Alþýðublaðið - 17.07.1964, Qupperneq 2
iiiuá tototi-ii *U.4U L*. U. 4*toi.-.jU . íiiil«u«it Í.U. ir«4>t -
I Kitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
j Arni Gunnarsson. — Hitstjói'narfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
j J.4900-14903. — Auglýsingasimi: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
j Hverfisgötu, Réykjavlk. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
1 Jir. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
BORGARASAMTÖK
i ENN hefur -orðið banaslys af völdum umferð-
ar. Mun það <vera -ellefta banaslysið í umferðinni
. .-síðan um áramót.
Alþýðublaðið hefur margsinnis bent á í rit-
tstjórnargreinum og i öðrum skrifum 'blaðsins,
: íhversu geigvænlegt vandamál umferðin er orðin.
Svo virðitst sem ýmsir fleiri geri sér þetta ljóst,
i 'þvi margir hafa látið í ljós velþóknun á þessum
.skrifum. Hér í blaðinu hefur verið bent á margt,
j sem aflaga er í umferðinni, og bent hefur verið
• á ýmsar hugsanlegar úrbótaleiðir.
i Frá þeim opinberu aðilum, sem þessum mál-
: <um ráða, heyrist hvorki stuna né hósti. Knýjandi
i umbætur sitja á hakanum, en árekstra- og slysa-
tfjöldinn eýkst með hverjum deginum. í frétt í
J Maðinu í dag er þess getið, að það sem af er ár-
4 inu, séu árekstrar í ReykjaVík 1510 talsins. Þeim
? ihefur fjölgað um 180 miðað við sama tímabil í
4 fyrra. Tjón af slysum og árekstrum skiptir millj-
.j ónum. ef ekki tugum milljóna árlega. Farartæki
4 eyðileggjast og tjón á mönnum verður seint til fjár
4 'metið.
Borgararnir háfa til þessa sýnt yfirvöldunum
j 'biðlund. en nú þykir mörgum, sem mælirinn sé
í að verða fullur.
Það er kominn tími til að borgararnir taki
jfiöndum saman og reyni að koma umbótum í fram-
kvæmd. Fjölmenn borgarasamtök gætu áreiðan-
lega látið margt gott af sér leiða á þessum vett-
rvangí. Slík samtök gætu einnig beitt sér fyrir þvi
■að skapa heilbrigðara almenningsálit gagnvart
‘umferðinni en nú ríkir. Það væri vissulega vel til
’fallið að borgararnir gripu nú til sinna ráða, þeg-
ar sýnt er að yfirvöld halda ekki vöku sihni.
BARRY GOLDWATER
ÚTSÉÐ er um að Barry Goldwaer, öldunga-
■j deildarþingmaður frá Arizona, verður frambjóð-
; ándi RepublikanH við forsetakjör í haust.
4 Goldwater er fulltrúi íhaldsaflanna í Banda-
'.ríkjunum og hefur gjarna slegið um sig með stór-
4- ýrðum í skjólí föðurlandsástar. Hann hefur lagzt
í ií?egn nær öllum veigamestu þjóðfélagsumbótum,
i sem Bandaríkjamenn hafa komið á hjá sér.
Þótt hanxi hafi hlotið mörg atkvæði á flokks-
þingi Repubiikana, er ekki þar með sagt, að hann
. njóti almenns stuðnings kjósenda. Hið raunveru-
lega fylgi hans kemur ekki í ljós fyrr en í haust.
Það væri áreiðanlega ekki til góðs fyrir sam-
: 'búð Bandaríkjanna við önnur lönd, að Goldwater
ynni forsetakjör. Flestum kemur saman um, að
til Hvita hússins eigi hann ekkert erindi.
«i—i m
. ^ 17. júlí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinMiiiiiiÍfflÍliHitiiitiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiitiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiii.i 'i •**«miiriniiiiiiitim,*,,,,,,,t
Er Húseigendafélag Reykjavíkur ieynifélag. |
■ic Skrifstofa og sími og ákveSinn viðtalstíma. 1
^ En þar fyrirfinnst aldrei neinn maður |
og aldrei er svarað í síma. jj
■ic Erfiðieikar um útvegun eyðublaða. |
, 11M|l...r.|rii|||||iiiiiiiii»immmimmmmmmmmmimimmmmimmmmmmimimimimimiii|i,,l,,,,,,,> .
