Alþýðublaðið - 23.09.1964, Qupperneq 2
Á
RÍtstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt GröndaL - Fréttastjórl:
Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — ASse.tur: AlþýSuhúsið vi3
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja AlþýðublaBsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — X lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkm-inn.
Bágindi kommúnista
BÁGINDI steðja nú að Alþýðubandalaginu og
íslenzkum kommúnistum. Allt. logar í deilum og
ihver höndin er upp á móti annarri. Flokksklíkur
herjast um völdin og hámarki munu deilurnar að
líkindum ná á flokksþinginu, sem fyrirhugað er að
halda í haust.
För f immmenninganna á fund Bresnevs í Moskvu
hefur að vonum ivákið athygli. Þar með hafa ís-
lenzíkir kommúnistar stimplað sig Moskvustimplin
um rækilegar en. nokkru sinni fyrr, þótt þeir hafx
gert árangurslitlar tilraunir til að má af sér
Moskvumerkið frammi fyrir íslenzkxxm kjósend-
um.
Athyglisvert er, sem nú er upplýst, að Moskvu
■förin var aldrei rædd í miðstjórn flokksins, og
að þingmenn kommúnista á Norðurlandi höfðu
ekki hugmynd um að verið væri að bjarga kjör-
•dæmum þeirra austur í Moskvu eins og ivikublaðið
Frjáls þjóð komst að orði.
Það undrar því engan þótt nú hrikti í Alþýðu
Ibandalaginu og óbreyttum flokksmönnum gremj-
ist hegðan foringjanna. Óánægðastir allraeru Þjóð-
fvarnarmenn, ,sem við síðustu kosningar gengu til
liðs við Alþýðubandalagið, og hafa fram að þessu
stutt það með ráðum og dáð. Málgagn Þjóðvarnar
tmanna segir, að samstarfinu innan Alþýðubanda-
lagsins sé stefnt í tvísýnu, og undra þau ummæli
engan, því Þjóðvarnarmenn eru ekki jafn hrifnir
af Mosk'vustimplinum og sumir bandamenn þeirra.
Vlafalaust verður þess ekki langt að bíða, að
■til stórtíðinda dragi í Alþýðubandalaginu, þegar
valdastreitan nær hámarki. Kann þá svo að fara,
að Þjóðvarnarflokkurinn kljúfi sig frá því á ný,
þótt of snemm sé enn ,.um slíkt að spá“.
Tillaga um samstarf
FÁMENNUR hópur hernámsandstæðinga
íkom saman til tillögugerðar ivið Mývatn fyrir
S’kömmu. Ein þeirra tillagna, sem hópurinn sam-
þykkti, var að leitað skyldi samstarfs og samvinnu
við hernámsandstæðinga í öðrum löndum.
Samtök hemámsandstæðinga hafa verið ötul
við að koma upplýsingum um starf sitt á fram-
færi, og hlakka 'vafalaust margir til að heyra til-
Ikynningar um samstarf samtakanna við hernáms
andstæðinga í Austur Þýzkalandi, svo eitt dæmi sé
nefnt.
Ekki ætti ís'lenzkum hernámsandstæðingum
heldur að verða skotaskuld að komast í samband
við hernámsandstæðinga í öðrum jámtjaldslönd-
txm, þar sem dvelur rússneskur her grár fyrir járn
txm. Þess er að 'vænta, að forystumenn samtakanna
dkýri þjóðinni senn frá árangri og nytsemi þessa
samstarfs.
Husqvarna
Husqvarna eldavélin er ómissandi í liverju
nútíma eldhúsi — þar fer saman nýtízkulegt útlit ogr allt
það, sem tækni nútímans gretur gert til þess að matargerðin
verði húsmóðurinni auðveld og ánægjuleg. Husqvarna elda-
vélar fást bæði sambyggðar og með sérbyggðum bökunarofni.
Leiðarvísir á íslenzku, ásamt fjölda mataruppskrifta fylgir.
Eldri kaupendur fá sendan leiðarvísi gegn kr. 25,00 greiðslu.
SÚBURLANOSBRAUT 16 • REVKJAVÍK • SÍMI 3S2
-K H K
KYRRÐÁ HEIMILUM!
ÞAÐ HAUSTAR AÐ. Gróðurinn
hefur misst sinn sumarlit. í dag
lemst hann niður í görðunum.
