Alþýðublaðið - 07.06.1964, Qupperneq 11
Jón Þ. Ólafsson skrifar frá USA
Frábær afrek banda-
rískra íbróttamanna
Frjálsiþróttamenn hér í Banda-
ríkjunum hafa haft nóg að gera að
undanförnu. Fjölmörg mót eru
haldin hér um bverja helgi og
afrek að undanförnu hafa verið
stórkostleg. Keppni hefur verið
geysilega hörð í flestum greirium,
enda Olympíuleikar fram undan
og stefna flestir að því marki að .
komast þangað, mikið er þvi . í, j
húfi og leggja frjálsíþróttamenn
hér hart. að sér til þess að kom-
ast til Tokyo að hausti. Nýjar
stjörnur skjóta upp kollinum á
á hverju móti og heimsmethafar
verða að lá a sér lynda að láta í
minni pokann fyrir nýjum mönn-
um og í'sumum tilfellum óhörðn-
uðum unglingum. Afreksgeta og
breidd á íþróttamótum hér er
slík, að á einu mótinu reyndist
18,60 mtr. í kúluvarpi aðeins duga
til fimmta sætis og á öðru trioti í
nægði 4,88 mtr. í stangarstökki 1
til fimmta sætis sömuleiðis.
★ Coloseum Relays.
Þetta árlega mót, var haldið
hér á Olympíuleikvanginum í Los ;
Angeles að kvöldi 15. maí sl. — !
Kalt var í veðri er mótið fór fram
og háði það árangri keppenda.
Þetta mót er með meiriháttar mót
um, sem haldin eru árlega í
Bandaríkiunum og hafa yfirleitt
náðst mjög góð afrek á þessum
móti, sem nú var haldið í 24.
sinn. Sú grein sem beðið var eftir
og vakti mesta athygli fyrir mótið
var keppnin í kúluvarpi. Flestir
beztu kúluvarnarar Bandaríkj-
anna voru skráðir til keppni. —
Þeirra á meðal voru Dallas Long
núverandi heimsmethafi, sem varp
að hefur 20,30 mtr. Parry O’Brien
gamli, sem á bezt 19,33 mtr. og
í)ave Davies, sem varpað hefur
lengst 19.20 mtr. Þó þessir krafta
jötnar, sem hér eru upptaldir séu
frábærir kúlukastarar, var þó jafn
vel gert ráð fyrir því að enginn
þeirra yrði sigurvegari í kúlu-
varpskeppninni, því snemma í vor
fóru að berast afrekasögur af
19 ára gömlum Texasbúa, sem
strax á fyrsta mótinu í vor hjó
nærri skólameti Dallas Long, sem
þykir og hefur þótt stórkostlegt.
Síðustu vikurnar hefur þessi 19
ára gamli unglingur stöðugt verið
að bæta sig og það vanalega 20
til 30 cm. í hverri keppni, og síð-
asta afrek hans í kúluvarpinu var
19,78 mtr., í það skiptið bætti
hann feitt bezta afrek um 26 em.
Þegar kúluvarpararnir gengu inn
á völlinn, hver. öðrum stærri og
þreknari, bar Randy Matsqn, en
það er nafn þessa nvja undra-
manns, höfuð og herðar yfir aðra
keppendur. Matson bessi er 2ja
metra hár og vegur 118 kíló, þrátt
fyrir það svnist hann grannur
á við aðra kúluvarpara, sem hafa
æft lyftingar svo árum skiptir,
en Matson er breiður um axlir og
stórbeinóttur mjög, svo ekki ætti
að vera erfitt fyrir hann að þyngja
sig með lyftingaæfingum um 20-
30. kíló. Bftir nokkur uppmýking-
arköst hófst keppnin. Fyrstur kast
aði Matsbn og var fyrsta kast
hans 18,fib mtr. og hafði hann
forystu eltir fyrstu umferð. í 2.
umferð tók Long forystuna og
sigraði hánn örugglega í keppn-
inni, því. Matson gerði þrjú af
köstum -séium ógild og voru þau
nll-löngr4j>jálfarar hér eru þeirrar
skoðunar.jað Matson eigi eftir að
taka heimsmetið í sínar hendur
og hver jveit nema það verði í
sumar, annars urðu úrslit í þess-
ari keppai þau, að Dallas Long
sigraði ejps og áður segir og varp
aði hann; 19,94 mtr. Matson varð
í Tiðru sæti með 19,29 mtr. og
3. varð jParry O’Brien, varpaði
nokkrum_ cm. styttra. Helztu úr-
slit Önnur urðu þau að Mel Hein
sigraði i stangarstökki, stökk 4,90
mtr. en C. K. Yang, heimsmet-
hafi í tugþraut varð í öðru sæti
með sömu hæð. Þrír menn stukku
jafnhátt í, hástökki eða 2,08 mtr.
og það voru þeir, John Rambo,
svertingi, 2,01 cm. á hæð sem
stokkið hefur í sumar 2,17 mtr.
