Alþýðublaðið - 16.08.1964, Qupperneq 11
Lið KR gegn Liver-
pool n.k. mánudag
Meistaraflokkur KR 1964:
Efri röð frá vinstri: Heimir
Guðjónsson, Ársæll Kjartans
son, Sveinn Jónsson, Bjarni
Felixson. Ellert Schram,
Hörður Felixson, Þórðui-
Jónsson, Þorgeir Guðmunds
son, Siffurþór Jakobsson.
Neðri röð frá vinstri: Ósk-
ar Sigurðsson, Kristinn Jóns
son, Jón Sigurðsson, Hörður
Markan, Hreiðar Ársælsson,
Gunnar Guðmannsson, Gunn
ar Felixson.
Jón Sigurðsson, innherji, 23 ára
gamall. Hóf að leika 1958, samtals
31 leikur. Húsgagnasmiður.
Gunnar Felixsson, miðfram
herji, 24 ára gamall. Hóf að leika
1959, samtals 76 leiki. Hefur leik
ið 4 landsleiki. Fulltrúi.
Ellert Schram, innherji, 24 ára
gamall. Hóf leik með m.flokki
1957, samtals 141 leikur. 9 sinn-
um leikið í landsliði og einu sinni
í B landsliði. Laganemi.
Theódór Guðmundsson, útherji,
20 ára að aldri. Hóf að leika með
m.flokki 1962 samtals 14 leikir.
Iðnnemi.
Sigurþór Jakobsson, útherji, 23
ára gamall. Lék fyrst með m.flokki
1962, samtals 48 leikir með m.
flokki. 4 landsleikir. Prentari.
Meistaramótið
kl. 3 í dag
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum heldur áfram á Laugar-
dálsvellinum í dag kl. 3. Keppt
verður í eftirtöldum greinum: 100
m. hlaupi, stangarstökki, 110 m.
grindahlaupi, kringlukasti, þrí-
stökki, sleggjukasti, 400 m. hlaupi,
ög 4x100 m. boðhlaupi. Auk þess
verður keppt í 80 m. grindahlaupi,
og fimmtarþraut kvenna.
Ekki er minnsti vafi á þvi, að um
spennandi keppni verður að ræða
í flestum greinum, en meistari i
hverri grein iilýtur bikar til varð-
veizlu í eitt ár.
Tekst Þorvaldi Benediktssyni aiS
' sigra Karl Stefánsson í þrístökki?
Lesið AlþýðublaÖið
LIÐ KR er sennilega eina áhuga
mannaliðið, sem þátt tekur í Ev-
rópubikarkeppninni. Ýms beztu
„áhugamannaiið“ Evrópu eru með,
en allir vita að liðin fá greitt fyrir
íþrótt sína annað hvort beint eða
óbeint.
Eftirtaldir knattspyrnumenn
skipa lið KR:
Heimir Guðjóhsson, markvörð
ur, 27 ára að aldri. Hóf að leika
með m.flokki 1955, samtals 140
leikir. Leikið 5 landsleiki. Vélvirki
að atvinnu.
Gísli Þorkelsson, markvörður,
22 ára gamall. Hóf að leika með
m.flokki 1959, samtals 42 leikir.
Einn leikur með B landsliði og
núverandi varamarkvörður í A
landsliði. Bifreiðastjóri að at-
vinnu.
Hreiðar Ársælsson, bakvörður,
34 ára gamall. Lék fyrst með
m.flokki 1952, samtals leikið 202
leiki, 8 landsleiki og einn B
landsleik. Prentari.
Ársæll Kjartansson, bakvörður,
19 ára að aldri. Lék fyrst með
m.flokki 1963, hefur leikið sam-
tals 4 leiki með flokknum. Bif
reiðastjóri.
Bjarni Felixson, bakvörður, 27
ára að aldri. Lék fyrst með m.
flokki 1956, samtals 158 leiki. 5
landsleikir. Fulltrúí.
Kristinn Jónsson, bakvörður,
23 ára. Hóf leik með m.flokki
1959 samtals leikið 25 leiki.
Prentari.
Þórður Jónsson, framvörður,
19 ára. Lék fyrst með meistara-
flokki 1963, samtals 29 lerki í m.
flokki. Einn B landsleikur og vara
maður í A landsliðinu í ár.
Menntaskólanemi.
Hörður Felixson, miðframvörð-
ur, 32 ára að aldri. Lék fyrst með
m.flokki 1949, samtals 238 leikir.
Hefur leikið 11 landsleiki. Skrif-
stofustjóri.
Þorgeir Guðmundsson, miðfram-
vörður, 20 ára gamall. Hóf að leika
með m.flokki í vor, samtals 14
leikir. Iðnnemi.
Sveinn Jónsson, framvörður, 26
ára gamall. Lék fyrst í m.flokki
1956, samtals 162 leikir. Hefur
leikið 12 sinnum í landsliði. End-
urskoðandi.
Gunnar Guðmannsson útherji,
34 ára gamall, hóf leik með m.
flokki 1947, leikið samtals 280
leiki. Leikjahæsti maður félags-
ins frá upphafi. 9 landsleikir.
Húsvörður.
Hörður Markan, útherji, 19. ára
gamall. Hóf að leika með m.fl. í
sumar, samtals 3 leiki. Iðnnemi.
frjálsíþróttamenn
og sundmenn
til Tokyo?
Valbjörn Þorlaksson i stangarstökki.
í DAG, 16. ágúst, eru síðustu for-
vöð að tilkynna þátttöku í Olymp-
íuleikunum í Tokyo. Ekki hefur
enn heyrzt ákveðið í hvaða grein-
Iim ísland tekur þátt, en trúlega
sendum við bæði sundmenn og
frjálsíþróttamenn til Tokyo.
ALÞÝÐUBLAÐIO - 16. ágúst 1964 .