Alþýðublaðið - 10.09.1964, Qupperneq 3
Goldwater boðar
„styrka stjórn“
Seattle, 10. sept. (NTB-AFP).
Forsetaefni Repúblikanaflokks-
ins, Barry Goldwater öldunga-
deildarmaður, hvatti í kvöld í Se-
attle í fyrstu ræðu sinni um ut-
anríkismál síóan hann hóf kosn-
ingabaráttu sína, bandarísku
þjóðina til að afneita þeirn mönn-
um, sem töluðu um frið, — en
Skorti styrk til að varðveita hann.
Hann hvatti bandaríska kjós-
endur til að kjósa menn, sem
I skildu, að aðeins öflug þjóð gæti
* varðveitt friðinn.
Goldwater öldungadeildarmað-
; ur, sem hefur liafið ferðalag um
vesturströndina, drap á .öll helztu
Utanríkismál til að sýna hvernig
núverandi stjórn hefur verið und-
anlátssöm við kommúnista hvar-
Vetna í heiminum. Hánn svaraði
þeim, sem gagnrýna hann fyrir
að vilja koma af stað kjarnorku-
styrjöld ' með fjandsamlegri af-
stöðu gagnvart kommúnistum, á
þessa leið:
— Veikleiki og óákveðni freist-
ar til styrjaldar, kemur af stað
styrjöld og hefur alltaf leitt til
styrjaldar.
Um Kúbu-deiluna sagði Barry
Goldwater, að einræðisstjórn eyj-
unnar hefði enn völdin og nú-
ríkjandi stjórn virtist fagna sér-
hverri átyllu til að umbera hana.
Bandaríkin hafa aldrei fengið
fram heimild til eftirlits á Kúbu
— en það var yfirlýst meginmark-
mið í Kúbudeilunni — og engár
óyggjandi sannanir liggja fyrir
um það, að sovézku eldflaugarn-
ar hafi verið fluttar burtu.
Um þróun mála í Suður-Vietnam
sagði hann, að jafnframt því sem
bandarískir borgarar týndu lífi dag
lega í baráttunni í Suður-Vietnam
neitaði bandaríska stjórnin að játa
að Bandaríkin ættu í styrjöld við
kommúnista þar. Goldwater sagði
að stefna Johnsons forseta í S.-
Vietnam einkenndist af glimdroða
og dugleysi, en ekki skýrði hann
frá eigin skoðunum um, hvemig
stefnan í málum Suður-Vietnam
skuli vera.
Goldwater sagði, að Laos hefði
verið ofurseld stjórn sem komm-
únistar réðu mestu í. Múrinn í
Berlín væri frelsinu enn ögrun, en
Framh. á bls. 4
KHANH GERIR
TILSLAKANIR
Saigon, 9. september.
(NTB-Reuter).
Forsætisráðherra Suður-Viet-
nam, Nguyen Khanh hershöfðingi
tók í dag við embætti landvarna-
ráðherra afnain ritskoðun blaða
og sleppti úr haldi fimm hers-
höfðingjum, sem vorn handteknir
í sambandi við byltingu Khanhs
í janúar sl.
Leiðtogi herforingjastjórnar-
innar fram að byltingunni í janú-
ar var Duong Van Minh hershöfð
ingi, sem síðan neitaði að styðja
JKhanh hershöfðingja unz hers-
höfðingjunum fimm var sleppt úr
haldi, en þeir voru helztu sam-
starfsmenn Minhs hershöfðingja.
í dag var Minh hershöfðingi
skipaður forseti þriggja manna
jWWWWMMiMWWMWWim
Argentínuíáni
settur upp á
Falklands-
eyjum
New York, 9. sept.
(NTB-AFP).
Fulltrúi Breta hjá SÞ, Ce-
ril King, sagði á fundi í ný-
lendumálanefnd Alisherjar-
þingsins í dag, að argentínsk
flugvél hefði lent ólöglega
á Falklandseyjum og sett
upp argentínskan fána þar
áður en flugmaðurinn hélt
aftur á brott eftir að hafa af
hent eina manninum, sem
var í grendinni, bréf nokk-
urt.
Framli. á bls. 1?
MMMWWIWWWWWW
MIMMMMMMMMMMMMMMV
MYNDIN sýnir hvar verið er
að koma fyrir blómum í Kon-
unglega leikhúsinu, þar sem
haldin var viðhafnarsýning
til heiðurs Önnu-Maríu og
Konstantín á þriðjudags-
kvöld. Alls prýddu 100 þús-
und blóm leikhúsið. — Sjá
nánar í frétt.
ráðsins, sem nú fer með .völdin
í Suður-Vietnam og á nú einnig
að taka að sér viss störf, sem eru
í verkahring ríkisleiðtoga. Þriðji
meðlimur ráðsins er Tran Thien
Khien hershöfðingi.
Á blaðamannafundi í dag
skýrðu hinir þrír'meðlimir ráðs-
ins frá því, hvernig smám saman
yrðu undirbúnar lýðræðislegar
kosningar fyrir nóvember á næsta
ári. Minh hershöfðingja hefur ver
ið falið að kalla saman fulltrúa-
ráð fyrir lok september.
