Alþýðublaðið - 07.06.1964, Qupperneq 1
Yvö biöð, 28 síður.
45. árg. — Sunnudagur 7- júní 1964 — 126. tbl.
Kýpurdeilan
hríðversnar
NIKOSÍU, 6. júní (NTB-AFP)
STJÓRNIN á Kýpur lýsti í gær-
kvöldi yfir viffbúnaöarástandi á
eynni eftir þá yfirlýsingu utanrík-
isráðherra Tyrkja, Feidun Kemal
Erkin, fyrr um daginn, að Tyrkir
mundu ganga á land á Kýpur ef
áfram héldi sem nú horfði á eynni.
Seinna í dag hermdi AFP, að' Ma-
.............
ISennilega |
jnýtt prófmáll
SENNILEGT ER, að nýtt prófmál
verði hafið fyrir félagsdómi út af
uppgjöri fyrir Jiorskveiðar í nót,
að því er Alþýðublaðið hefur frétt.
Er verið að kanna, hversu margir
bátar hafa gert upp eftir síldar-
samningum og hversu margir
þrjózkazt gegn því, svo og livernig
skráningu hefur verið hagað.
Sjómannasamtökin hafa hvatt
félagsmenn sína til að skrifa undir
uppgjör með fyrirvara, ef gert er
upp eftir netasamningum. Er mik-
iivægt, að sá fyrirvari sé fyrir
hendi í frekari barátlu í þessu
máli.
Útgerðarmenn hafa síður en svo
ástæðu til þeirrar þrjózku, sem
þeir hafa sýnt í þessu máli. Þorska
nætur eru miklum mun ódýrari en
síldarnætur. Hins vegar er vinna
sjómanna mun meiri við þorska-
nót, því þeir verða að blóðga hvern
fisk. Þess vegna er um að ræða
sjálfsagt réttlætismál fyrir þá.
Listaháskólinn í
Höfn tekiir við 1
í húsagerðarlist
LISTAHÁSKÓLINN í Kaupmanna
höfn hefur fallizt á að taka við
einum íslendingi árlega til náms
í húsager'ðtarlisf i enda fulinægi
liann kröfum um undirbúnings-
nám og standist með fullnægjandi
árangri inntökupróf í skólann, en
þau hefjast venjulega í byrjun
ágústmánaðar.
Umsóknir um námsvist í skól-
ann sendikt Menntamálaráðuneyt
inu, Stjórnarráðshúsinu við Lækj
artorg, fyi-ir 30. júní n.k. Sérstök
umsóknareyðublöð" fást í ráðuneyt
inu.
karios forseti hefði aflétt vlðbún-
aðarástandinu.
Erkin bætti því við, að Kýpur-
Grikkjum skjátlaðist ef þeir héldu
að Tyrkir mundu horfa aðgerðar-
lausir á vopnakaup Kýpur-Grikkja
og lögin, sem þeir hafa sett um
herskyldu.
Forsætisráðherra Tyrklands, Is-
met Inönu, stjórnaði í gærkvöldi
tveggja stunda ráðuneytisfundi
um Kýpur-málið. Fyrr um daginn
hafði hann rætt við yfirhershöfð-
ingja NATO, Lymann Lemnitzer,
hershöfðingja, sem kom í óvænta
heimsókn til Ankara.
Talið er, að heimsókn hans stafi
af því, að Bandaríkjamenn vilji
koma í veg fyrir, að Kýpur-deilan
versni og enn fremur breyta hinni
(Framhald á 2. síðu).
MWWWMVWWWWWWW
Reykjavík, G. júní — HP
Á MORGUN kl. 2 síðdegis
verður Listahátíð BÍL sett
í samkomuhúsi Háskólans,
og verða forsetalijónin m. a.
viðstödd þar. Hátíðina setur
Jón Þórarinsson, formaður
BÍL, ávörp flytja mennta-
málaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, og borgarstjórlnn
í Reykjavik, Geir Iiallgríms
son, en Halldór Laxness flyt
ur ræðu. Stnfóníuhljómsveit-
in leikur undir stjórn Buket-
offs, og Söngsveitin Fll-
harmónía og blandaður kór
Fóstbræðra syngja. Rithöf-
undarnir Guðmundur Böðv-
arsson, Guðmundur Haglin
og Þórbergur Þórðarson lesa
úr verkum sínum. — KI. 4
opnar Ragnar Jónsson mynd
Jistar- og bókasýningu í Þjóð
minjasafnshúsinu. Annaff
kvöld verður svo hátíðasýn-
ing á Sardasfurstinnunni í
Þjóðleikhúsmu.