HÚSEIGANDI SKKIFAR mér á
þessa leið: „Trúað gæti ég því, að
hið svokallaða Húseigendafélag:
Reykjavíkur væri einkennilegasti
félagsskapurinn í höfuðstaðnum.
Það er nokkurs konar leynifélags-
skapur, sem ómögulegt er að hafa
nokkurt samband við, og enginn
virðist vita nokkurn skapaðan hlut
um. Félagsskapur, sem hagar sér
eins og þessi, gerir skaða, hvort
sem hann er stofnaður til að auð-
velda fyrir fólki eða ekki.
ÉG Á DÁLÍTIÐ HÚS, sem ég
hef verið að leigja út undanfar-
nar þrjár vikur. Ég er ekki í Hús
eigendafélagi Reykjavíkur, en ætl
aði að kynna mér lög þess og
ganga í það, ef mér litist á. Auk
þess þurfti ég að afla mér eyðu-
blaða að húsaleigusamningum, og
það var einmitt það, sem ýtti mér
af stað til þess að grennslast um
þetta félag.
ÉG SPURÐIST fyrir um eyðu-
blöð í bókabúðum', en þar fengust
þau víða á fyrri árum. Ég fékk alls
staðar sama svarið, að þau væru
ekki til og í buðunum var sagt, að
slik eyðublöð befííu ekki fengizt
í búðum í langan tíma. Ég fór í
fjölmargar ritfangaverzlanir og
fékk alls staðar sama svar. Ein-
liver sagði mér þó, að þau myndu
fást í skrifstofu Húseigendafélags-
ins.
ÞAÐ VAR EINMITT ÞÁ, sem
ég fór að reyna að hafa upp á
þessu félagi. Ég sá í símaskránni
að það var til, að það hafði skrif-
stofu, sem hafði opið ákveðna
tíma á degi hverjum. Ég fór á
staðinn hvað eftir annað og ég
hringdi mjög oft. Það var allt af
lokað, og ajdrei svaraði neinn í
símann. Ég fór að leita til fast-
eignáskrifstofa, en engin þeirra
hafði eyðublöð. Loks fékk ég þær
upplýsingar, að ákveðin lögfræði-
skrifstofa hefði með málefni fé-
lagsins að gera, og ég sneri mér
Mttnchen, 15. júlí. (NTB-DFA).
Þrór vestur-þýzklr flugmenn
biðu bana þegar farþegaflugvél af
gerðinni Boeing 730 hrapaði til
jarðar í morgun skammt frá Katt-
erbach, um 35 km. suðvestur af
Nttrnberg.
Flugvélin var i eigu vestur-
þýzka flugfélagsins Lufthansa, —
Flugmennirnir voru í æfingaflugi
þegar slysið varð. Lögreglan seg-
ir, að eldur hafi komið upp í flug
vélinni og sprenging orðið þegar
hún var á lofti. Reynt er að graf-
ast fyrir um orsaldr slyssins.
Moskva, 15. júlí. (NTB-Reuter).
Sovétríkin hafa fallizt á að senda
ýmis hergögn til Indónesíu, að því
er skýrt er frá af indónesískri
hálfu í Moskva I dag. Samning-
arnir þar að lútandi hafa verið
gerðir meðan á vikulangri dvöl
Subandrios utanríkisráðherra í
því til henn^r. En, nei. Hún var
hætt því. Ég kvað upp vandkvæði
mín að finna félagið, og fékk þá
þær upplýsingar, að það sem stæði
í símaskránni um skrifstofutíma,
væri ekki rétt, skrifstofan hefði
aðeins opið kl. 5—7.
