Alþýðublaðið - 19.02.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 19.02.1964, Blaðsíða 9
iiiiiitmiiiinmiiiiuiiiiiiiiiiiitMMmjti’iiiiiiiiiiimiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiimi vægast, er komið fyrir í byrg- inu í klöppunum. Kjarnklofanum og tækni- búnaðinum er komið fyrir í sérstöku neðanjarðarbyrgi, sem er 55 metrar á lengd, 17 mtr. á breidd 'og 40 mtr. á hæð. Talið er, að fjallið ætti að vera traust byrgi, en í ljós kom, að það var „óþétt”. Þá varð að steypa byrgi yfir ver- ið, og næsta kjarnorkuverið, sem er í byggingu, verður því ekki grafið niður i jörðina. Það er ekki talið borga sig. byggt á nútímavísu. GETUR BORIÐ SIG. Spurt er, hvers vegna Svíar reisi kjarnorkuver, þegar þeir eiga auðvelt með að virkja árnar. Ástæðan er sú, að þeir hugsa um framtíðina. Og frið- samleg hagnýting kjarnork- unnar er alveg eins eðlileg og Virkjun ánna. Iðnaðurinn í Svíþjóð hefur átt eins ríkan þátt í skipulagningu þessari og rikið. Þjóðfélagið uppsker sín laun þegar hinar ýmsu áætlanir hafa verið reyndar, og iðn- greinar þær, sem að meira eða minna leyti eru í einkaeign uppskera. sín laun fyrir hinar tæknilegu tilraunir. Reynsla í framleiðslu er það, sem til þarf og einhvern tíma kemur að því, að mikil eftirspurn verður eftir kjarnorkuverum, ekki sízt erlendis. Svíar stæðd framarlega á þeim markaði. í Farsta er að gerast athygl- isVerður atburður. Ef allt gengur að óskum, kemur heitt vatn í pípurnar alveg eins og vant er, og að reynslutíma loknum verður „gamla” orku- verið, sem raunar er spán- nýtt, lagt niður. En ef tilraun- in í Farsta heppnast þá hafa Svíar öðlast reynslu, sem ekki verður einungis hagnýtt í Svíþjóð. Kjarnakljúfurinn og önnur til- heyrandi tæki eru innibyggff í klöpp í varúffarskyni. inni é Kleppsvíkinni, Kl. 4.30 fór mannfjöldinn að skima eftir flug- vélunum, en ekki sást til þeirra fyrr en klukkuna vantaði 5 mín- í 5. Þá sáust 3 flugvélar í lofti i stefnu á Landakotskirkju. Brátt heyrðist flugvéiadynur í lofti- Og áður en varði, svifu fyrstu flug- vélarnar yfir Vatnagarða og norð- ur yfir Viðey, sveimuðu um nokkr- ar mínútur unz þær settust aust- an til við Viðey og renndu sér inn á Kleppsvíkina. Drunurnar í loftinu jukust. Á fáeinum mínútum voru þær komnar 10. Allar svifu þær skamma stund yfir sundun- um, áður en þær settust. Allar settust þær á svipuðum siað. því að vindur var allhvass af suð- vestri og urðu þær að hafa sömu steínu er þær settust. Nú varð nokkur bið unz fleiri sáust. Sýni- legt var, að hefði meiri di'áttur orðið á komu þeirra, hefði ítöl- unum, sem biðu, ekki orðið sama- Þá heyrðust drunur í lofti — þrjár koma. Eina flugdeild vantaði. Það var sú, er síðust skyldi fljúga. Ailt virtist með felldu. Nokkrar mínút- ur liðu. — Enn heyrast drunur úr vestri. Liðforingi Longo kom með sína flugsveit heila á húfi í höfn- Meðan flugvélarnar voru að setjast höfðu benzín-bátarnir farið áf víkinni. En jafnskjótt og allar vélarnar voru setztar, fóru þeir út á víkina, hver að sinni flug vél. En þetta varð þó til þess að landganga flugmannanna tafðist. Var það ekki fyrr en kl.. að ganga UÚ, að Balbo-foringi flugflotans — kom að bátabryggjunni. — Mikill mannfjöldi hafði safnazt saman við bryggjuna '-er báturinn, fánum