Alþýðublaðið - 20.09.1964, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 20.09.1964, Blaðsíða 7
 SkilEiingur og kynni eru traust undirstaða TJTGEFANDI: SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA k Dagana 1.-10. júlí í sumar var haldið í Strassburg þriðja nám- skeiðið eða ráðstefnan fyrir ungt fólk um ýmis Evrópumálefni á veg *tm CENYC (Couneil of European National Youth Committees), sem er heildarsamband æskulýðssam- banda í aðildarríkjum Evrópuráðs ins, enda má CENYC vissulega teljast ein af stofnunum þess. Æskulýðssamband íslands er aðili að CENYC, en SUJ er sem kunn- Ugt er meðlimur ÆSÍ. Á námskeið inu, sem haldið var í Strassburg í júlí, var Hjörtur Pálsson, blaða- ■ maður, eini íslenzki þátttakandinn og hefur því æskulýðssíðan beðið hann að segja lesendum frá því í stuttu máli. — Þessi ráðstefna í Strassburg var sú þriðja í röðinni, en til stóð, að sú fjórða yrði haldin í haust. Fjallaði hún í stórum dráttum um samstarf Evrópuþjóða og þá fyrst og fremst þeirra, sem aðild eiga að Evrópuráðinu, vandamál þeirra á ýmsum sviðum og fleira í því sambandi. Var ráðstefnan undir- búin af CENYC í samvinnu við upplýsingaþjónustu sexveldanna og haldin í aðalstöðvum Evrópu- ráðsins í Strassburg. CENYS hef- ur lengi haft hug á að gefa ungu fólki úr aðildarríkjum sínum tæki færi til að kynnast og skiptast á skoðunum og fræðast um starf- •semi og starfssvið Evrópuráðsins. ekki sízt í þeim tilgangi, að vilji og viðhorf yngri kynslóðarinnar komi sem skýrast fram á hverjum tíma og geti á þann hátt orðið, virkara afl innan ráðsins og í sam starfi þjóðanna, sem hlut eiga að máli. í þessu skyni hefur CENYC nú komið á fót sérstakri deild eða stofnun, sem kalla mætti Æsku- lýðsmiðstöð Evrópu, og var það fyrst og fremst hún, sem hafði veg og vanda af ráðstefnunni í sum- ar, en framkvæmdastjóri hennar er nú að kanna vilja þeirra, sem , hana sóttu, um framtíðarverkefni og skipulag stofnunarinnar, sem heita má ný af nálinni, og var þar nokkuð um það rætt á hvað leggja bæri áherzlu, og komu þá vitan- lega fram ýmis sjónarmið. En hvað sem ofan á verður, þykir mér ekki ósennilegt, að ef haldin verða lengri og margþættari kynningar námskeið, þegar stofnunin tekur til starfa fyrir alvöru, verði þeir, rem þau sækja, manna hæfastir tll að gegna ýmsum störfum á veg um Evrópuráðsins eða hliðstæðra stofnana, ekki sízt ef menntun þéirra og áhugi á ýmiss konar al- þjóðasamstarfi, sem sífellt færist í vöxt, leggjast þar á eitt. — — Hve margir þátttakendur sóttu ráðstefnuna? — — Mig minnir, að þeir væru 29, flestir milli tvítugs og þrítugs. Yoru þeir frá ýmsum æskulýðs- félögum og samböndum, hver í sínu heimalandi og úr ýmsum starfsgreinum. Að því leyti var hópurinn sundurleitur, en sam- vinna öll og samkomulag með á- gætum. Aðildarríki Evrópuráðsins eru nú 17, en 12 þeirra áttu einn eða fleiri fulltrúa hvert á ráðstcín unni, og voru þeir frá Bret- landi, Tyrklandi, Sviss, Svíþjóð, Nöregi, Holllandi íslahdi Vestur- Þýzkaiandi, Frakklandi, Kýpur og Belgíu. — — Hvernig fór . ráðstefnan fram? - Á hverjum degi voru ha'.dn- ir fyrirlestrar, bæði fyrir og