Charles Dumas fyrrv. heimsmet-
hafi og Olympíumeistari 1956, og
John Thomas, bandarískur met-
hafi í hástökki, og átti heims-
metið áður en Brumel hinn sov-
ézki kom til sögunnar.
★ Önnur mót og helztu afrek.
Eins og áður segir, líður varla
sú helgi að nýjar stjörnur skjóti
ekki upp kollinum á hinum ýmsu
mótum, sem haldin hafa verið.
Eins og þeir vita sem fylgzt hafa
með frjálsum iþróttum, þá hefur
það ekki verið óalgengt á undan-
förnum árum, að áður óþekktir
menn hafi náð stórkostlegum af-
rekum og jafnvel sett heimsmet,
og á þetta einkum við um banda-
ríska frjálstþróttamenn. Héf í
USA eru menn orðnir þessu van-
ir, en nú á þessu ári, þykir þetta
með meira móti, enda Olympíu-
leikar framundan. Það eru eink-
um hinir yngri, sem náð hafa frá-
bæruin afrekum og stöðugt er að
heyrast um ný afrek. Þeir, sem
mesta athygli hafa vakið eru Ran-
dy Matson, kúluvarpari, 19 ára
gamall, sem kastað hefur 19,78
mtr. Poul Wilson, 16 ára gamall
stangarstökkvari, sem stokkið hef
ur 4,89 mtr. Ryun, 16 ára gam-
Brezki langstökkvarinn Lynn Davis — 8,00,7 m.
all míluhlaupari, sem hljóp á
4.01,7 í Modesto um sl. helgi (23.
maí). Auk þessara þriggja, eru
fjölmargir aðrir ungir menn í upp
siglingu, og sem dæmi um getu
yngri mannanna, má geta þess, að
FH og unglingaúrval í
Hafnarfirði í kvöld
í KVÖLD kl. 20,30 fer fram
nýstárlegur knattspyrnuleik-
ur í Hafnarfirði. Þarna leika
FH, sem styrkt hefur lið sitt
með nokkrum þekktum leik-
mönnum, er Iagt hafa knatt-
una, ásamt
eru í eldlínunni og unglinga
úrval.
Meffal þeirra sem leika meff
FH eru Albert Guffmundsson
og Hermann Hermannsson
markvörffur. Einnig leika meff
liðinu þeir Ríkharffur Jóns-
son og Halldór Sigurbjörns-
sori. Myndin er af Ilermanni
og Albert.
mmimmmmwwwnwwwtwnwwMíiMWiWMtwwwwHttMWMiWwwwww**
í gagnfræðaskólunum hérna, hafrv
þrír hlaupið 110 mtr. grindahlaup-
á 13,7 sek., einn stökk 2,11 í há-
stökki, nokkrir hafa hlaupið 880
yards á 1,50,0 - 1,51,0 mín. og
önur afrek eru eftir þessu. — •
Breiddin er því mikil. og ég tcl
að Bandaríkin geti tefit fra«,
til 5 landsliðum, sem öll eru svip
uð að styrkleika. 'Svo sem kunn-
ugt er, þá gilda þær reglur um
Olympíuleikana, að ekkert lan^
má senda íicif. e«. prj., tft
keppni í hverri íþróttagrcin. Hér
í USA hefur meistaramótið skor-
ið úr um hverjir fái að keppa &
Olympíuleikum hverju sinni. —•
Þrir fyrstu menn í hverri íþrótta
grein fá því að keppa serri full-
trúar Bandaríkjanna í hverr>
grein. Fyrirsjáanlegt er, að keppni
í hirium ýmsu grcinum verður á-
kaflega hörð á bandarískum meist.
aramótinu, • og vafasamt er atF
nokkur sé öruggur með að hljóta
eitt af þremur fyrstu sætunum.
Búast má við að 5-7 menn varpk
kúlunni yfir 19 metra, sjö kasti
kringlunni yfir 60 metra, allt a?>
tíu merin, svo ekki sé meira sagt,
geta stokkið yfir 5 mtr. í stangar-
stökki og álíka fjöldi getur stokls
ið yfir 2,13 mtr. í hástökki. —
Keppni verður því hörð og þatt
verður sárt fyrir margan afreks-
manninn að sitja heima að loknu
bandaríska meistaramótinu, okkt
cr til dæmis óliklegt að kúluvarpt
ari með 19,50 mtr. á mótinu,-----
verði að sitja heima og horfa • A-
Olympíuleikina í sjónvarpi, þ6
þetta afrek 19,50 mtr. geti dugáÍF
til fjórða sætis á leikunum. Þat>-
verður því barizt hart, þegar kepþfc
verðúr til úrslita um þátttöku-
réttinn til keppni á Olympíuleik-
unum, en meistaramótið fer franv
i lok júní-mánaðar á austur-
ströridinni.
Los Angeles, 29. maí 1964.
Jón Þ. Ólafsson.
i
■
AIÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júní 1964 H