Alþýðublaðið - 07.06.1964, Side 16
lli^ÍlÉMil ■V.Ai-n'. iv'g-'l
• /
EGILli VILHJÁLÍVISSON forstjóri hefir tiikynnt Iláskólan-
um, að hann muni næstu l>rjú árin afhcnda skólanum 50.000 kr.
grjöf, alls 150.000 krónur. Gjöf þessari skal verja til þess að
styrkja læknakandídat til framhaldsnáms og sérnáms í æða- og
hjartasjúkdómafræðum. Háskólinn metur mikils þessa rausnar
leg-u gjöf og minnist þess jafnframt, að EgiII Vilhjálmsson ;
færði skólanum að gjöf fyrir fjórum árum síðan myndarlegt
peningaframlag til þess að styrkja kandídat í viðskiptafræðum
til framhaldsnáms. < •i.
arar útskrifast
Húsmæðrakennaraskóla Islands
var sagt upp 1. júní sl. og útskrif-
aðir 9 húsmæðrakennarar að þessu
sinni. Fröken Vigdís Jónsdóttir,
skólastjóri ávarpaði hina nýju hús-
mæðrakennara og afhenti þeim
skírteini. Hæstu einkunn hlaut
iWWMWMW»WWWWIWW
Taugaveikin
ii . , .
Inu i renun
i
Aberdeen, 6. júní
(NTB-Reuter)
Heilbrigðisyfirvöld í Aber-
deen gera sér nú vonir um,
a/f sigraat verði á tauga-
veikifaraldrinum um helg-
ina. .
í gærkvöldi var tala ör-
uggra tilfella komin upp í
32, en 49 sjúklingar voru
undir eftirliti. Vitað varð um
14 ný tilfélli í gær, en þau
voru 34 á fimmtudag og 30
á miðvikudag. Þessi þróun
ínála hefur vakið bjartsýn-
tna.
Um allt Bretland er haldið
áfram leit að grunsamlegum
kjötniðursuðuvörum. 700 dós
ir hafa fundizt í Cardiff og
100 í Cambridge.
iVWtMMMMMMMMVWMMW
Aðalbjörg Ingvarsdóttir frá Syðra-
Lóni við Þórshöfn, 8.81, og hún
hlaut einnig verðlaun fyrir bezta
námsárangur úr sjóði Elínar
Briem. Auk þess voru fjórum
námsmeyjum veitt bókaverðlaun
fyrir grasasöfnun. Þá skýrði skóla-
stjórinn frá sjóðstofnun, sem nem-
endasamband skólans hefur geng-
izt fyrir til minningar um frk.
Helgu Sigurðardóttur, fyrrverandi
skólastjóra, og er tilgangur sjóðs-
ins að veita námsstyrki í skólan-
um.
Tuttugu ára húsmæðrakennarar
gáfu skólanum tvo fagra silfur-
kertastjaka, og haíði Halldóra Egg
ertsdóttir, námsstjóri, orð fyrir
gefendum. Tíu ára húsmæðrakenn
arar gáfu skólanum stóran og vand
aðan blómavasa, og hafði Guðrún
Hrönn Hilmarsdóttir orð fyrir
þeim. Frú Anna G'sladóttir, fyrr-
verandi kennari við skólann, á-
varpaði einnig 20 óra húsmæðra-
kennara. ^
Alþýðublaðið kost-
ar aðeins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á-
skrifendur.
LAUGE KOCH
LÉZT I GÆR
frá
talið
Fremri roð,
Vinstri. Aðalbjorg Ingvars-
dóttir Syðra-Lóni, Þorshofn
Frk. Bryndís Steinþorsdottir,
kennari við H.K.I. Frk. Vrg-
dis Jónsdóttir, skólastjori H.
K.I. Frk. Benny Sigurðar-
dóttir, kennari við H.K.I
Halldórsdottir,
Slgriður
Keflavík.
röð fra vmstn:
Aftan
Halldís
Gunnarsdottir,
Reykjavik. Aðalheiður Auð-
unsdóttir, Dalatanga S.M.
Eemelia
Kofoed
Ilansen,
Reykjavík. Guðríður Eiriks-
dottir,
Knstnesi,
Eyjaf.
