Alþýðublaðið - 16.08.1964, Blaðsíða 16
Afkomandi hákarlafor-
manns á tappatogara
Reykjavík, 15. ágúst . GO
AFLASKIPIÐ mikla Sigurður
Bjarnason frá Akureyri er einn
af hinum þekktu „tappatogur*
um“, sem mikið voru umtalaðir
í eina tíð.
Þegar Sigurður Bjarnason
kom til landsins árið 1958, var
ungur skipstjóri á Akraborg-
inni EA, Tryggvi Gunnarsson
að nafni. Hann þótti efnilegur
maður, bæði sem sjómaður og
fiskimaður og var fenginn til
að taka hið nýja skip. Hann lét
fordómana ekki hrína á sér og
gerðist skipstjóri á „tappatog-
ara”. Síðan hefur hann verið
með skipið á allskonar fiskiríi
og sjaldan komið slyppur í
höfn.
Nú á síðustu LÍÚ skýrslu var
-Sigurður Bjarnason 4. skip,
næst á undan þeim fræga Sig-
urpáli með Eggert Gíslason við
asdikkið.
og fór 6 árum seinna í stýri-
mannaskólann, þar sem hann
lauk ágætu prófi á 1 ári. Hann
varð fyrst skipstjóri á m. s.
Stjörnunni RE-3 og var með
liana í 2 ár, þá tók hann við
Akraborginni, sem sumum
finnst einhver persónumesta
Framhald á 13. síðu
iWwmwwwwmMMwvMmwmww»TOWWMWwvw
Tryggvi fæddist að Brettings-
stöðum á Flateyjardal 24. júlí
1927 og er því 37 ára núna.
Hann hóf sjómennsku árið 1944
IH££ÍH1>
Sunnudagur 16. ágúst 1964
TUNNURA
NESKAUPSTAÐ
Neskaupstað, 15. ág. - GÁ - GO
HEILDARSÖLTUN á Neskaupstað
er nú orðin 28100 uppsaltaöar
tunnur. Bræðslan er búin að taka
á móti rúmum 200.000 málum. —
Söltunin skiptist þannig á milli
5 stöðva:
Drífa 7500 tn.
Sæsilfur 7300 tn.
Máni 7100 tn.
Ás 5500 tn.
Nípa 700 tunnur. x
Um 3000 tunnur liafa borizt í dag,
en sæmilegt hefur verið að gera
undanfarið. Nú er komin bræla á
miðunum og ekki lengur veiði-
veður. Bátaroir eru smám saman
að línast inn í var. Má því búast
við landlegu.
IVSeð fullfermi
5 túra í röð
Reykjavík, 15. ágúst GO.
TOGARINN Hvalfell kom í gær
til Reykjavíkur með fullfermi í
5. skipti í röð og er þá búinn að
leggja á land 15-1600 tonn af
fiski síðan liann kom úr flokkun-
arviðgerð í Noregi í vor. Hann
mun nú vera langhæstur af gömlu
togurunum hvað aflamagn snert-
ir.
Skipstjórinn, Guðbjörn Jensson
var ekki með skipið þennan túr,
heldur Jóhann Sigurgeirsson stýri
maður. Túrinn var á A-Grænland
Guðbjörn Jensson
og tók ekki nema 15 daga. Miðin
eru kölluð Jónsmið og voru fræg
uppúr 1950, þegar togararnir mok
uðu þar upp karfanum með ævin
týralegum afköstum. Þessi bleyða
virðist því vera að rakna við aftur.
Miðin liggja suðaustur af Angmas
alik.
Guðbjörn Jensson sagði í ör-
stuttu spjalli við blaðið, að fiski-
ríið hafi gengið mjög vel síðan
skipið kom úr viðgerðinni, Allt
hafi verið í ríijög góðu lagl um
borð og samvinna áhafnar eins og
bezt verður á kosið. Ekki vildi
hann segja hvernig stæði á þess-
ari fiskisæld, en bar við stuðinu
fræga. „Þetta er bara svona“
sagði hann. „Maður setur í þetta
svona öðru livoru og ekkert við
því að gera. Svo getur maður dott
ið niður og stuðið komið yfir ein-
livern annan. Það er bara verst
hvað skipið er lítið. Þessa fjóra
túra sem ég er búinn að koma með
það fullt í sumar, hef ég verið
með 20-30 tonn á dekki, en hánn
tekur ekki nema 250-260 tonn í
lest. Við erum þó líklega hæstir af
gömlu togurunum, en aðstaðan á
þeim er ekki sambærileg við skip
eins og t.d. Sigurð, sem tekur
miklu meira og er fljótari í jför-
um. Þessi árangur okkar en tal-
andi dæmi um hvað gömlu tógar-
arair gætu ef þeir fengju t. d ný
og fullkomin tæki og leitarskrp til
að þjónusta þá á miðunum. „Ég
er á móti því að Ieggja toga^aút-
gerðina niður“, sagði þessi ágæti
aflamaður að lokum.
Telja sér fært að skýra
útdauða norrænna á Grænl.
Eftirfarandi grein um „Þjóð-
hildarkirkju á Grænlandi bir'.ist í
Berlingske Aftenavis, þriðjudag-
inn 4 ágúst sl.
„Kristnitakan, landnám Græn-
lands og fundur Ameríku sézt í
hnotskurn irfnan torfgarðsins.
Lcifar fyrstu grænlenzku kirkj-
unnar í Brattahlíð bera vitni um
þessa miklu sögulegu atburði.
Nú er aftur byrjað að grafa í
Brattahlíð, og af því tilefni hefst
nýtt hefú fornleifafræðiritsins
„Skalk“ á langri grein um „Þjóð-
hildarkirkju“ eftir Knud Krogh og
J. Balslev Jörgensen.
— Sá uppgröftur, sem nú er að
hefjast á ný, krefst mjög mikillar
aðgæzlu og nákvæmni, segja grein
arhöfundar. Má ekkert gera, sem
■spillt getur fyrir því, að jafnmikil
vitneska fáist mcð hjálp þessara
fornminja og unnt er. Hinn ofboðs
legi trúboðsákafi Ölafs Tryggva-
sonar skildi ekki eftir sig djúp
spor, og í Noregi hafa ekki fund-
izt leifar neinna kirkna, sem hægt
er að eigna honum. En yzt í Norð
ur-Atlantshafi er lágur hóll, sem
minnir á konunginn, sem sagt var
um, að hefði knúið Norðmenn til
kristni með hervaldi.
Framhald á 13 siðu
Hamborgarhöfn sendir j
Reykjavíkurhöfn gjöf
Reykjavík 15. ágúst — KG.
Á ÞESSU ÁRI er höfnin í
Hamborg 775 ára og í því til-
hefni liefur liafnarstjórnin þar
sent ýmsum höfnum víða um
lieim skjöld í tilefni afmælisins.
Meðal þeirra hafna, sem
fengu skjöld sendan var
Reykjavíkurhöfn og var hann
afhentur um borð í Trölláfossi
í dag.
Hafði hafnarstjórnin í Ham-
borg falið Guðráði Sigurðssyni,
skipstjóra á Tröllafossi að
flytja skjöldinn heim og af-
henda hann, en Guðráður hefur
starfað. hjá Eimskipafélaginu
síðan 1930 og fram að stríðs-
byrjun sigldi hann til Hamborg
ar í þriggja vikna fresti.
Hafnarstjóri Reykjavíkur-
hafnar Valgeir Björnsson
veitti gjöfinni móttöku.
ww%wwww%wwwwwwwvwwwwwwww