OG ÞÁ FÓR ÉG að hringja á
þessum tíma og ég hringdi dag
eftir dag og síðast í gær, en það
svarar aldrei neinn. Enginn get-
ur gefið mér upplýsingar um stjórn
armeðlimi, ekki einu sinni for-
mann — enginn veit neitt — og
það fæst hvergi í bænum eyðublað
fyrir húsaleigusamninga. Félagið
er algert leynifélag, en hefur skrif
Reykjavík, 15. júlí. — HP.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var í dag vegna Skálholtshá-
tíðarinnar um næstu helgi, skýrði
biskupinn frá því á hvaða stigi
framkvæmdir væru nú í Skálholti
og drap á ýmsar helztu hugmynd-
irnar, sem komið hafa fram um
framtíð staðarins og stofnanir.
íbúðarhús Skálholtsprests er nú
fullgert og hann fluttur þangað frá
Torfastöðum. Um þessar mundir
er unnið að því að reisa sumar-
búðir í Skálholti, og verða þær
dvalarstaður barna á aldrinum 7
til 14 ára. Vinnur flokkur stúd-
enta að því að reisa sumarbúðirn-
ar, og er þar einkum um guð-
fræðistúdenta að ræða. Sagði
biskup, að ef allt gengi að óskum,
Moskva hefur staðið. Suhrandio
hcldur til Kairó á morgun.
Eftir nokkrar vikur koma indö-
nesískir sérfræðingar til Moskva
til að ákveða hvaða hergögn Indó-
nesar skuli fá. Meðan á dvöl Sub-
andrio í Moskva hefur staðið, hafa
Rússar staðfest á ný að þau styðji
Indónesa í baráttu þeirra gegn
Malaysíu.
stofu og síma og ^uglýstan viðtals
tíma, sem alls ekki er farið eftir.
ÞETTA ER ALVEG óþolandi.
Fyrst félagið virðist að einhverju
leyti einoka eyðublöðin á það að
afgreiða þau. Annars nær það ekki
nokkurri átt, að leigusalar eða
leigutakar skuli ekki geta fengið
eyðublöðin í bókabúðum eins og
áður var“.
ÞETTA SEGIR bréfritarinn. Ef
stjórn Húseigendafélagsins fyrir-
finnst og hún vill gefa skýfingu á
þessu dularfulla fyrirbrigði, þá er
eg lus aö birta svarið.
Hannes á hominu.
væri takmarkið að gera sumar-
búðirnar fokheldar í sumar, svo
að hægt yrði að ljúka bygging-
unni í vetur og taka hana í notk-
un næsta sumar. Lýðháskólastofra
unin er nú í undirbúningi, en enn
er ýmislegt óráðið í því sambandi,
og engar teikningar liggja þvi enn
fyrir. Ekki kvað biskup óhugsandl
að í Skálholti yrði einnig stofn-
aður sér'Stakur skóli fyrir guð-
fræðinga síðar meir, þar sem
þeim yrðu kennd ýmis hagnýt
fræði til undirbúnings starfinu
að loknu guðfræðiprófi.
í Skálholti er nú unnið að ýms-
um jarðabótum, en bóndl þar er
Björn Erlendsson, sem býr þar
allstóru myndarbúi. Þá er einnig
verið að undirbúa gerð leikvangs
fyrir þá, sem verða í skólanum
og sumarbúðunum.
Þó að kirkjunni sé að roestu
lokið, er enn eftir að gera altaris-
töfluna. Hefur Nínu Tryggvadðtt*
ur verið falið það verk, og vinn-
ur hún nú að undirbúningi þess,
í sumar eru að jafnaði guðs-
þjónustur í Skálholtskirkiu kl. S
til 4 á hverjum sunnudegi. —-
Margir koma á staðinn til að
skoða kirkjuna, en það eru vinsam-
leg tilmseli til þeirra, sem þa'ð
ætla sér, að koma þangað ekkl
þeirra erinda á messutíma og ekki
heldur of seint að kvöldi.
BÓKARASTAÐA
Staða bókara hér við embættið er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt ll. flokki launakerfis opinberra starfs-
manna. — Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf
sendist mér fyrir 25. þ. m.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
[
Reisa sumarhúð
ir í Skálholti