Alþýðublaðið - 19.02.1964, Blaðsíða 10
Alþýöuflokksfélag Reykjavíkur
AÐALFUNDUR
fél'agsins verður haldinn í Iðnó næstkoonandi föstud:ag 21. febr. Od. 8,30 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Benedikt Gröndal alþm. flytur erindi um íslenzkt sjónarp.
Féiagsmenn eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega.
STJÓRNIN.
ri
I heyranda hljóði
Framhald aí bls. 7.
þau listaverk í sanianburði við
verðmætustu dýrgripi veraldarinn-
ar í línum og litum? Og hvílíkt
gleðiefni væri það ekki, að Lista-
pfn íslands eignaðist einhvem
•þeirra? Það er dýrt, en sjálfstæði
fullvalda menningarþjóðar kostar
'fleira en þá aura, sem fara til
ihnífs. og skeiðar, skæðá og klæða.
Listasafnið á auðvitað að vera
Stofnun í líkingu við háskólann,
Jandsbókasafnið, þjóðskjalasafnið
og þjóðminjasafnið. En um allar
•þessar stofnanir gegnir sama
ifnáli: Fólkið í landinu verður að
dielga sér þær, en ekki að standa
jsem hnípin þjóð að baki þeirra.
;Og menningarstofnanirnar verða
að gera eitthvað til þess að vinna
hugi fólksins. Listasafnið á þess
áuðveldan kost, ef forráðamenn
; þess nenna.
Menntamálaráð íslands gat ekki
til frambúðar haft yfirstjórn lista-
safnsins á hendi. Það hefur eftir
sem áður nóg á sinni könnu. Skipu-
lag og rekstur safnsins er sér-
stakri stjórnarnefnd nægilegt
verkefni. Þess vegna var sjálfsagt
mál að setja lögin um listasafnið
og listráðið. En vandi fylgir veg-
Semd hverri: ListrJÖið má ekki
vanrækja það, sem menntamála-
ráð kom í verk og jók veg safnsins
3með þjóðinni — fékk fólkið í
landinu til þess að helga sér það
með aðsókn og áhuga. Niðurfell-
ing yfirlitssýninganna í safninu
sjálfu og farsýninganna á vegum
þess út Um land er óþolandi tóm-
læti. Og niig undrar það stórlega
af því að ég veit mætavel, að list-
ráðið skipa ágætir drengir, sem
ætla íslenzkri myndlist mikla
framtíð, enda sumum manna
skyldast að beita sér fyrir því
fagra ævintýri.
Og íslendingar eiga að hlæja
að þeim iðjuhöldum og kaupsýslu-
mönnum, sem koma saman á
fundi í sparifötum við hátíðleg
tækifæri til þess að gefa nokkrar
skógarhríslur í stað þess að láta
stofnun eins og listasafnið njóta
góðs af þeim fjárráðum, sem skást
eru á íslandi. Peningarnir eru
upphaflega frá fólkinu komnir.
Þess vegna á almenningsálitið að
fylgjast vel með því, sem gefið
er af gróðanum. Það á að renna
til menningarlegra þjóðstofnana,
sem eru og verða órækar heimild-
ir um andlegt sjálfstæði okkar
annars vegar og sjón okkar og
heyrn í áttina til veraldarinnar
hins vegar.
Mér er þetta heilagt alvöru-
mál, en þó skal ég bæta við sak-
lausu gamni til að fylla út blaðið
áður en ég tek það úr ritvélinni:
Eg veit ekki, hvort Hákon Bjarna-
son á son, en sé svo, þá legg ég
hérmeð tij, að hann læri listfræði
og verði næsti forstöðumaður
Listasafns íslands, þegar Selma
Jónsdóttir hættir. Og öllu gamni
fylgir nokkur alvara: Listasafnið
þarf á söfnuði að halda — ekki
síður en skógræktin. Hann á bara
að vera hófsamari og vitrari.
Kaupmannahöfn í febrúar.
Helgi Sæmundsson.
Trésmiðafélag
Reykjavíkur
Allsherjaratkvæðagreiösla 1964
um kosningu stjórnar og í aðrar tnxnaðarstöður í félag-
inu, fer fram laugardaginn 22. febrúar kl. 14—22 og sunnu
daginn 23. febrúar kl. 10—12 og 13—22 og er þá lokið.
Kosið verður á skrifstofu félagsins að Laufásvegi 8.
Kjörstjórn.
t i
1;
| '!
;í
Blá, vatteruð úlpa
fannst á Háskóla'rellinum í gær.
Upplýsingar á Laufásvegi 45.
Sími >i3450.
Sigurgeir Sigurjónssou
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstota
Óðinsg-ötu «. Síml 11043.
Vióskipta-
skráin 1964
Senn líður að því að lokið
verði við samningu handrits að
Viðskiptaskránni 1964
Félögum og stofnunum í
Reykjavík, sem skráð eru í fé-
lagsmálaskrá Reykjavíkur, hafa
verið sendar úrklippur til leið-
réttingar með beiðni um að þær
verði endursendar yfirfamar og
leiðréttar fyrir 20. febrúar.
Við flesta einstaklinga og fyr
irtæki, sem skráð eru í bókinni,
hefur verið talað, og víð þá,
sem eftir eru, mun verða talað
næstu daga.
Við allmörg ný fyrirtæki, sem
ekki voru í bókinni í fyrra, hef-
ur einnig verið talað og við
fleiri mun verða talað næstu
daga.
En þó að þeir, sem að rit-
stjóm Viðskiptaskrárinnar
vinna, geri sér allt far um að ná
sambandi við sem flest fyrirtæki
og félög, er óumflýjanlegt að
eitthvað fari framhjá þeim, og
því em forsvarsmenn fyrir-
tækja, félaga og stofnana, sem
ekki eru skráð í bókinni góðfús-
lega beðnir að láta vita af sér
með þvi að hringja í síma 17016.