Á mánudág yerður opnuð
sýning um þróun íbúðarhúsa
hygginga á Laugavegi 2G, en
um kvöldið verffa tónleikar
Vladimirs Askhenazy og
Kristins Hallssonar í Háskóla
bíói.
wwwwwwwwwwwwwwwv
í dag er sjómannadagurinn og verður hann haldinn hátíðlegur að venju. í tilefni af því er
Alþýðublaðið 28 síður. 12 síðna aukablað fylgir og er efni þess allt helgað sjómönnum og sjó-
mennsku. Alþýðublaöið sendir sjómöunum nær og fjær beztu heillaóskir í tilefni dagsins.
(Mynd J.V.)
«**M%WWWVWWVMMMVWWW%tVWWWMMMMWWWM!WWVWWWWWVWWVWW»tV
Enn er ágæt veiði
en síldin er stygg
Reykjjavík, 6. júní —, GO.
ENN hafa borizt rúm 6000 mál síld
ar (U Raufarhafnar. Grótta kom í
gærkvöldi með 1500 mál og í nótt
komu 5 skip með rúm 5000 mál
Þau eru þessi: Guðrún Jónsdóttir
ÍS 1160 mál. Ólafur bekkur 1140,
Bjarmi EA 1100, Guðmundur Pé.-
urs 890 og Snæfell var með 940
mál og er þelta þriðja löndun
þess á jafnmörgum sólarhringum.
Von er á enn meiri síld til Rauf
arhafnar í dag.
Fyrsta síldin kom tll Neskaup-
staðar í morgun, Kópur frá Kefla
vík var með 500 mál í bræðslu.
Síldin var fitumæld og reyndist
19%. Skipstjóri á Kóp er ungur
Norðfirðingur, Sigurjón Valdi-
marsson að nafni.
Slæmt veður
við Grænland
Álasund, 6. júni NTB
FYRSTI Grænlandsfarinn á þessu
ári er kominn heim til Álasunds
með 265 tonn af sal fiski. Skipstáór
inn á bátnum, sem heitir Björh-
haug, segist hafa fengið þennan
afla ú nærri fjórum mánuðum.
Hann segir að mjög illviðrasamt
hafi verið á miðunúm og skipið
varð að liggja til drifs í 30 sólar
hringa alls og stundum 3—4 sólar
hringa í einu.
Sjómenn segja að síldin sé enn
stygg og vont að eiga við hana.
Samkvæmt frétt frá NTB í morg
un fékk fyrsti norski báturinn síld
á íslandsmiðum í gær. Þar var að
verki hringnótabáturinn VIMI frá
Haugasundi og fékk hann 1500
hektólítra. Sagt er í Bergen að
þessi veiði bátsins ætti að lierða
á útgerðarmönnum að senda sína
á íslandsmið.
Við höfðum samband við nokkra
aðila, sem hafa verið að auglýsa
eftir síldarfólki í dagbleðunum
undanfarið. Þeim ber saman um að
framboðið á fólki sé enn ekki mik
ið og þó öllu meira á karlmönnum
Reynsla undanfarinna ára sýnir að
kvenfólkið er yfirleitt nokkuð
seint á sér og ræður sig ekki fyrr
en söltun er hafin. j
WMVMVVWVMVVVVMVVMMVWMMVMVMMVWVVVWVMWVtVMVWVW
Brezka knattspymuliffið Middlesex Wanderers leikur síð'-
asta leik sinn hér á Iandi að þessu sinni annað kvöld og m.etir
þá úrvalsliði landsUðsnefndar. Myndin er tekin í leik KR og
Bretanna, en þeim Ieik lauk með jafntefli 3—3. Nú er spurn
ingin, tekst úrvalsliðinu að sigra annaö kvöld?
N