Alþýðublaðið - 29.02.1964, Síða 5
^uuhuiiuihiihuuuhuiihuuuiuuu........
=
5
inu, Kongó (Brazzaville) og Se-
negal. 160 Gabonhermenn vörð-
ust hraustlega i tvær Idukku-
stundir í herbúðum sínum. Um
tíma leit út fyrir, að frönsku
hermöiinunum, sem voru 230
talsins, mundi ekki takast að
brjóta þá á bak aftur. En flug-
vélar voru látnar gera árás á
búðirnar.
Franskir fallhlífarhermenn, sem tóku þátt í íhl utuninni.
ÞAÐ vakti furðu, þegar de
Gaulle forseti skipaði frönsk-
um fallhlífahermönnum að
skerast í leikinn eftir bylting-
una í Gabon í síðustu viku til
að bjarga forsetanum, sem
steypt haföi verið af stóli, Le-
on M’ba. Frakkar liafa beðið á-
litshnekki í Afríku vegna íhlut-
unarinnar og ýmis Afríkuríki
hafa fordæmt hana.
Frakkar eru sakaðir um að
hai'a skipt sór af innanríkismál-
um Gabon. Bent er á, að enginn
beið bana í byltingunni, sem
nokkrir undirforingjar fir hern
um gerðu gegn M’ba, en hins
vegar féllu 18 Gabonmcnn og
30—40 særðust í íhlutún
Frakka.
Franska sendiráðið í höfuð-
borginni Libreville hefur auk
þess verið sakað um að hafa
skipt sér af stjórnmálum lands-
ins, ekki einungis með því að
koma M’ba aftur í forsetaemb-
M’ba.
ættið, heldur einnig með því að
láta foringja stjórnarandstöð-
unnar leita hælis í sendiráðinu
og reyna síðan að knýja fram
sættir með hinum pólitísku and
stæðingum.
M’ba verður sennilega hér
eftir álitinn franskur leppur í
Afríku. Hann hefur fengið óorð
á sig í landi sínu, og ekki er
talið að honum takist að halda
völdunum nema með frönskum
vopnum.
Foringjar byltingarinnar eru
taldir hafa haft töluverðan
hluta þjóðarinnar á bak við
sig, enda hefur mikillar óá-
nægju'gætt í garð M’ba. Hann
hefur þaggað niður í stjórnar-
andstöðunni og varpað póli-
tískum andstæðingum í fang-
elsi. Auk þess hefur hann hag-
rætt stjórnarskránni sér í vil.
* LEYFI
VARAFORSETANS
Byltingin var gerð á þriðju-
dag í síðustu viku og gekk á-
rekstrarlaust. Herinn, en í
Gabons, sem er helmingi stærra
en Frakkland, eru aðcins 450
þúsund — náði fijótlega helztu
stöðum á sitt vald Lesin var
upp tilkynning í útvarpinu þess
efnis. að endi væri bundinn á
fyrrverandi harðstjórn.
Uppreisnarmenn fólu völdin
í hendur Jean-Hilaire Aubame,
52 ára foringja stjórnarand-
stöðunnar og fv. utanríkisráð-
herra, sem átti sæti á franska
þinginu þriú kjörtímabil og
hefur orð fyrir að vera hófsam-
ur og dugandi maður. Aubame
birti stjórnarlista sinn og voru
ráðherrar hans sömuleiðis dug-
andi og hófsamir. Stefnuskrá
bans gerði ráð fyrir umburðar-
lyndi í stjórnmálum og áfram-
haldandi tengslum við vestræn
ríki.
Byltingunni virtist lokið. —
M’ba var fluttur heill á húfi til
kofa í frumskóginum við veg-
inn, sem liggur til Lambaréné,
þar sem Albcrt Schweitzer hef-
ur sjúkrahús sitt. Byltingin
hafði þegar hlotið þegjandi
samþykki USA. Einn starfsmað
ur sendiráðsins hafði gengið á
fund Aubame í höll M’bas.
En á meðan þessu fór fram
liafði fi’anski sendiherrann,
Paul Cousseran, verið önnum
kafinn. Hann hafði orðið vitni
að drykkjuólátum hermanna,
sem brutust inn í vínkjallara
forsetahallarinnar, og óttaðist
um líf og eignir franskra borg-
ara. Aðeins franskar hersveitir
gátu veitt þeim vernd.
Varaforsetinn, Jean-Marie,
Yembit, sem var á kosninga-
ferðalagi í afskekktu þorpi um
350 km frá höfuðborginni, var
eini maðurinn, sem heimilað
gat sendingu franskra her-
manna. Flugvél var send til
þorpsins og varaforsetinú sendi
franska sendiherranum þau ein
dregnu tilmæli, að hann tryggði
ekki aðeins frönskum borgur-
um verúd hcldur sæi um, að
stjórnin fengi aftur völdin í
sínar hendur.
De Gaulle lét ekki á sér
standa. Um miðnætti á miðviku
dag streymdu til landsins
franskir og afrískir hermenn
frá Chad, Mið-Afríkulýðveld-
★ M’BA TYNIST.
Ráðherrar byltingarstjórn-
arinnar voru meðan þessu fór
fram í forsetahöllinni, sem var
umkringd frönskum hermönn-
um, en ein undankomuleið var
opin og lá hún til franska
sendiráðsins. Mótspyrnan hafði
verið brotin á bak aftur, en ráð-
herrarnir höfðu eitt háspil á
hendlnni. M’ba var í frum-
skóginum ásamt sjö vörðum.
Ráðherrar byltingarstjórnar-
innar voru fúsir til samninga-
viðræðna.
En þá kom í ljós, að eini mað
urinn, sem vissi hvar í ógreið-
færum frumskóginum M,ba
hafði verið falinn, hafði beðið
bana í árásinni á herbúðirnar.
Liðsforingi nokkur, sem Frakk-
ar höfðu handtekið, sagði hins
vegar frá grun sínum og hann
reyndist réttur. Frakkarnir
fundu M’ba í kofanum og á
fimmtudagsmorgun kom hann
aftur til Libreville og flutti út-
varpsávarp.
Þá gáfust tíu ráðherrar bylt-
ingarstjórnarinnar upp. En
Frakkar sáu um, að engar
hefndarráðstafanir voru gerð-
ar. Ráðherrarnir voru settir í
stofufangelsi og verður senni-
lega hlíft.
M’ba forseti hefur nú skýrt
frá stefnu sinni. Kosningun-
um, sem fram áttu að fara sl.
sunnudag hefur verið frestað
fram í apríl (aðeins einn flokk-
ur býður fram). Þær fréttir
hafa borizt, að Frakkar séu að
reyna að fá M’ba til þess að
mynda samsteypustjórn með
andstæðingum sínum.
★ FYRSTA ÍHLUTUNIN
Frakkar hafa afsakað íhlut
un sína í Gabon með því að
vísa til varnarmálasamnings
þjóðanna. En á undanförnum
tveim árum hafa verið gerðar
að minnsta kosti sex byltingar
og byltingartilraunir í „franska
samveldinu” í Afríku, og Frakk
ar hafa aldrei áður skorizt í
Frh. á 10. síðu.
Hermaöur á verði við forsetahöllina í Librevillc.
r.
r.
3
|
::
i
r
s
Ln................................................................................. ............................."""""...........................................
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 29. febrúar 1964 §