Alþýðublaðið - 16.08.1964, Síða 8

Alþýðublaðið - 16.08.1964, Síða 8
 |í|§: lllllll! . / . iiiilll Swí»iSí$í: Íí&ÍÍS:: '::x::::::V ■ a5ur á mér allur frágangur, eða réttara sagt var. Það varð aldrei úr að ég færi til Afríku, sem betur fer iiggur mér við að segja, en eins og þú hlýtur að vita var þetta hundalíf hjá þeim sem þang að voru sendir og sumir komu aldrei aftur. Nú liggur maður hér á bumbunni og lætur sig dreyma horfna daga og þér að segja líður mér prýðilega og alveg sérstaklega í svona góðu veðri eins og hefur verið í dag. Við kveðjum Bedfordinn og heilsum upp á gamlan vörubíl. M VAR STERKARA I OKKUR S1 ÞEIR mega muna sinn fífil fegri, bílarnir sem lúra í kirkju- garðinum uppi við Sorpeyðingar- stöð. Þvílík kynstur af bílum sam ankomin á einum stað. Það liggur við að íslendingar geti farið að kalla sig stórþjóð, þegar tekið er tillit til þess bíla- fjölda sem liggur ónotaður og ó- nothæfur þarna uppfrá. Við ljósmyndarinn brugðum okk ur í „garðinn", til að líta á grip- ina og athuga hvort þarna væri ekki að finna einhvern mann, sem gæti sagt okkur sögu í sambandi við einhvern bílinn, en við vorum svo óheppnir að finna engan mann inn, en satt að segja leituðum við ekki mjög mikið að honum. Þarna kennir margra grasa og fyrirfinnast flestar þær bílategund ir sem til landsins hafa verið fluttar. Þarna eru bílar af öllum stærð- um, allt fró smæstu bílkrílum upp í stóreflis strætisvagna. Flestir eru bílarnir illa farnir, og er tæplega hægt að kalla sum flökin bila, þó það sé gert hér, en það hefur sín ar ástæður. Sjálfsagt er eins ástatt um flesta bílana og mannfólkið, að þeir hafa átt sínar gleðistundir, ekki síður en sorgar, og það liggur við að mað ur vorkenni þeim sumum, hve illa þeir eru farnir og útlitið ámátlegt. Við skulum nú bregða á leik og spjalla við einn gamlan Packard, blámálaðan og furðuvel farinn, þd kominn sé hann til óra sinna. — Og hvaða módel ert þú vin- urinn? — Eg er nú módel 1938, sex manna far og var tryllitæki á yngri árum og reyndar fram eftir öllum aldri. Mér voru gefin mörg hestöflin í vöggugjöf og var óspar að beita þeim væri mér gefið inn. — Mér sýnist þú vera svo til óryðgaður? — Já, mikil ósköp. Það var sko sterkara í okkur stálið í gamla daga, og ekki hægt að miða við það bévað biikk sem nú er notað í bíla. — Manstu eitthvert sérstak at 'Vik frá gömlu, góðu dögunum? Gamli Packardinn hugsar sig um stundarkorn, klórar sér í grind inni og segir svo rámri röddu, eilítið glettinn: — Já, hvort ég man. Það mun hafa verið á stríðsárunum, þá átti mig ágætis maður, sem fór vel með mig, bónaði mig reglulega og sveikst ekki um að smyrja mig. Þessi maður var kvæntur mjög fallegri konu, sem hafði bílpróf og gat því keyrt mig þegar svo bar undir. Konan var í ástandinu eins og sagt er og iðulega ók hún mér hérna upp í Mosfellssveit til að hitta kafteininn sinn. Svo er það i einni af þessum ferðum, sem reyndar varð sú síðasta af því tag inu að við erum að taka beygju inn á Gufnesafieggjarann, en þang að óku þau gjarna til að kyssast og svoleiðis. Þá vildi ekki betur til en svo, að hún fór út af vegin- um og velti mér. Sem betur fer — Þú ert kominn til ára þinna gamli minn? — O sussu já, en ég man satt að segja ekki livort ég er módel 28 eða 29, enda skiptir það ekki svo miklu máli. Packardinn: — Eg var tryllitæki á yngri árum, og fram eftir öllum aldri. meiddust þau hjúin ekkert og svo var mjúkt undir þar sem ég valt, að ekki kom nema smádæld í hurð ina á mér að aftan. Það reyndist erfitt fyrir konugreyið að útskýra ferðina og dældina og hún reyndi ekki ofar að fara í svona ferðir. — Við þökkum Packardinum fyr ir spjallið og heilsum upp á gaml an frambyggðan Bedford. — Sæll vert þú Bedford, hvern ig er heilsan? — Mér þykir þú spyrja undar lega, eða sérðu ekki að ég er allur í tætlum. — Fyrirgefðu vinurinn, en þú átt víst ekki sjö dagana sæla? — Það er háborin skömm að því, hvernig farið er með mann. Eg hefði sko getað enzt miklu lengur, ef einhver hefði haft áhuga fyrir að koma mér í viðgerð. Eins og þú kannske sérð, er ég búinn ti’l á stríðsárunum og meiningin var að senda mig á móti hersveitum Rommels í Afríku og m. a. þess vegna er ég með drif á öllum hjól um. Það er líka sérstaklega vand Renaultinn: — Við vorum upp nefndir, og kallaðir hagamýs. — Þú ert fjári vel bronsaður? — Já, hvað finnst þér, ég ber af þessum hópi sem hér er saman kominn í ytra útliti og ekki þarf að minnast á innrætið. — En hverrar tegundar ertu? — Ja, það er nú svo komið, að ég er búinn að gleyma því, en mig minnir hún héti stúdíbeiker, eða eitthvað svoleiðis, en ég man að við vorum margir bræðurnir. — Þú hlýtur að muna tímana tvenna? — Mér er minnisstætt atvik, sem kom fyrir mig þegar ég var eins eða tveggja ára gamall. Þá var ég keyrður austur á þingvöll. Þeir settu boddí á pallinn á mér og hrúguðu þar inn fólki, kátu og fjörugu fólki. Svo var .ekið aust- ur, en þar var mikil hátíð vegna afmælis alþingis, eins og þú kann- ske veizt, Það er alveg ógleyman- legt. — Þú hefur séð þar margfc frægra manna? — Já, hvort ég sá. Ég man sér staklega eftir Oddi gamla á Skag 3 16. ágúst 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.