasmiðjunnar)
með
LUC AS
C. A. V. og
G1Í3LING
vonu’
Við munum fram-
vegjs hafa úrval
þessiara vara á hoð
stólum.
BLÖSSI SF. véla- og varahlutaverzlun
Sími 23285.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 4. febrúar 1964 13