Viðskiptaskráin leggur mikla
áherzlu á, að sem allra flestir,
er sjálfstæðan atvinnurekstur eða
viðskipti hafa rheð höndum, svo
og félög ög stofnanir, séu skráð
í bókinni.
Ég iörast einskis"
Framh. af 6. síðu
hennar í hugum aðdáenda
hennar.
Þetta nafn fær einnig mynd-
in, sem nú er í undirbúningi
um líf hennar.
Myndin fjallar aðallega um
ást hennar til hinna fjögurra
eiginmanna sinna og mest
rúm þar tekur hjónaband lienn-
ar við hnefaleikakappann Mar-
cel Cerdan, en talið er, að þann
mann hafi hún elskað heitast.
Edith Piaf var með manni
sínum í Bandaríkjunum, þar
sem hann var á ke’jpnisferða-
lagi. Eitt sinn I þeirri ferð sat
hún í veitingastofu flugvallar
eins og beið flugvélar hans. —
Vélin kom aldrei, hún hafði
hrapað í Andesfjöllum.
Um kvöldið átti Edith Piaf
að syngja og hún líóf skemmt-
unina með „Je ne regrette
rien“.
Skipulagsbreyting
Framhald af bls. 7.
þau hafa myndað með sér sam-
band og lagt þannig eina liindr-
unina énn í veg skipulagsbreyt-
ingarinnar. Auk þess hlýtur stofn
un sliks sambands nú, að gefa
byr undir vængi þeirri tortryggni,
sem ýmsir hafa alið á, að verka-
menn og verkakonur eigi ekki
samleið í hagsmunabaráttuhni með
öðrum sérgreinum innan lieild-
arsamtakanna, svo sem verzlunar-
fólki og iðnaðarmönnum o. s. frv.
Þótt hér hafi verið rætt sérstak-
Iega um áformin um „verkamanna
samband", gildir nálcvæmlega
sama máli um þær ráðagerðir, sem
uppi munu vera um stofnun sam-
bands „málmiðnaðarmanna" og
jafnvel „sambands “einhvers liluta
byggingariðnaðarfélaga.
Stofnun slíkra gervisambanda,
án aðildar verkamanna i þessum
greinum, er hreint tilræði við
samþykktir Alþýðusambandsþinga
um skipulagsmálin.
Hér skal engum getum að því
leitt, hvaða hvatir ráða gerðum
þeirra manna, sem nú ganga fram
fyrir skjöldu í því að rjúfa þá
samstöðu, sem þrátt fyrir allt hef
ur náðst um stéfnu ASÍ í skipu-
lagsmálum samtakanna. Eitt er þó
víst: Það er ekki umhyggja fyrir
framtíðarvelgengni og styrk verka
lýðssamtakanna, sem rajður gerð-
um þeirra.
Það er því fyllsta ástæða fyrir
meðlimi samtakanna að gjalda var
hug við þessum áformum og krefj
ast af þeim, sem vilja teljast for-
ystumenn verkalýðsfélaganna, að
þeir geri sér ekki leik að því að
brjóta gegn einróma samþykktum
þinga Alþýðusambandsins um
skipulagsmál hreyfingarinnar, þótt
stundarhagsmunir þeirra persónu-
lega kunni að gera slíkt freistandi.
Gæruúlpur
kr. 998.00.
MIKLATORGI
OTIO A. MiCHELSEN
Klapparstíg 25
Sími 20560
Byggimgaffélög
Húseígeudur
Smíðum handrið og aðra
skylda smíði. — Pantið í tíma.
Vélvírkinn s.f.
Skipasundi 21. Simi 32032.
Vesturgötu 23
HLJS
FRSIEenKTÐf*
ÁSVALLAGÖTU 69.
Sími 33687, kvöldsími 33687.
Höfum kaupanda
2ja herbergja íbúð í háhýsi. Þar£
ekki að vera laus fyrr en í
haust.
3ja Iierbergja íbúð á góðum stað.
Útborgun 500 þús. krónur.
TIL SÖLU M. A.:
4jra — 5 hcrbergja íbúð í Hvassa
leiti.
5 herbergja íbúð í Grænuhlíð.
4ra herbergja íbúð við Kirkju-
teig og Silfurteig.
5 herbergja glæsileg íbúð í há-
hýsi. Tvennar svalir. Allt teppa
lagt. Harðviðarinnréttingar.
Bílskrúsréttindí.
5 herbergja íbúð í Barmahlíð. 2.
hæð. Bílskúr.
3ja herbergja íbúð í gamla bæn-
um. Væg útborgun.
2ja herbergja -íbúð við Hjalla
veg. Bílskúr. II. hæð.
3ja herbergja íbúð við Rauðar-
árstíg.
2ja herbergja íbúð við Bergþóru
götu. Hagstætt verð. I. hæð.
í kjallara fylgir góð stofa og
snyrting.
4ra herbergja íbúð á Melunum.
Fjögur lierbergi og WC.
fylgja í risi. Malbikuð gata,
fallegur garður.
3ja. herbergja íbúð í nýlegu
steinhúsi við Njálsgötu.
3ja herbergja 90 fermetra jarð-
hæð á góðum stað í Kópavogi.
Ifagstætt verð. ;
í búðir í smfðum í miklu iir-
vali í Háaleitisliverfi.
Munið að eignaskipti eru oft
möguleg hjá okkur.
Næg biiastæði. Bílaþjónusia
viff kaapendur.
10 19- febrúar 1964 — ALÞÝÐUBLA0IÐ