skreyttur lagði að- Forsætisráð- herra, sem þá var hr. Ásgeir Ás- geirsson núverandi forseti, var meðal þeirra er tóku á móti flug- köppunum. FlugsveitixL tafðist hér í Reykja vík nokkra daga vegna slæmra veð urskilyrða. Balbo-flugkapteinn kom þó flugsveit sinni vestur um haf á áfangastað og var þetta flug ítalanna talið mikið afrek á þeirra tíma mælikvarða. — Eins og áður er .sagt voru þrjú frímerki yfir- prentuð i tilefni þessarar'flugferð ar með orðunum „Hópfíug ítala 1933“ 298 umslög, frímerkt með öllum þrem merkjunum fóru vest- ur um haf með flugflotanum og var það eitt “þeirra, sem selt var í Hamborg í nóvember sl. fyrir 46.580 oo kr. Frásögnin um komu ítalanna til Reykjavíkur er skráð eftir frétta greinum dagblaðanna í R-vík frá þessum tíma. ☆ Námsbók í grasafræöi Fyrir skömmu kom út hjá Ríkis útgáfu námsbóka ný útgáfa af Gróðrinum, kennslubók í grasa- fræði efcir Ingólf Davíðsson. Bók in er nú breytt og aukin og er henni skipt í tvö hefti. Fyrra heft- ið er ætlað gagnfræðadeildum til unglingaprófs, en hið síðara eink um landsprófsdeildum miðskóla. í bókinni eru mjög margar mynd ir bæði ljósmyndir og teiknaðar myndir, þeirra á meðal litmyndir á sextán blaðsíðum í fyrra hefti og tólf blaðsíðum 1 síðara hefti. í báðum heftum eru ýtarlegar mynd askrár með fáorðum lýsingum á tegundunum- Þótt heftin séu fyrst og fremst miðuð við ákveðið skólastig, munu þau eflaust henta ýmsum öðrum framhaldsskólum, auk þess sem fróðleiksfús almenningur á þar greiðan aðgang að alþýðlegum fróðleik um grasafræði. Bjarni Jónsson teiknaði allar myndirnar í fyrra heftið og einnig margar myndir í síðara heftið. ísafoldarprentsmiðja h.f. sá um prentun og bókband, litmyndir voru prentaðar hjá Litbrá h.f. AÐALFUNDUR Byggingasamvinnufélags starfsmanna ríkisstofnana verður haldinn í Baðstofu Iðnaðarmanna við Vonarstræti, mánudaginn 24. febr. kl. 8,30 e. h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsstjórnin. Æskulýðssamband íslands heldur Félagsmálanámskeið föstudagskvöld og laugardag 6. og 7. marz n.k., ef næg þátttaka fæst. Þátttaka tilkynnist fyrir 1. marz til skrif- stofu ÆSÍ, Suffurlandsbraut 4, sími 14955 (opiff kl. 3—5 e. h.), sem gefur allar nánari upplýsingar. Stjórn ÆSÍ. í Rafvirki óskast til starfa á verkstæði Rafmagnsveitna ríkisins vid Elliðaárvog. Upplýsingar í Raforkumálaskrifstofunni, sími 17400. Rafmagnsveitur rikisins. Bíístjóri óskar eftir atvinnu við akstur. Hefi meirapróf. — Upplýsingar í síma 37010. Fullfrúastaða Staða fulltrúa í sjúklingabókhalds- og innheiml udeild er iaus til umsóknar nú þegar. Laun samkvæmt iaunakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist til Skrifsofu ríkis- spítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík fyrir 29. fc-brúar 1964. Reykjavík, 17. febrúar 1964, Skrifstofa Ríkisspitalanna. Framtíðarstarf Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða mann til þess áð hafa yfirumsjón með þjónustu við farþega félagsins. Æskilegt að viðkomandi hafi nokltra þekkingu á matreiðsiu og veit> ingaþjónustu. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum voruoi í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. marz 1964, ALÞÝÐUBLAÐI0 — 19. febrúar 1964 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.