Alþýðublaðið - 20.09.1964, Side 9
í hgllisopið til að gá að Sýpu
sinná. . . .
Brúsinn var í léttara lagi, en
það gutlaði i honum. Það hlaut
að vera mjólkin, en ekki flögraði
að stráknum að hún væri orðin
súr eftir allan þennan tíma.
og grandskoðaði' fjallshlíðarnar
öllu megin. Engan helli var að
sjá. Hæst uppi lágu skaflar í
hvilftum og undan þeim runnu
mjóslegnir lajldr í kristalstæra
b'ergvatnsána. Lágir malarbakk-
aði áin þeim smám saman fram og
safnaði þeim í hrannir meðfram
farveginum. Nú rann hún rólyndis
lega um flatneskjuna og bakkam-
ir voru hennar höfuðskraut.
Strákurinn senti brúsann frá sér
nokkurn vegin miðsvæðis, þar sem
hann gat verið viss um að Brúsa-
skeggur sæi hann og svo fór hann
að kasta steinum út í ána og vaða
sér til skemmtunar. Sólin glamp-
aði á vatnsfletinum og hann fékk
ofbirtu í augun og svo fann hann
marglit og undarleg blóm, sem
þrengdu sér upp á milli steinanna.
Hann steingleymdi búksorgum og
mjólkurbágindum Brúsaskeggs.
Tímaskyn svona stráka er ekki
mjög áreiðanlegt og hvað hann
sullaði lengi þarna við ána upp-
lýsist sennilega aldrei, en um það
bil sem sólin var að lækka flugið.
yfir fjöllunum og skýjahnoðrar að
mynda^t yfir fjarðarmynninu, varð
honum litið upp eftir fjallinu,
þangað sem blakkir skaflarnir
lágu í hvilftunum og nærðu lækina.
og liann sá ekki betur en stór
hlemmur lyfti sér upp af hátindin
um og viti menn: Brúaskeggur rak
doðinn hausinn upp um fjallið og
litaðist um.
Strákurnn starði stundarkorn
höggdofa á þessa sýn. Hann stóð
eins og lamaður með skóna og ,
sokkana í annarri hendinni og hon
um var undarlega kalt á bakinu.
Svo tók hann á rás, fyrst í blóð-
spreng með andköfum, því hann
bjóst við að heyra skruðninganá
af eftirför risans á hverju augna-
bliki, en þegar hann var kominn
langleiðina heim i svarta skúrinn,
hægði hann á sprettnum og á-
ræddi að líta aftur. Lækimir
skoppuðu niður stallana í fjallinu
og sólin baðaði sig í ánni sem fyrr.
Tröllið sást hvergi, en yfir fjall-
inu sveif léttur skýjaflóki.
— Hvernig eru tröllin í Iaginu |
amma?, spurði stráksi þegar hann
kom inn móður og másandi.
— Ég hef svo oft sagt þér það
gæzkur, að þú átt ekki að þurfa
að spyrja aftur.
— Eru þau stór og ljót?
— Já.
— Og með bogið nef?
— Og eru þau með vörtu á nef-
inu?
— Já, víst em þau með vörtu á
nefinu.
— Bua þau í hellum í fjallinu?
— Svo er sagt.
— Hefurðu þá al'drei séð tröll-
in sjálf amma. Ha?
— Onei.
Framhald á 10. síöu
Texti: Grétar Oddsson
Teikningar: Ragnar Lár.
ar lágu að henni beggja megin og
Hann ráfaði nú upp með ánni mölin var ávöl og mjúk, svo skil-
Nýtt úrval af
haust- og vetrarkápum
Þar á meðal:
Kápur með loðkrögum — Tízkufrakkar,
sem nota má beggja megin — Loðkápur —
Apaskinnsjakkar og kápur með loðfóðri.
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.
Aðstoðarráðskonu
vantar að Samvinnuskólanum Bifröst á
komandi vetri.
Upplýsingar á símstöðinni Bifröst á mánu-
dag 21. september og næstu daga.
Verkfræðingar,
tæknifiæðingar,
Samband íslenzkra rafveitna og Ljóstækni-
félag Íslands óska að ráða rafmagnsverk-
fræðing eða rafmagnstæknifræðing til
starfa. — Umsóknarfrestur er til 10. okt.
1964. Umsóknir sendist Sambandi íslenzkra
rafveitna, pósthólf 60, Reykjavík. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 18222.
Rafvirkjar Rafvirkjar
Viljum ráða 2 rafvirkja til starfa í verk-
smiðju vorri, einnig hjálparmenn.
H.f. Raftækjaverksmiðjan
Hafnarfirði.
Frá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur
Vetrarstarfið hefst mánudaginn 28. september. Kenndir
verða bæði gömludansarnir og þjóðdansar í fiokkum
fyrir börn og fullorðna. v
Upplýsingar og innritun í síma 12 5 07 milli kl. 4 og 7
næstu daga.
Þ j óðdansaf élagið.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 20. sept. 1964 $