Alþýðublaðið - 22.09.1964, Side 11
MIKILL mannfjöldi var saman
kominn á Njarðvíkurvelli á sunnu-
daginn var. Hundruð bifreiða,
langferðabifreiða, leigubifreiða
©g einkabifreiða, lögðu leið sína
írá Reykjavík „á völlinn” þar suð-
ur frá, auk fjölda fólks frá Kefla-
vík og öðrum nærliggjandi stöðum
Suðurnesja. Alls er talið að nær
5 þúsundir manna hafi verið
þarna. Tilefnið var úrslitaleikur
íslandsmótsins, sem háður var
milli KR og ÍBK. Hin mikla að-
sókn sannaði enn einu sinni, hver
ítök knattspyrnan á í hugum fólks
ins, eða hvaða íþrótt.agrein önnur,
myndi hafa samansafnað slíkum
fjölda eða gæti það, nema knatt-
spyrnan Hitt er svo annað mál að
aðstaðan til að taka á móti slíkum
fjölda áhorfenda, þarna suður frá,
er fyrir neðan aUar hellur. En
slæm aðstaða aftrar ekki fólki frá
Staðan í 1. deild að ólokn-
um einum leik, KR-Akranes,
sem fram fer á sunnudaginn.
.... -...{
★ Fram-Þróttur 4:1
★ Keflavík-KR 1:1
Keflavík
KR
Akranes
Akranes
Valur
Fram
Þróttur
10 6 3 1 25:13 15
9 4 3 2 15:11 11
9 4 3 215:11 10
9 5 0 4 23:20 10
10 3 2 5 19:24 8
10 2 3 5 10:20 7
10 2 3 5 14:24 7
að koma, ef það á von á fjörugum
knattspyrnukappleik.
Og vissulega hafði fólk ástæðu
til að ætla, að þarna yrði einn af
hinum stóru leikjum ársins. Að
staða keppinautanna var þó með
nokkuð misjöfnum hætti. Annars-
vegar ÍBK með 14 stig og hins-
vegar KR með 10 stig. ÍBK dugði
jafntefli til að sigra og hljóta ís-
landsmeistaratignina, en KR
þurfti hinsvegar að sigra ÍBK nú
og síðan ÍA og loks þá ÍBK á ný,
tiL að halda sæmdarheitinu „Bezta
knattspyrnufélag íslands”, sem
það var handhafi að. Leikurinn
var því allójafn þegar í upphafi,
hvað þetta snerti.
En þrátt fyrir þessa hagstæðu
aðstöðu ÍBK, voru ýmsir, sem
treystu á „KR-heppnina” og harð-
fylgi KR-inga til að rétta hlut
sinn þegar verst horfði, svo að
þeir fengju enn einu sinni hrósað
sigri, og við þetta var svo tengd
vonin um nýjan úrslitaleik við
ÍBK f Reykjavík við mannsæm-
andi aðstæðúr, ef ÍA yrði þá ekki
sá þröskuldur sem slikar vonir
hrösuðu um. En það sýndi sig, að
óþarfi var að gera slíku skóna.
Leiknum lauk með jafntefli 1:1 og
með sigri ÍBK, í mótinu, sem þar
með er orðinn íslandsmeistari í
knattspyrnu árið 1964 og „Bezta
knattspyrnufélag íslands”. Er
þetta í annað sinn, sem félag utan
Reykjavíkur, sigrar í mótinu. En
fyrstu sigurvegarar í íslandsmót-
inu utan Reykjavíkur voru eins og
kunnugt er, Akurnesingar, og oft
eftir það.
Ekki er hægt að segja, að úr-
slitaleikur þessi hafi verið sérstak-
lega spennandi í heild, en hins-
vegar voru í honum góðir sprettir,
svo við mátti búast og snörp
um á báða bóga, á milli. Fyrri hálf
leiknum lauk án mai-ka, voru þá
ÍBK-menn mun meira í sókn og
áttu möguleika til að skora, þó
ekki nýttust. Hinsvegar má segja
að mark þeirra, í þessum hálfleik,
væri aldrei í neinni verulegri
hættu.