eftir hádegi, og íjölluðu þeir um eitt- hvert ákveðið málefni, sem var á dagskrá. Voru þeir margir hinir fróðlegustu, enda fluttu þá valdir menn, hver á sínu sviði, sem höfðu á þeim sérþekkingu og starfa að þeim málum, sem um var rætt, margir á vegum Evrópuráðsins og stofnana þess, en einnig höfðu ver ið fengnir fyrirlesarar frá öðrum stofnunum, svo sem ÓECD og Sameinuðu þjóðunum. - Meðal þeira mála, sem fyrirlestrar voru fluttir um á ráðstefnunni,.má nefna sögu evrópskrar samvinnu og til- raunar til sameiningar Evrópu og þeiiTa mála, sem fyrirlestrar voru eru starfandi, viðhorf Evrópuráðs ins til þróunar evrópskrar sam- vinnu, Efnahagsbandalagið og EFTA, Evrópu og þróunarlöndin og efnahagsaðstoð og tækniaðstoð Framh. á bls. 10 >mm%mmmm»mmmmmmmm%vmmmmmmmwmmmv»mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Sven Hulterström kemur í boði SUJ 19. sept. — SG. EINS og mörgum ungum jafnaðarmönnum er kunnugt, hefur nú lengi vel staðið til að halda hér á landi fund í stjórn Æskulýðssambands jafn aðarmanna á Norðurlöndum (Nordens Socialdemokratiskc Ungdom), cn Samband ungra jafnaðarmanna er aðili að því, sem kunnugt er. Ekki hefur bó orðið af því enn að þessi fund- ur verði haldinn hér og er á- stæðan kosningar þær, er und- anfarið hafa farið fram í Skandinavíu og fara þar enn fram. Vegna þeirra hafa stjórn- armenn í æskulýðssambandinu orðið að halda sig heima við, enda hafa sumir þeirra verið mjög virkir í kosningabarátt- unni, t. d. formaður sambands- ins, Ingvar Carlsson, hiruí sænski, sem nú er í einu af efstu sætum á þinglista Alþýðú flokksins í Stokkhólmi. Sambandi ungra jafnaðar- manna hefur lengi verið það hið mesta áhugamál, að stjórn- arfundurinn yrði haldinn hór. Stóðu lengi vel vonir til að hægt yrði að halda hann í sam- bandi við þing SUJ á Akureyri, sem þar verður háð á næstunni. Þegar hins vegar útséð varð um að það yrði ekki hægt, brá stjórn SUJ á það ráð, að bjóða til þingsins á sinn kostnað, á- heyrnarfulltrúa frá stjórn æskulýðssambandsins (NSU). Hefur þetta boð nú verið þegið og ákveðið að Sven Hulter- ström komi. Sven er einn af íulltrúum Svía í stjórn æsku- lýðssambandsins og núverandi ritari þess. Hann hefur um langt skeið átt sæti í stjórn Sambands ungra jafnaðar- manna í Svíþjóð. Mun hann koma til landsins með ílugvél frá Flugfélagi íslands hinn 1. október og síðan fljúga með okkúr til Akureyrar. Þetta er í fyrsta sinn séni fulltrúi frá erlendúm bræðrasamtökum úngra jafnaðarmanna situr þing SUJ og einnig í fyrsta sinn sem SUJ býður hingað á sinn kostn- að erlendum flokksbróður. Er hann því sannariega velkom- inn. DAGSINS Fræðslumálin eru hróplega vanrækt FYRIR nokkru síðan var hér á Æskulýðssíðu birt viðtal við Kristján Þorgeirsson, ritara Bifreiðastjórafélagsins Frama, en hann var þá nýkominn að utan. Hafði honum og Karli Steinari Guðnasyni, ritara Verkalýðs- og Sjómannafélags Keflavíkur verið boðið af Al- þýðusambandi Vestur-Þýzka- lands til ráðstefnu um málefni ungra launþega. Meðal þess, er fram kom í viðtalinu, var frásögn af fræðslustarfsemi þeirri, sem rekin er á vegum verkalýðssamtakanna í