Allt gránar og dökknar. Á sunnu-
dagsmorgun voru austurfjöllin
komin með gráa kolla. Nú fjölgar
óðfluga í borginni. Þúsundir koma
heim úr sumaratvinnunni og utan-
borgarvist. Skólarnir byrja1
kennslu og inn um dyr þeirra
streyma þúsundir ungmenna. Ekk-
ert af þessu er nýtt. Þannig hefur
þetta verið á þessum árstíma. Þeg-
ar haustar að breytist alit eins og
allt breytist aftur á vorin.
Á VORIN er létt yfir manneskj-
unni. Það er tími endurvakningar,
gróðurs og ástar. Haustin eru
tími starfs og íliugunar. Ég hef
víst oft sagt það áður, að menn
eiga að gera áætlanir um líf sitt
og starf og reyna að fyigja þeim.
Það er víst að þegar menn leggja
á ráðin um verkefni sín og líferni
fram í tímann, þá eru þær ráða-
gerðir til góðs fyrir þá sjálfa og
samfélagið. Ég held að það væri
mjög til bóta fyrir alla aðila, að
menn settu sér það mark að dvelj-
ast sem mest á heimilum sínum í
skammdeginu.
ÉG HEF TEKH) EFTIR ÞVÍ víða,
að borgir gjörbreytast á kvöldum
þegar fer að hausta. Þá sér maður
varla manneskju á götum borga,
aðeins bifreiðar, sem þjóta um. Að
vísu eru veitingahús opin, en það
er eins og tugþúsundirnar séu inni
hjá sér og hafi lokað að sér.
HÉR ER SVIPURINN ANNAR.
Það er jafnvel algengt, að menn
fari í heimsóknir á síðkvöldum,
„líti inn til kunningjanna" allt til
miðnættis og setjist upp. Þetta er
fráleitur ósiður. Allt öðru máli
gegnir, ef menn hafa fyrirfram
ákveðið að hittast. Það er eðlilegt
og sjálfsagt, en hitt á að hverfa
úr samlífi okkar. Yfirleitt er bezt
að kyrrlátt sé á heimilum eftir
kvöldmat í skammdeginu. Þetta er
iíka þýðingarmikið á þeim heimil-
um þar sem börn og unglingar eru
við nám. Gestagangur á síðkvöld-
um er óhollur fyrir alla og ekki
sízt börn og unglinga.
ÞAÐ ER MARGT hægt að gera
á síðkvöldum hausts og vetrar. Það
er hægt að lesa sér til gagns og
skemmtunar. Það er hægt að
hlusta á útvarpið, en þar er margt
að fá af ágætis efni, en forðast
ættu menn að hlusta á allt, Og nú
er sjónvarp 'komið á þúsundir heim
ila og færist sífellt í aukana, og þó
að ákjósanlegt væri, að þetta sjón-
varp væri undir okkar eigin stjórn,
þá er margt í því til skemmtunar,
fróðleiks og göfgunar, sem vert er
að horfa á. En aftur segi ég: En
forðast ber að glápa á það allt
saman.
FÉLAGSSTARF FER NÚ aO
liefjast fyrir alvöru. Nær öll félög
halda uppi margbreytilegu starfL
Almenningur á að taka meiri þátt
í því en hann hefur gert til þessa.
Það eru til fieiri félög en þau sein
fyrst og fremst ræða um og starfa
að stjórnmálum. Söfnuðirnir halda
uppi ýmis konar félagsstarfi
íþróttafélögin gera það einnig, þð
að seint gangi hjá þeim og starf
þeirra og starfsleysi sé efni í sér-
stakan pistil, en tilgangurinn með
starfi þeirra er góður ef unga fólk-
ið tekur þátt í því af heilum hug.
ÞANNIG MÆTTI LENGI telja.
Tilgangur minn er aðeins sá, að
hvetja fólk til kyrrðar á heimilum
sínum. Hannes á borninu.
HAUST-LAUKARNIR
eru komnir.
Páskaliljur — Tulipanar
Hyasintur — Crocus
Sendi í póstkröfu hvert á land sem er.
Gróöurhús Paul V. Michelsen
Hveragerði.
Auglýsingasíminn er 14906
g 23. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