Alþýðublaðið - 19.02.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 19.02.1964, Blaðsíða 16
IWWVWWWWWMMMWWWWWWWiWWWWMMMMWWWWMWWMWtWWmV Bæjaryfirvöldin kveiktu í húsinu Seyðisfiröi, 18. febr. GB - GO Á mánudagskvöldið 10. þ. m. kviknaöi í húsinu Bjargholti og voru bæjaryfirvöldin völd aö brunanum. Hús þetta hef- ur staðið autt í langan tíma og var komiö' aö falli. Þetta var eitt elzta hús kaupstaöar ins. Hér var um þrifnaðar- ráöstöfun að ræða og því var það að slökkvilið' bæjarins stóð hjá og liafðist ekki að. Héðan er annars ekkert að frétta, annaff en um sumar- blíðu dag eftir dag. Héðan er ekkert róiff og allir bátar og sjómenn farnir annaff á vertíð. Líklegt er aff síldar- plönmn fjölgi enn í sumar. Myndin er af brunanum á mánudaginn. 2200 IÐNNEMAR VORU VIÐ NáM UM SÍÐUSTU ÁRAMÚT Reykjavík, 18- febr. — GG. TALIÐ er, að um 2200 iðnnemar liafi verið við nám á landinu um (5.1. áramót, að því e)r segir í fákýrslu Iðnfræðsluráðs um töfu fiðnnema. AIls voru í gildi um ára wiótin 2061 staöfestur námssamn- ingur um áramótin, en samkvæmt ffenginni reynslu telur Iðnráð, að IEO0—200 námssamningar hafi ver I® ókomnir til staðfestingar. JFlestir íðnnemar voru að sjálf sðgðu í Reykjavík, 1229 talsins, en af iðngreinunum voru flestir í liúsasmíði, eða 326 manns- Fæst var hins vegar .af nemum i módel- smíði, eldsmíði og söðlasmíði, einn [ maður í hverri grein, glerslípun og klæðskeraiðn, tveir í hvorri, og í kjólasaumi, málmsteypu, prent myndaljósmyndun og seglasaumi, þrír menn í hverri grein. j Löggiltar iðngreinar eru nú 61 talsins. í (L7 þeirra eru engir nem ar, og í þeim níu greinum, sem um getur hér að framan, eru að- eins 1—3 í hverri. Árið 1959 voru 1 staðfestir námssamningar alls 1557 á landinu, en eru nú 2061, og hefur því fjölgað um 504 iðn- nema við nám á s.l. fimm árum, eða um 32%. Fjölgun varð á ár- inu 1963 um 170 iðnnema við nám, og er það þriðja mesta fjölg- IV(WWWWWWWWWWWWWWW%WWWWWt Aðalfundur Albýðuflokks- félags Reykjavíkur AÐALFUNDIJR Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður hald- inn í Iðnó næstkomandi föstudag 21. febrúar kl. 8.30 e. h, D A G S K R Á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. N 2. Benedikl Gröndal alþm. flytur erindi um íslenzkt sjónvarp. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega. h STJÓRNIN IMW WWWWVWWWVVVMWWWWWWMWWWW un, sem orðið hefur á síðan iðnfræðsluráð tók árið 1950- Eftir starfsgreinum nemendafjöidinn þannig Bókaiðnaður ...... Byggingaiðnaður ., Maivælaiðnaður . Málmiðnaður ... Rafmagnsiðnaður Tréiðnaður ....... Þjónustustörf .... Annað ............ emu ari til starfa skiptist 111 508 115 704 208 207 '165 43 Svo sem segir að ofan eru flest- ir iðnnemar í húsasmíði. Næst- flestir eru í vélvirkjun 293, þá í rafmagnsiðnaði 195 og biívéla- virkjun 142. í húsgagnasmíði eru 116 og í rennismíði 106. En í jafn gamalli iðngrein og söðlasmíði hins vegar aðeins einn, í úrsmíði 6, þar af 5 í Reykjavík og 1 á Akureyri, gullsmíði 7, allir í Reykjavík og veggfóðrun 6, allir í Reykjavík, svo að eitthvað sé nefnt. í fiestum iðngreinum eru fleiri nemar í Reykjavík en öllu land- inu þar fyrir utan samanlagt. Þó bregður út af þessu. í bakaraiðn eru t- d. 14 nemar í Reykjavík, en 22 utan Reykjavíkur. í húsa- smiði eru 138 nemar í f^Kjavík, en 188 utan hennar. í málaraiðn eru 10 nemar í Reykjavík, en 42 Framhald á 3. síffu. Háöizt á fimm Reykjavík, 19. febr. — EG- RÁÐIZT var á fimm ára telpu um kvöldma arleytið í gærkvöldi á Sogavegi. Illaut liún nokkurn áverka á höfði og var ffutt á Slysa varðstofuna, þar eð grunur lék á, aff árásarmaðurinn hefði ætlað að hafa mök við hana. Við rann- sókn kom þó í Ijós að ekki liafði veriff um slíkt að ræða. Slys á Grinda- víkurvegi Reykjavík, 18. febr. - KG Síðastliðið laugardagskvöld var Volkswagen-bílaleigubíll ekið út- af veginum við Grindavík. Vegur þarna er beinn og láréttur á kafla, en beygir svo og hallar um leið. Mun bifreiðastjórinn ekki hafa tekið eftir beygjunni og því lent útaf. Vegurinn þarna er um 2 m. hár og lenti bíllinn á hliðinni, en hvolfdi ekki . í bílnum voru 3 íslendingar, þar af 2 stúlkur og einn varnarliðs- maður. Mun hann liafa fótbrotnað og var fluttur í sjúkraliús á Kefla víkurflugvelli. Stúlkurnar tvær skárust á höfði og voru fluttar á sjúkrahús í Keflavík. Bíllinn var furðulítið skemmd- ur, en þó voru rúður brotnar og hægri hliðin beygluð. Ekki mun hafa verið um neina ölvun að ræða. Átburðúr jþessf átti.sér stað um klukkan hálf átta £• gærkvöidi. Sem fyrr segir hlaut telpan nokk- urn áverka á höfði fyrir tilverkn- að árásarmannsins, en gat annars ekki gert glögga grein fyrir því, sem skeð hafðn Var hún flutt á Slysavarðstofuna og rannsókn þar sýndi að árásarmaðurinn hafði ekki reynt að hafa mök við hana þannig að merkt yrði við læknis skoðun. Telpan gat gefið nokkra Iýsingu á árásármanninum, sem hún taldi fremur ungan, og leitar nú lög- regiáh hans. IWMWWIWIWWWWMIMMWM SAMNINGA- Reykjavík, 18. febr. í DAG kom til Reykjavíkur norræn sendinefnd til við- ræðna um flugfargjöld yfir Atlantshaf. Formaður sendi- nefndarinnar er Arne Wick- borg, aðstoðarforstjóri SAS. Nefnd þessi var sett á lagg- irnar á ný afstöðnum fundi í Stokkliólmi, sem áður hefur verið skýrt frá í blöffum. Fyrsti fundur nefndarinnar mun verða á morgun, miff- vikudag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.