Vestur- Þýzkalandi. Frásögn þeirra Kristjáns híýtúr að vekja til umhugsun- ar um það, hvernig þessum málum er háttað hér á landi. Víst hafa verkalýðssamtökin hér á landi gert sér grein fyrir nauðsyn fræðslustarfseminnar, en þar við hefur jafnan verið látið sitja. Hafa ólíkar stjórn- málaskoðanir vafalaust valdið mestu, en einhvern veginn finnst manni að launþegasam- tökin öll, eða verkalýðssamtök- in ein sér, ættu að geta kornið sér upp launþegaskóla, er væri að mestu eða öllu kostaður af ríkisfé, þegar bæði einstakling- ur hefur rekið slíkan félags- málaskóla við ágætan orðstí hér i bæ undanfarið, án þess að fá ámæli af því, að dreginn væri þar taumur ákveðins stjórnmálaflokks — og þýzku verkalýðssamtökin, m. a. reka slíkan skóla, og það fleiri en einn, og fer því þó fjarri, að jafnaðarmenn einir myndi þar- lenda verkalýðshreyfingu. — í því landi og reyndar öðrum, þar sem jafnaðarmenn eru á- hrifamiklir eða ráðandi flokk- ur, gefa verkalýðssamtökin unga fólkinu mikinn gaum, — styrkja riflega þau samtök þess, sem eru þeim vinveitt og reyna á allan annan hátt að gera sér það sem vinveittast. Þar skilja menn líka auðsjá- anlega, að unga fólkið tekur við af sér eldri og þar er því leit- azt við að fá unga fólkið til starfa í verkalýðssamtökunum, og ekki látið við það sitja, heldur er því veitt hin bezta menntun til þess í verkalýðs- skólunum. Er þetta í góðu'sam- ræmi við rikjandi viðhorf hins opinbera í Véstur-Þýzkalandi gagnvart unga fólkinu og sam tökum þess. Þegar maður virðir fyrir sér hvernig Þjóðverjar standa að þessum málum og virðir um leið fyrir sér hvernig staðið er. að þeim hér heima, getur ekki Framhald á síðu 10. %mm%%%%%%%%%%%m%%%%%%%%%%%%%%m%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%* AD ÞESSU VINNUM VIÐ 19. sept. SG. Ilagana 13.-14. september kom frakvæmdanefnd Al— þjóðasambands ungra jafnaðar- manna saman í Berlín. Nefnd- ina skipa einn fulltrúi frá hverju aðildarsambandi. SUJ hefur aldrei átt þess kost að senda þangað fulltrúa fyrr en nú. Fulltrúi sambandsins á fundinum var Ólafur Stef- ánsson laganemi, og er hann nýfarinn utan þessara erinda, meðal annarra. Væntanlega verður birt hér viðtal við hann um fundinn, er hann kemur heim. Sumarstarf hefur verið nokk- ■ urt hjá ungum jafnaðarmönn- um i sumar. Hefur einkum ver- ið um ferðalög að ræða eins og eðlilegt er. Eitt fjölmennasta ferðalagið hefur sennilega Fé- lag ungra jafnaðarmanna á Húsavík farið. Efndi það um mitt sumar til ferðalags inn í Herðubreið'arlindir. Förin var öll hin ánægjulegasta og var f jölmenn. Þá efndi Félag ungra jafnaðarmanna í Vestmanna- eyjum nýlega til höpferðar til Reykjavíkur, m. a. vegna knatt- spyrnukappleiks er hér var há‘ð- ur — og var Eyjamönnum á- hugamál. Ungir jafnaðarmenn hafa fullan hug á að efla sum- arstarf sitt m. a. með utaji- landsferðum. (%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%wmm%>%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%m ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 20. sept. 1964 7 ■r * "f ’>’*>■■■■ fi ; i ■ i "<f 'i ■'1 jM'" m

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.