Guðny
Sigurjonsdottir,
Traðakoti, Vatnsleysustrond
Guðrun S. Guðmundsdottir,
Hafnarfirði. Þorhildi Sigurð-
ardóttur fra
Hallormsstað
vantar a myndina
Kaupmannahöfn (NTB)
Reykjavík - HKG
DANSKI jarðfræðingurinn Lauge
Koch lézt í Kaupmannahöfn í
gær, 72 ára að aldri. Koch varð
víðfrægur fyrir rannsóknir sínar
einkum á Austur-Grænlandi, —
en þangað fór hann f jölmarga rann
sóknarleiðangra. Ýmsir íslending-
ar störfuðu með Koch, og hann
kom hér oftsinnis á leið til og frá
Grænlandi.
Koch var með í öðrum Thule-
leiðangri Knuds Rasmussen árin
1916—1918, — en upp frá því
efndi hann sjálfur til Grænlands-
leiðangra og var mjög lengi yfir-
maður vísindalegra rannsókna á
Austur-Grænlandi á vegum danska
ríkisins. Hann skrifaði fjölmargar
bækur um jarðfræði og landa-
fræði Grænlands.
Framh. á bls. 2
LAUGE KOCH
Jón Loftsson
sýnir Rambler
SIFfrá
Su&ureyri
í GÆR var hleypt af stokkunum
frá dráttarbrautinni í Neskaupstað
nýjum 95 tonna bát. Eigandi báls
ins er Fiskiver á Suðureyri við
Súgandafjörð. Báturinn heitir Sif
og er með 375 ha. Kromliout-vél.
Báturinn er nú farinn vestur, en
verður fljótlega sendur á síldveið
ar.
Reykjavík, 6. júní - GO
UMBÖÖSMENN Rambler bílanna
bandarísku, Jón Loftsson hf. á
Hringbraut 121, opnuðu í dag sýn-
ingarskála í húsnæði sínu þar á
staðnum. í skála þessum verða að
NÝBYGGING LOFTLEIÐA
ER KOMIN í NOKTUN
Reykjavík, 5. júní - EG
LOFTLEIÐIR hf. buðu í dag blaða
mönnum að skoða hina nýju skrif-
stofubyggingu félagsins á Reykja-
víkurflugrelli, en þangað flutti fé-
lagið skrifstofur sínar fyrir örfáum
dögum.
Framkvæmdir við bygginguna
hófust í októbermánuði árið 1962,
og var þá kjallari byggður, en síð-
an var verkið í heild boðið út.
Tekið var tilboði byggingarmeist-
aranna Þórðar Kristjánssonar og
Ragnars Bárðarsonar. Yfirumsjón
með verkinu liöfðu af liálfu Loft-
leiða Jóhannes Einarsson, Verk-
fræðingur og Þorvaldur Daniels-
son. Nú hefur verið lokið við fyrri
áfanga byggingarinnar, þar sem
Framliald á 2. síöu.
jafnaði til sýnis tvær Rambler bif-
reiðar, Classic og American, eu
rými er gott og liægðarleikur að
skoða bílana í krók og kring.
Af Rambler er það ananrs lielzíj
að frétta, að hann mun hafa verið
einn söluhæsti bandaríski bíllinn
hérlendis á sl. ári og nú er komið
nýtt módel af Classic gerðinni all-
miklu íburðarmeiri en 1963 mó-
delið. Þó er enn liægt að fá fyrra
árs gerð frá verksmiðjunum £
lægra verði en hina nýju ’64.
Nýlega var fyrirtækinu Jón
Loftssön hf. veitt viðurkenning
frá verksmiðjunum fyrir miklá
sölumöguleika hérlendis á bílum
verksmiðjunnar. Sölustjóri verk-
smiðjanna í Evrópu afhenti fyrir-
tækinu áletraðan skjöld í þessu
tilefni.
Þá hefur verið tekin upp sil
þjónusta við Rámbler eigendur, að
gamlir bílar verða teknir upp I
nýja á matsverði. Þessa þjónustU
Framhald á 2. síðu.