Alþýðublaðið - 20.09.1964, Síða 6
Rauða auðnin
þóifi bezt...
FYRSTA litmynd ítalans Michel-
angelo Antonioni, „Rauða eyði-
mörkin“, hlaut fyrstu verðlaun á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
og hlaut Antonioni þar með æðstu
orðu dómnefndar, — „hið gullna
Ijón heilags Markúsar". Kvik-
myndahátíðin stóð í rúman hálfan
mánuð.
Verðlaun fyrir bezt leikna kven
hlutverkið hlaut hin sænska
Harriet Anderson fyrir leik sinn
í myndinni „Að elska“, — en eig-
inmaður leikkonunnar, Jorn Dönn-
er, stjórnar þeirri mynd. Verð-
laun fyrir bezt leikna karlhlut-
verkið hlaut Bretinn Tom Court-
ney fyrir leik sinn í kvikmynd
Josephs Loseys, — „Kóngur og
fósturjörð“.
Frakkinn Alain Jessua hlaut
verðlaun fyrir beztu mynd byrj-
anda, „Bakhlið lífsins", en ítal-
inn Pier Paolo Pasclini hlaut
aukaverðlaun fyrir kvikmynd sína
„Mattheusar-guðspjall" og Rússinn
Gregorij Kozintsev hlaut líka
aukaverðlaun fyrir „Hamlet“ mynd
sína.
BAK VIÐ TJOLDIN
KEISARAYNJA er farin að
H vinna fyrir sér. Soraya, fyrrum
keirafrú í íran, er tekin til við
kvikmyndaleik og verður fyrsta
verkefnið aðalhlutverk í kvik-
myndinni Þrjú andlit konunn-
ar, sem ítalinn Dino De Laur-
entiis stjórnar. Prinsessan, —
en það er núverandi titill Sor-
ayu, verður að vinna daginn út
Önnur er hennar ævi nú eða
þegar hún var keisaradrottning
í Persíu.
og inn, og ferðast mikið, —
því að í sömu vikunni eru
myndatökur ýmist í Aþenu eða
Feneyjum,
A ýmsu hefur oitið
í forsetakosningum
★ VINIRNIR hittust. Annar spurði
oe sagði sem svo:
— Er það satt, sem ég hef heyrt,
að konan þín ráði lögrum og lofum
heima hjá þér?
— Nei, það eru ýkjur. Ég læt
hana ráska með vinnukonuna, börn
in og hundinn, — en ég er ein-
ráður yfir gullfiskinum.
★ DR. GARRY Kenyon kom fyrir
dómstólana, — ákærður fyrir að
hafa gengið yfir Hollywood Boule-
vard á rauðu ljósi.
Hann sneri sér að dómaranum:
— Ég skora á hvern sem er að
ganga yfir Hollywood Boulevard á
rauðu ljósi!
Dómarinn, Kenneth White, tók
hann á orðinu og ók beinustu leið
að gatnamótunum, — reyndi þris-
var að komast yfir á rauðu ljósi,
— gafst upp, snéri aftur til réttar
salarins:
— Þér hafið rétt fyrir yður, dr.
Kenyon, sagði hann. Það er ógjörn
ingur. — Þér eruð sýkn saka.
FORSETAKOSNINGAR standa fyr
ir dyrum í Bandaríkjunum. Útlit
er fyrir, að þessar kosningar og
úrslit þeirra verði það, sem heim
urinn beinir mestri athygli að í
haust. Það fer í taugarnar á Banda
ríkjamönnum, þegar erlendir
stjómmálamenn láta í Ijósi skoð-
anir sínar á frambjóðendunum
vestra, —j- en engum fær þó dul-
izt, að það kemur öllum þjóðum
heims við, hverjir eru við stjórn-
völinn — bæði eystra og vestra.
Ekki hefur það dregið úr spenn-
unni, að komið er með kosninga-
fundina inn í stofu til þeirra, sem
hafa sjónvarp, — þannig að unnt
er að fylgjast með öllu því, sem
fram fer, þótt þúsundir mílna séu
á milli.
Nú hafa bæði republikanar og
demokratar ákveðið frambjóðend-
ur flokkanna, og kosningabaráttan
er hafin. En slíkar átnefteheg&r
hafa síður en svo tíðkast frá önd-
verðu í Bandaríkjunum. Fyrstur
forseti Bandaríkjanna var George
árið 1789.
Framh. á bls. 10.
I
★ GUTENRERG fann upp
prenilistina árið 1450. Ilann
taldi heppilegast að Iáta aug
un renna frá vinstri til hægri
eftir línunum á blaðsíðunni.
Nú vill annar Þjóðverji
betrumbæta verk Guten-
bergs, — og leggur til, að
bækur verði prentaðar á
þann hátt, að Iesið sé neðan
frá og uppeftir. — Þeir, sem
geta stautað á þýzka tungu,
— sjá þegar, hvað hér er á
ferðinni. -
6 20. sept. 1964 — ALÞYÐUBLAÐIÐ