Þjóðarráð þetta á að koma á
fót lýðræðislegum stofnunum og
semja bráðabirgðastjórnarskrá.
Greinilegt var, að Minh hershöfð-
ingi var ánægður með þróunina,
einkum vegna þess, að nánustu
samstarfsmönnum hans hafði ver-
ið sleppt úr haldi.
Stjórnmálamenn í Saigon segja
að ákvarðanir Khanhs ættu að
treysta hann í sessi. Með afnámi
ritskoðunar hafa stúdentar og
búddatrúarmenn verið róaðir.
Opinberar lieimildir í Washing-
ton herma, að Johnson forseti hafi
beðið helztu ráðunauta sína að
hraða starfinu að því að skilgreina
ástandið í Suður-Vietnam og að-
gerðir þær, sem nauðsynlegar eru
til að herða á baráttunni gegn
Vietcong-hersveitum ■ kommún-
ista. Opinberar hein ildtr neita
að segja nokkuð um aðgerðir
þær, sem hugsaniogt ar að grip-
ið verði til í Suður-Vietram.
Erhard sætir
harbri árás
Miinchen, 9. sept. (NTB-R.).
Deild Kristilega demókrata-
flokksins í Bæjaralandi gagn-
rýndi harðlega í dag Ludwig Er-
hard kanzlara fyrir fyrirætlanir
hans um að hltta Krústjov for-
sætisráðherra. Blaðið „Bayern
Kurier’” segir, að bæði Sovétrík-
In og nokkrir vestrænir banda-
menn muni notfæra heimsókn
Krústjovs til Vestur-Þýzkalands
sér til framdráttar.
Blaðið er málgagn Franz-Josef
Strauss, fyrrum landvarnarráð-
herra, sem hefur gagnrýnt stefnu
Erhards harðlega að undanförnu.
Blaðið segir, að Bandaríkiri,
Bretland, ítalia og Sovétríkin
muni færa sér heimsóknina í nyt.
Framh. á 13. siðu.
„Dóra“ herjar nú
á Flórfda-skaga
Lesið Alþýðublaðið
Áskriffasíminn er 14900
Kennedy-höfða, 9. sept.
(NTB-Reuter).
FELLIBYLURINN „Dóra“ geisar
nú af fullum krafti á 480 km
breiðu svæði á Flórídaskaga I
Bandaríkjunum, og er óttazt að
hann valdi meira tjóni en felli-
bylurinn „CIeo“, sem geisaði á
Karíbaliafi og Flórída fyrir hálf-
um mánuði.
Fellibylurinp geisar með allt áð
200 km hraða á klukkustund og er
óttazt að styrkur lians aukist þeg-
ar hann kemur inn yfir strönd-
ina. Fellibylurinn herjaði fyrst á
bæinn Jacksonvllle, sem sjaldan
eða aldrei hefur orðið fyrir barð-
inu á fellibyljum áður.
Búizt er við að Kennedy-höfði
sleppi við tjón af völdum „Dóru“,
en eldflaugar hafa verið fjarlægð-
ar af skotpöllum þar og í öðrum
herstöðvum í Flórída. Hundruð-
um skipa og flugvéla hefur verið
skipað að halda burtu af hættu-
svæðinu. Óttazt er, að allt að
þriggja metra há flóðbylgja skelli
á ströndina.
Gripið hefur verið til ýmissa
varúðarráðstafana. Komið hefur
verið á fót hjálparstöðvum, sem
geta tekið á móti allt að 200.000
manns. Rauði krossinn gerði ráð
fyrir í dag, að 100 þúsund manns
hefðu leitað til þessara stöðva.
Anne-Marie
kvedur Höfn
Kaupmannahöfn, 9. sept.
(NTB-Ritzau).
Konstantín konungur og
Anna María prinsessa óku í
dag I opnum vagnl um götur
Kaupmannaliafnar. Tugir
þúsunda Kaupmannahafnar-
búa sióðu í hellirigningu við
leiðina sem ekið var um og
kvöddu hina tilvonandi
drottningu Grikklands. í
fylgd með vagninum var
riddaralrfvörður.
Leiðin lá frá Amalienborg
um „Ströget" til ráðhússins,
þar sem borgarstjórnin tók
á mó'.i konunginum og prins
essunni. Húrrahróp fylgdu
ungu hjónunum alla leiðina.
Fyrir framan ráðhúsið
voru nokkrar mótmælaað-
gerðir, en lögreglan bældi
þær þegar niður.
Forseti borgarstjórnar af-
henti prinsessunni 25.000
(danskar kr.) til sérstaks
sijóðs, sem nota á til mann-
úðar- og menningarmála í
Grikklandi.
Prinsessan sagði m. a., að
hún væri snortin og inni-
lega þakldát og að hún
mundi aldrei gleyma þeirri
hlýju, sem hún hefði orðið
aðnjótandi, allt frá bernsku.
Þeim var einnig gefinn
flygill. Konstantín konung-
ur sagði, að þetta fagra hljóð
færi mundi alltaf minna
hann og Önnu Maríu á fall-
egt land, yndislega þjóð og
mjög, mjög vingjarnlega og
skilningsríka fjölskyldu.
MMMtMMMMMMMMtMMW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. sept. 1964 3