Enda virtust KR-ingar leggja
meiri áherzlu á varnarleik en sókn
ar í þessum hálfleik og allt þar til
þeir fengu fyrsta markið, sem kom
á 12. mín. seinni hálfleiks. Það
var Rúnar Júlíusson, sem lék mið-
herja í stað Jóns Jóhannssonar,
sem ekki gat leikið með vegna
meiðsla, en það var liðinu mikill
skaði, sem skoraði með góðu ská-
skoti frá vinstri. Þessi varnarleik-
ur KR-inganna var misráðinn,
þeir höfðu allt að vinna og hefðu
þessvegna átt að sækja á af öllum
þeim krafti, sem þeir höfðu yfir
að ráða. Annað en sigur í leikn-
um, kom þeim að engu haldi. Enda
sýndi það sig; eftir að þeir tóku
að sækja á, af auknum krafti gekk
allt betur, og mark mótherjanna
var hvað eftir annað í yfirvofandi
hættu. Og ekki munaði hársbreidd
að tækist að jafna, er Ellert skall-
aði rétt utan við stöng úr sendingu
Gunnars Felixssonar, er 15 mín
voru eftir af leiknum. Úr hom-
spyrnu á 34. mín. sem Rúnar tók,
munaði og mjóu að Karli Her-
mannssyni tækist að bæta
öðru markinu vlð, en skot hans
var of laust. En rétt á eftir átti
Rúnar hörkuskot í hliðarnet og
annað skömmu síðar úr svipaðri
aðstöðu og hann skoraði úr, en
yfir slá. Er um 5 mín. voru eftir af
leiknum, jafnaði Ellert fyrir KR,
með ágætu og viðstöðulausu skoti,
sem Kjartan markvörður hafði
ekki möguleika á að verja. Boltinn
Hreiðar og Karl berjast um boltann. —- (Mynd: JV).
var kominn inn áður en Kjartan
hafði varpað sér niður í veg fyrir
hann. Síðustu mínúturnar voru
mest spennandi, er KR-ingarnir
gerðu hverja hríðina af annarri að
marki mótherjanna, til þess að ná
sigrinum, en allt kom fyrir ekki,
vörnin stóðst alla raun, og var þar
drýgstur svo sem áður, miðfram-
vörðurinn Högni Gunnlaugsson.
Þó skall hurð nærri hælum, er
Sveinn Jónsson tók aukaspyrnu á
42. mín. en boltinn féU niður á
netið ofanvert. Lá þarna við, -að
(Mynd: JV).
Islandsmótinu.
Hinn glæsilegi knattspyrnuflokkur Keflviklnga, sem sigraðí
Sveini tækist öðru sinni í viðup-
eigninni við ÍBK, að tryggja liðk
sínu sigur, á síðustu stundu, svo
sem var í hinum fyrri leik í sum-
ar, er hann skoraði úr auka-
spyrnu á síðustu stundu, er stað-
an var 2:2.
Rétt fyrir lokin fengu KR-ing-
ar enn eina aukaspyrnu, við víta-
teigslínu, er Kjartan markvörð-
ur hafði stigíð út fyrir teiginn, >
því augnabliki er hann spyrnti frá,
En sú aukaspyrna reyndist ekki
hættuleg og leiknum lauk eins og
fyrr segir,, með jafntefli 1:1 00
þar með sigri ÍBK, er hlaut 19
stig í. mótinu.
Grétar Norðfjörð dæmdi leikinn
og gerði það veí. Leikurinn i
heild var hinn prúðmannlegasti t
hvívetna.
íslandsmeistarar ÍBK eru þessír»
Kjartan Sigtryggsson, Gísli Elle-
rup, Ólafur Marteinsson, Magnúo
Torfason, Högni Gunnlaugsson,
fyrirliði, Sigurður Albertsson, Jón
Ölafur Jónsson, Hólmbert Friffi-
jónsson, Rúnar Júlíusson, Eiuar
Magnússon og Karl Hermannsson.
Enginn vafi leikur á því að þetta
lið er það jafnbezta, sem leikur 4
I. deild nú, Jafnvígir leikmeho
skipa yfirleitt flestar stöðurnar.
Framlínan er þó hvað bezt, eink-
um þegar Jón Jóhannsson skipar
Stöðu sína, sem miðherji. Vissu-
légá er þetta lið vel að sígrinum
í mótinu komið, og því sæmdár-
heiti, að teljast „Bezta knátt-
spymulið íslands nú, því það ev
rétt. Éngin tilviljun hefur hér um
vélað. — EB.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. sept. 1964 1|,