Alþýðublaðið - 17.07.1964, Síða 9

Alþýðublaðið - 17.07.1964, Síða 9
Draugabærinn Hánefsstaðaeyrar. Húsin gapa tómum gluggatóttum út á fjörðinn og tætturnar gýna við vegfarandanum. ; i Myndin er frá Fjarðaröldunni. — Húsið lengst til hægri heitir Fram nes og stendur á eyrarodda. Þetta er hinn aristókratíski hluti Seyðis- fjarðar. nefnilega ekki liægt að stækka þessa bræðslu nema á langveginn. Því er haldið fram og líklega með fullum rétti, að ríkið hefði átt að byggja nýja bræðslu á Vestdals- eyrinni þar sem er athafnasvæði gott, það bezta við Seyðisfjörð og Vestdalseyrin er ríkisjörð. Allar aðstæður á núverandi stað em eins handabakalegar. og hægt er að hugsa sér. Bræðslan stend- ur undir snarbrattri f jallshlíðinni, svo tæpt, að það hefur orðið að grafa og sprengja veginn inn í hlíðina ofan við-.. Auk þess er bræðslan sjálf ' og mjölhúsið í stórhættu fyrir skriðum úr fjall- inu. Þetta er 5000 mála bræðsla og verður að öllum líkindum ekki stækkuð meir við núverandi að- stæður. Eftir því sem að gamall og gró- inn Seyðfirðingur sagði mér er peningamökkurinn líklega ekki eins bölvaður og Reykvíkingar vilja vera láta. Ilann sagðist nefni lega hafa tekið eftir því að síðan farið var að bræða svona mikið í firðinum hafi gróður í fjöllunum aukizt að mun. Hann sæi greini- lcgan mun á því hvað þau væru grænni og hlýlegri nú en áður. Mökkurinn liggur oft í hlíðunum og í honum er meira og minna af síldarmjöli, sem er hinn ágætasti áburður. Löggæzlumálin eru Seyðfirðing um mikið áhyggjucfni yfir sumar- ið. Dæmin eru ný í þeim efnum. Fyrir nokkrum dögum logaði allt í slagsmálum lieila nótt og langt fram á morgun og lögreglan 'á staðnum fékk við ekert ráðið. Lög- reglan er ekki nema tveir menn og er annar þeirra yfirlögreglu- þjónn. Yfir honum er svo bæjar- fógetinn og fulltrúi hans Fóget- inn er jafnframt sýslumaður í Norður-Múlasýslu. Þessir tveir menn eiga að halda uppi lögum og rétti þegar þúsundir aðkomu- manna gista þennan 800 manna bæ. Áfengisútsalan, er sú eina á Austfjörðum og er lokað um leið og fyrsta skipið kemur inn til að Tunnulöndun á Seyðisfirði. leggjast fyrir í brælu. Þetta kemur samt fyrir lítið og í landlegum er drykkjuskapur jafnan með líflegra móti. Menn hafa ýmsa útvegi þeg- ar þorstinn knýr á. Síldarplönin eru einkum á Ströndinni, Búðareyrinni og und- ir Bjólfinum. Yzt sunnanmegin er Þór. Það plan er í landi bæjarins Hrólfs, sem var óðal Vilhjálms Jónssonar þess er nú býr í Hafn- arfirði og hefur komið þar upp fiskvinnslustöð. Hann átti áður söltunarstöðina Öðin á Raufar- höfn og ítök í stöð á Vopnafirði. Þá og langt fyrir innan, er stöðin Neptún sem stjórnað er at Karli Jónssyni, næst er Ströndin undir stjórn Sveins Guðmundssonar, þá ér Vigfús. Þorsteinsson frá Akur- eyri, Baldur Gi.ðmundsson útgerð armaður er þar fyrir innan á Ströndinni, en Bræðslan er á milli Þá eru Borgir hf. lítil stöð með enn minna athafnasvæði á Búðareyrinni. Undir Bjólfinum eru svo ný stöð sem Borgir eru að byggja, Hafaldan eign Sveins Bene diktssohar og Sunnuver Ingv. Vil- hjálmssonar. Þess má geta að í fvrra var Hafaldan hæsta söltun- arstöðin á landinu. Sunnuver og Ströndin hafa byggt starfsfólki sínu þokkalegar verbúðir. Byggingarframkvæmdir eru í fullum gangi hjá Þór en mér sýndist að ekki væri lúxusnum fyr (Fran.hald á 10. síðu). Höfum opnað verzlun að Laugavegi 38 undir nafninu Elfur Dömudeild Urval af blússum, sloppum brjóstahöldum, undirfatnaði o. m. fl. Gjörið svo vel og Iítið inn. Verziumn ELFUR — Dömudeild Laugavegi 38. Síma- og skrlf- stofustúlka Fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir síma- og skrifstofustúlku. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. ★ Tilboð, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins, ásamt mynd, fyrir sunnudagskvöld merkt: ,,Sími“. Sumarsala Mikill afsláttur af K A P U FVI og DRÖGTUM Allt að 50% afsláttur í clag og á morgun. Kápu- og dömubúðin Laugavegi 46. Þeir sem eiga báta, skúra og annað á lóð vorri í ÖRFIRISEY, eru beðnir að fjarlægja þá nú þegar. Að öðrum kosti verður þeíta flutt á óafgirt svæði á ábyrgð og kostnað eigenda. Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan h.f. Reykjavík. ALÞYÐUBLAÐIÐ — 17. júlí 1964 / ty,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.